8.7.2008


HÆTTULEGT


HÆTTULEGT GÆGJUGAT.

 

findin1.gif

Gulli ,Svenni og Tommi eru á leiðinni heim úr
skólanum einn hlýjan vordag.

Þeir stytta sér leið um bakgarð og kíkja í gegnum smá gat á girðingu
hjá einu húsinu.

Þar sjá þeir nakta konu í sólbaði.

Allt í einu rekur Svenni upp óp og hleypur heim til sín.

Hann hleypur svo hratt að vinir hans tveir geta ekki náð honum þó þeir hlaupi líka.

Næsta dag þegar þeir eru á heimleið kíkja þeir aftur í gegnum gatið og enn rekur Svenni upp óp og hleypur heim.

Á þriðja degi gera Gulli og Tommi áætlun um að vera fyrir
framan Svenna ef hann skyldi hlaupa af stað svo þeir geti spurt hann hvað sé að.

Eins og áður gat Svenni aðeins horft í gegnum gatið í smástund
áður en hann hugðist hlaupa heim.

Í þetta skipti gripu Gulli og Tommi hann heimtuðu að fá að vita hvað gengi á.

Svenni segir: “Mamma mín segir að ef ég horfði á nakta konu þá myndi ég breytast í stein.

Ég fann að eitthvað var að verða hættulega hart!”