5.8.2006
Aðrar víddir
ÓlafurÞórEiríksson: Kenningar hafa verið uppi um aðrar víddir í mörg ár, og er í raun hornsteinn margra trúarbragða. Slík hlið virðast vera á sérstökum stöðum víðsvegar um Jörðina, og þau virðast ekki færast úr stað. Klikkaðu og heyrðu tónlist við hæfi: Aðrar víddir

Jafnvel Albert Einstein hugleiddi möguleikann á því að annar alheimur væri til samhliða þessum.
Vísindablaðagrein sem hét "Óséðar víddir alheimsins" og var birt í ágúst 2000 gerir ráð fyrir því að vísindalegar sannanir fyrir tilvist annarra vídda hafi komið fram innan næstu 10 ára!
Slíkar sannanir munu ekki aðeins hrista upp í vísindasamfélaginu, heldur munu þær vafalaust varpa nýju ljósi á mörg dulræn fyrirbrigði sem nú eru talin óskýranleg.
Eðlisfræðinga og rannsakendur dulrænna fyrirbæra hefur lengi grunað að til séu samhliða alheimar, og hafa oft leitað hugsanlegra "dyra" eða hliða á sérstökum stöðum sem gera verum kleift að ferðast inn í okkar vídd. 
Þessar verur kunna að vera andar, djöflar, framandi verur eða eitthvað sem við höfum aldrei einu sinni ímyndað okkur.
Velkunnar andsetur sem eiga sér stað um lengri tíma eru líklega tengdar slíkum hliðum - en ekki staðir sem tengjast einangruðum eða annars ótengdum ofbeldisfullum dauðdaga eða hörmulegum slysum en eru síðan vettvangur draugagangs.
Margir gamlir grafreitir Indjána virðast vera slík hlið, af ókunnum ástæðum, öðrum en þeim að Indjánarnir hafi valið þeim staði sem þeim þótti líklegir til að auðvelda hinum látnu ferðalagið yfir í aðra heima.
Hvernig þeir völdu staðina sem hentuðu er ekki vitað lengur, en afar hátt hlutfall þessara "helgu grafreita" er talið vera tengt dulrænni starfsemi og fyrirbærum.
Annarskonar grafreitir eru líka taldir vera möguleg hlið yfir í aðra heima, líklega af sömu ástæðum - annaðhvort meðvitað eða ómeðvitað hefur þeim verið valinn staður þar sem er slíkt hlið.
Hvort að ný hlið ljúkist upp af og til er óljóst, en þessi möguleiki krefst nánari athugunar.
Nákvæmar athuganir á meintum hliðum hafa leitt í ljós að hitastig er breytilegt í nágrenni þeirra.
Ljósmyndir sem teknar hafa verið á meintum stöðum leiða oft ótrúleg atriði í ljós, og sýna mistur, ljóskúlur, ljósarendur, verur og jafnvel disklaga hluti - en hafa ekki sést er smellt var af, þótt margt fólk minnist þess að þá hafi kuldahrollur farið um sig.
Fólk sem er næmara skýrir frá því að það fái tilfinningu um aukið segulmagn á stöðum þar sem talið er að geti verið hlið að öðrum víddum og greinir einnig frá því að það skynji að mikill fjöldi vera fari fram og aftur um gáttina - sem er óvenjulegt þegar átt er við venjulegan draugagang.
Margir kunna að furða sig á því að við sem manneskjur virðumst ekki geta farið um þessar dyr til annarra vídda.
Jarðneskur skrokkur okkar virðist koma í veg fyrir það.
Hinsvegar virðumst við á ýmsum stigum eins og í hugleiðslu eða við einhver hughrif hafa tækifæri til að kanna þessi ríki, og margir segjast hafa gert það í reynd.
Vitir þú eða hafir grun um eitthvert svona hlið í aðrar víddir þætti mér vænt um ef þú sendir mér grein um það á netsaga@netsaga.is
http://netsaga.is/media/files/beneath%20the%20stars%20and%20sky.mp3