2.7.2008
Munið eftir að taka réttan spray brúsa.
Frú Guðríður þurfti að fara til kvenna sjúkdómslæknisins í reglubundna skoðun. Hún vildi að sjálfssögðu vera hrein og fín og vel ilmandi við þessa athöfn. Eftir gott bað smyr hún sig alla með ilmolíum og skellir framan í sig maska . Á meðan maskinn er að virka ákveður hún að spreyja sig að neðan með uppáhalds ilmvatninu sínu. Frú Guðríður teygir sig annars hugar í skápinn eftir ilmspreyinu og drífur í þessu. Síðan eftir ágætis yfirhalningu er frú Guðríður tilbúin og drífur sig til læknisins. Hún kemur sér fyrir í glennaranum (bekkurinn sem konur fara í hjá kvenna sjúkdómalæknum ) liggur þar útglennt þegar Jóhann læknir kemur og sest fyrir framan dýrðina. Jóhann læknir verður ansi skondinn á svipinn og segir hálf hlægjandi ……… Ja hérna frú Guðríður… það er aldeilis jólaskreyting hjá minni … bara glamur og glans. Frú Guðríður verður sármóðguð og skilur ekkert í dónaskapnum hjá lækninum. Eftir skoðunina fer frú Guðríður heim… um leið og hún kemur inn til sín.. æpir dóttir hennar á hana . Mamma veistu nokkuð um glimmer spreyið mitt ? Frú Guðríður fer inn á bað til dóttur sinnar og spyr hvernig það líti út……. þegar dóttir hennar lýsir brúsanum fölnar frú Guðríður…… rífur sig úr brókinni og glennir sig upp við spegilinn. Þar blasir við henni vinkonan öll glampandi og glitrandi í glimmerspreyi !!!! Hún hafði tekið vitlausan brúsa !!!!!

