7.7.2008


Okur á heyi að drepa barna- og unglingastarf


Okur á heyi að drepa barna- og unglingastarf

 

einhyrningar.jpg

Holskefla verðhækkana á heyi ríður nú yfir hestamenn.  Nú er svo komið að aðeins þeir ríku geta haldið hross og er það bagalegt.  Fyrir börn og unglinga sem hafa áhuga fyrir þessu er hrossahald nauðsinlegt.

Hvað eiga þessir fátækari að gera nú.  Þurfa þeir að koma börnum sínum í eitthvað annað sport, sem þau hafa sennilega takmarkaðan áhuga fyrir.

Ég mæli því með að Sturla skipuleggi mótmæli vegna þessa eldsneytiskostnaðarauka hestamanna því ekki er hægt að dæla dísel á hrossin.

En grínlaust, það er alltaf verið að tala um eitthvað fyrir unglingana annað en að vera í rugli.

hross.jpg