17.7.2006


Verkstjóra-vísur af Suðurlandi


 Verkstjóra-vísur af Suðurlandi

 

     Eitthvað hef ég verið ónákvæm þegar ég sagði frá en þessi kveðskapur og vísur eru eftir marga karla og læt ég hér flakka eina frá 1934 en þá var allt með öðrum hætti.

Er þá belja yksna nú
engu dútli ég nenni
á morgun held ég minni kú
mun það nægja henni.

Heima svaf í hugar ró
hallaði sér að frúnni
undarlegt hvað yksnið fór
afar fljótt af kúnni.

Síðan sagði við hann frú
svona á þetta lítur
ég vil ekki eiga kú
uppá þessa spítur.

Þarna var það vekstjóri verksmiðjunar sem hafði fengið sér aðeins og fannst ekki svo nauðgið að drífa í að halda kusu.

     Þetta er tekið nákvæmlega upp úr handskrifaðri bók sem er öll meira og minna í þessum dúr og önnur er undir minni umsjá en í henni má finna heila ljóðabálka.

                 Kveðja ég!!!