2.7.2008
Konan og eggin, svo peningarnir.
Gömul kona liggur alvarlega veik á sjúkrahúsi Maður hennar situr við hlið hennar þegar konan snýr sér að honum og segir: “Ég verð að segja þér svolítið. Í nærfataskúffunni minni er svartur kassi. Farðu og skoðaðu í hann og svo aftur og segðu mér hvað þú sást.” Maðurinn fór heim og skoðaði í kassann og fann þar 200.000 krónur og 3 egg. Næsta dag fór maðurinn aftur til konu sinnar og sagði henni að hann hefði fundið 200.000 krónur og 3 egg. Maðurinn spurði svo konu sína hvernig á þessu stæði. Konan sagði: “Í hvert sinn sem við elskuðumst og ég var óánægð setti ég eitt egg í kassann.” Maðurinn brosti vegna þess að eggin voru svo fá í kassanum, en konan sá brosið og sagði: “Í hvert sinn sem ég var búin að safna 10 eggjum fór ég á markaðinn og seldi þau og setti peninginn í boxið.”
og bíður dauða síns.
