![]() |
| Fyrstu jarðgöng á Íslandi eru skammt frá Ísafirði og eru afar stutt. |
-Formáli þýðanda-
Hve oft hefur þú ekki setið að spjalli við kaffiborð í vandræðalegri þögn,þar sem að þú reynir af öllum mætti að finna eitthvert umræðuefni, eins og hinir gera reyndar líka. Hve oft hefur þú ekki verið einn ófróðra hlustenda á einhvern hrók alls fagnaðar uppfullan af skemmtilegum sögum safnandi að sér aðdáendum eins og mykjuskán flugum.
Hvaðan fá þessir hrókar allar þessar sögur?
Ég var einn þeirra sem ekkert höfðu að segja, þar til ég rakst á þessa bók í bókabúð. Ég lagði nokkrar sagnanna á minnið og hef nú meira en nóg að spjalla á mannamótum.
Ef þú leitar grannt í hugskoti þínu finnurðu eflaust urmul af tilviljunum í þínu eigin lífi. Tilviljanir eru allt í kringum okkur.
Ef þú lesandi góður átt sögu um tilviljanir úr þínu lífi bið ég þig endilega að gera heiminum þann greiða að senda hana á netsaga@netsaga.is, takk.
