Islensk fyndni. Grænar baunir.
VALBJÖRG HÉT KONA er bjó í Borgarnesi. Hún þótti nokkuð greind, en var fljótfær og komst oft kynduglega að orði.
Eitt sinn var Valbjörg að lýsa mat er hún hafði fengið í veislu. Hún sagð þá meðal annars, að með kjötinu hefðu verið “alla vega litaðar grænar baunir”