Sigurður á þörfinni eftir langan tíma í smugunni .
http://www.netsaga.is/media/files/Svenni-into%20the%20night-edit.mp3
Siggi var búin að vera sex vikur í smugunni og skokkaði heim til sín. Þegar heim var komið var nú aldeilis ætluninn að taka út þörfina fyrir eitt og annað.
Til að byrja með átti að vinna upp allmikið kynlífsleysi með frúnni.
Siggi opnar dyrnar á húsi sínu og getur varla hamið sig fyrir þörf… konann sem átti ekki von á Sigga sínum fyrr en eftir tvo tíma hafði ekki reiknað með þessu forskoti og komið börnunum fyrir svo þau hjónakornin hefðu ró og næði til að þjóna hvort öðru rækilega og bæta úr kynlífsleysinu. Var þar að leiðandi ekki búin að gera ráðstafanir með drengina þeirra þrjá.
Siggi var nú ekki lengi að kveikja fyrir ágætis lausn á því máli. Réttir strákunum sínum hvern 300 kallinn eftir að hann er búin að knúsa þá rækilega og spjalla smá . Segir þeim að rölta í rólegheitum upp í sjoppu og fá sér bland í poka. Það var nokkuð sem hingað til hafði tekið sinn tíma og það hressilega.
Strákarnir voru aldrei þessu vant ekkert sérlega spenntir fyrir nammi , voru að sjálfssögðu spenntari fyrir því að fá stundir með pabba sínum. En létu til leiðast þegar pabbi sagði að hann þyrfti nú aðeins að spjalla í rólegheitum við mömmu þeirra.
Drengirnir lögðu af stað í næstu sjoppu og í stað þess að rölta hlupu þeir eins og skrattinn væri á hælunum á þeim, drifu í því að kaupa það sem hugurinn girntist og hlupu síðan á sama spani heim aftur.
Þegar heim var komið róuðu þeir sig aðeins niður og til að trufla ekki mömmu og pabba í spjallinu ákváðu þeir að læðast inn og athuga fyrst hvernig staðan á foreldraspjallinu væri áður en þeir létu heyra í sér.
Þeir kíktu í eldhúsið og þar var engin, síðan í stofuna… engin þar… nú laumast þeir að svefnherbergishurðinni hjá foreldrunum , heyra að þar er eitthvað í gangi og taka varlega í hurðarhúninn.
Hurðin er læst , þeir vita nú ekkert hvað þeir eiga að gera og kunna ekki við að banka. Það endar með því að sá elsti beygir sig niður að skráargatinu og kíkir inn.
Wowww hann grípur andann á lofti og liggur smá stund á gæjum, miðbróðirinn vill nú líka fá að sjá og ýtir þeim elsta í burtu, UPSSSSSSSS honum verður jafn bilt við og þeim elsta en hangir samt á skráargatinu með blóðrautt andlit og andvörpum. Yngsta bróðurnum fer nú að leiðast að vera ekki með og vill fá sinn tíma við gæjugatið …. treður sér að klýnir auganu upp að skráargatinu …. honum bregður hressilega við að sjá hvað er í gangi fyrir innann.
Skellir upp úr og gólar upp hneikslaður …. “Wáaaaaa svo er manni BANNAÐ AÐ BORA Í NEFIД!!!!!!
