Sæll

Ég hef nú lítið að segja frá, man nú ekki allt saman sem maður las í gamla daga, en sem sjómaður í 40 ár var þetta nú ein sagan sem maður las talsvert um.
 
Og  myndirnar sem hafa verið gerðar um þetta svakalega slys af mannvöldum.
 
Má sérstaklega rekja þetta fyrst vegna byggingar skipsins se
m fór fram úr öllum kostnaðaráætlunum

Járnefnið í skipið var það lélegasta og ódýrasta
á markaðnum. 

 Járn sem var hart og stökkt og brotnaði eins og gler er skipið rakst á ísjakann,

Venjulega er járn í skipum haft mjúkt, en hægt að f
á margfalt ódýrara járn sem er stökkara og þannig var það með TITANIC,

Sparnaðurinn í járnavinnunni við TITANIC fór
út fyrir öll skynsamleg mörk. 

Til dæmis var horft mikið í þessi
milliskilrúm (talin óþörf) sem voru minnir mig 5 að tölu fremst í skipinu og var horft á þetta sem bruðl á járni í skipið að smíða þessi milliþil (áttu að vera vatnsþétt).

Þau voru ekki smíðuð að fullu þeas. frá kjöl og upp
í aðalþilfar (veðurþilfar), hefði til dæmis bara 1 af þessum 5 milliþiljum verið smíðað alla leið frá botni til þilfars hefði TITANIC aldrei sokkið.

TITANIC gat flotið, eða borið þann þunga sem var kominn fremst í skipið
í lest og 2 hólfin, en eftir að fór að flæða í 3. hólfið varð ekki aftur snúið.

Sjór flæddi
koll af kolli yfir þessi þil, af því að þau voru ekki smíðuð alla leið undir aðalþilfarið(veðurdekkið), sparnaðurinn var orðin svo gigalegur í allri járnavinnu skipins

Svo var helmingi meira lagt í allt innanskips, í aðal snobbið og flottheitin og ekkert
var sparað til þess.

Ein ljóskrónan td hefði dekkað allt járnið sem vantað
i til að fullkomna smíði skipsins og skipta því í 100% öll vatnsheld milliþil undir þilförum, en flottræfilshátturinn réði ríkjum.

Yfirmaður allrar smíði skipins var farinn á taugum, vegna þess að hann vissi að ekki var rétt með farið
 við smíði skrokksins vegna þessa lélega járns sem notað var í það og margt annað.

Svo var það aðaleigandinn s
em var eiginlega kominn á hausinn ef þetta gengi ekki 100% upp.
 
Og að TITANIC yrði flj
ótast á milli Englands og USA og það flott búnaðasta innanskips fyrir flottheitin.

Ríka Suðurríkjafólkið í USA var búið að panta upp öll farþegaplásin á skipinu til EVROPU, og ekki smá upphæðin sem miðinn kostaði (þá var farþegaflugið ekki komið til :),,)

Það er svo langt síðan að ég las um TITANIC og þá í bók sem var gefin út og horft á aðra hlið málsins en bara slysið.

Hef marg siglt yfir slysstaðinn og einu sinn hent blómvönd þar.

Þannig var að við sigldum frá Danmörku til USA NY og var meiningin að sigla norður fyrir Ronaldsey
norður af Orkneyjum.

Veðurspáin svo slæm fyrir þetta svæði að við sigldum sundið suður fyrir England
og tókum stórbaugs siglingu þaðan eins og TITANIC gerði í denn.

Ég kastaði blómsveig á svæðið TITANIC, en það var
á minni vakt sem við sigldum yfir þar á leiðinni vestur J

Hvervegna að ekki var rannsakað smíði skipsins og annað í kringum það er líklegt að peningavaldið hafi ráðið og engin þorað að opinbera snobbheitin.

Tryggvi Bjarnason

Stýrimaður/ Mate

Home: Austurbrun 4

City: 104 Reykjavik

Country: Iceland

e-mail: tbee@simnet.is

------------------___________-------------------_______________------------------------_____________
2 ummæli við ' Fisk-maga áhrifin '

Fylgjast með ummælum með RSS eða senda bakvísun á ' Fisk-maga áhrifin '.

  1. helgi palmason ritaði,

    þann 16. apríl 2008 kl. 14.42

    Óskar Þórhallson skipstjóri (kenndur við Arney KE) missti forláta úr einhvern tíma fyrir langa löngu í sjóinn, seinna hringir úrsmiður í hann og spyr hvort hann hafi týnt úrinu, það hafi komið maður með það í hreinsun, eftir að hafa fundið það í þorskmaga, það kom allt heim og saman..kv hp

    Tilviljanir í Danaríki


Íslensk kona búsett í Danmörku átti þessa ótrúlegu örsögu:

Ég þekki tilviljanir mjög vel og þær hafa verið margar ótrúlegar í mínu lífi, segir íslensk kona í Danmörku.

Bara t.d. ein hér..

 

Ég fór dagsferð til London frá DK og um kvöldið er ég sat á Victoriu station í London, þá sat á móti mér kona sem mér fannst ég kannast svo mikið við.

 Og alltaf þegar maður er í útlöndum þá er maður frakkari, allavega ég og lét því mig bara vaða á konuna og spurði hana hvort að hún væri nokkuð íslensk.

 Nei, það var hún ekki.

 Hún var dönsk og á leiðinni til DK.

 Á leiðinni heim spjölluðum við saman nánast alltan tímann og þá kom í ljós að hún var að flytjast í bæinn þar sem ég bý.

 Í meira af gamni en alvöru sagði ég við hana, að gaman væri ef þú flyttir í húsið við hliðina á mér, það er nefnilega svo leiðinlegt fólk sem býr þar.

 Hún var nú reyndar ekki með heimilisfangið á húsinu sem maðurinn hennar hafði keypt þar sem eigendurnir gátu ekki afhent það fyrr en eftir nokkrar vikur og þangað til myndi hún vera í leiguhúsnæði.

Við ákváðum að halda sambandi þegar heim kæmi.

 Stuttu seinna kom það síðan í ljós að hún og maðurinn hennar höfðu keypt húsið við hliðina á mér og býr hún þar enn í dag.

 Hún varð mín besta vinkona hér í DK og mér mikil stoð og stytta þegar ég varð að flytja út frá sambýlismanninum.

 

En ég spyr, hverjar eru líkurnar á þessu að maður hitti manneskju á Victoriu station í London sem er að flytjast í húsið við hliðina á manni, sem ég vissi reyndar ekki að væri til sölu.

Lincoln og Kennedy eiga ýmislegt sameiginlegt!

Söguleg ráðgáta!

merki.jpg

Fáðu sögukennarann þinn til að útskýra þetta—– ef hann getur.

pres.jpgpres02.jpg

Abraham Lincoln var kosinn á þing árið 1846.
John F. Kennedy var kosinn á þing árið 1946.

Abraham Lincoln var kosinn forseti Bandaríkanna 1860.
John F. Kennedy var kosinn forseti Bandaríkanna 1960.

Báðir töldu mikilvægt að tryggja borgaraleg réttindi handa öllum.

Báðar eiginkonur þeirra misstu fóstur á meðan þær bjuggu í Hvíta húsinu.

Báðir voru þeir skotnir til bana á föstudegi.

Báðir forsetarnir voru skotnir í höfuðið.

Og núna verður þetta virkilega undarlegt!

Einkaritari Lincolns bar eftirnafnið Kennedy.
Einkaritari Kennedys bar eftirnafnið Lincoln.

Báðir voru þeir skotnir af Suðurríkjamanni.

Suðuríkjamenn tóku við embættinu af þeim báðum og hétu þeir báðir Johnson að eftirnafni.

Andrew Johnson, sem tók við af Lincoln, var fæddur 1808.
Lyndon Johnson, sem tók við af Kennedy, var fæddur 1908.

pres03.jpgpres04.jpg

John Wilkes Booth, sem skaut Lincoln, var fæddur 1839.
Lee Harvey Oswald, sem skaut Kennedy, var fæddur 1939

.

pres05.jpgpres07.jpg

 

Báðir morðingjarnir voru þekktir undir þremur nöfnum.
Bæði nöfn samanstanda af 15 stöfum.

Og nú skaltu halda þér fast.

Lincoln var skotinn í leikhúsi sem hét ‘Ford.’
Kennedy var skotinn í bíl sem heitir ‘ Lincoln ‘ framleiddur af ‘Ford.’

Lincoln var skotinn í leikhúsi og morðingi hans hljóp og faldi sig í vöruhúsi.
Kennedy fékk skot í sig sem kom frá vöruhúsi og morðingi hans hljóp og faldi sig í leikhúsi.


 

Bæði Booth og Oswald voru skotnir til bana áður en þeir komu fyrir dómstóla.

Svo lokahnykkurinn…

Viku áður en Lincoln var skotinn til bana var hann í bænum Monroe í Maryland,

viku áður en Kennedy var skotinn var hann með Marilyn Monroe.

pres06.jpg