7.7.2008


Hver er að deyja, ég eða þú ?


Hver er að deyja, ég eða þú ?

 

 

Gamall maður lá banaleguna og sendi eftir lögfræðingi sínum, því að hann ætlaði að gera erfaskrá.

“Ég ætla að arfleiða Ágúst, elsta son minn að verðbréfunum mínum og hlutabréfunum,”sagði hann.

“Það finnst mér nú ekki ráðlegt”, sagði lögfræðingurinn.

“Hann Kjartan er meira inni í verðbréfaviðskiptum, þú ættir frekar að láta hann fá þau.”

“Já, það er líklegra rétt hjá þér,” sagði sá gamli.

“Svo ætla ég að arfleiða Guðrúnu dóttur mína að fyrirtækinu.”

Guðrún hefur ekkert vit á rekstinum,” sagði lögfræðingurinn.

“Það væri nær að Ágúst fengi fyrirtækið.”

“Jæja, það er best að hann fái þá það.”

Svo fær Erna húsið.”

“Væri ekki réttara að Guðrún fengi húsið ?

Erna er vel stæð og á nýtt einbýlishús…”

“Heyrðu mig nú,” greip gamli maðurinn fram í.

“Hver er að deyja - ég eða þú ?”

“Á ég ekki minn rétt á hvernig ég skipti eigum mínum ?”