8.7.2008


SJALDGÆF


SJALDGÆF TEGUND.

 

Tveir menn sitja á ísnum og eru að veiða í gegnum vök.

Eins og karlmanna er siður þá þurfa þeir ekki að vera síblaðrandi en eftir langa þögn segir annar:

“Ég held að ég verði að skilja við kerlinguna mína.”

“Af hverju” spyr þá hinn

“Hún hefur ekki talað við mig í tvo mánuði” svarar karlinn.

Þá kemur löng þögn en svo segir vinurinn:

“þú ættir nú að hugsa þig vel um. Svona konur eru ekki hverju strái!”