17.7.2006
Marta Gunnarsdóttir
Marta Gunnarsdóttir
Skilaboð
Vinkvennaspjall
A:
Veistu bara hvað, þegar ég var í vinnunni í dag sagði hún Didda í afgreiðslunni mér frá vinkonu sinni sem var að kynnast manni sem skildi nýlega við konuna sína. Það var ótrúlegt að hlusta á hana því hann hefur lent alveg eins illa í þessu og þú. Konan hans var alltaf úti að skemmta sér og hann varð að vera hjá börnunum öll kvöld og allar helgar þegar hann var ekki í vinnunni.
Hún var alltaf á fylleríi og skipti sér ekki af börnunum, hún þoldi þau ekki.
Svo var hún alltaf að halda framhjá með hinum og þessum.
Hann fékk auðvitað alveg nóg af þessu og vildi skilnað en af því að það er alltaf tekið meira tillit til móðurinnar við skilnað þá fékk hún forræðið og hann er alveg í rusli yfir þessu hann hefur svo miklar áhyggjur af börnunum.
B:
Vá, maður er þá ekki einn um að hafa upplifað svona lagað. Ég held að það sé nú sjaldgæfara að konurnar hagi sér svona því karlarnir hafa oftast betri tækifæri á að fara bara þangað sem þeir vilja. Maður heyrir oftar svona sögur af körlum en það er auðheyrilega allt til í þessu.
Veistu hvaða maður þetta er?
A:
Nei, hún sagði mér ekki nöfnin á þessu fólki en vinkona hennar er alveg rosalega ánægð að vera búin að kynnast þessum manni því hún lenti svo illa í því síðast þegar hún var með einhverjum dela sem var víst alveg ferlegur og fór svo illa með hana.
Þessi er nú víst eitthvað annað svo hún er mjög ánægð og þau eru að fara að kaupa sér íbúð saman og vonandi geta þau þá tekið börnin hans til sín.
Þau eru víst mjög lítil enn þá og vinkona Diddu er alveg til í að taka þau að sér því hana hefur alltaf langað í barn.
B:
Það er verst að hann sé búinn að ná sér í aðra, það hefði verið flott að kynnast manni sem hefur svipaða reynslu og maður sjálfur.
Þó maður sé svo sem ekkert að sækjast eftir fleiri smábörnum.
A:
Já, ég þarf nú bara að spyrja hana Diddu að því hver þetta er, þó það sé nú ekki nema bara til þess að vita það. Kannski kannast maður við hann eða kellinguna sem hann átti börnin með.
- - - - - -
Sömu konur nokkrum dögum seinna
A:
Jæja, nú þarf ég sko aldeilis að segja þér fréttir og haltu þér fast, þú gætir aldrei upp á því sem ég frétti hjá Diddu.
B:
Nú, nú, hvað sagði hún eiginlega núna? Er vinkona hennar hætt með þessum manni?
A:
Ekki svo ég viti, en ætli það verði ekki bráðlega.
B:
Svona nú, ekki draga mig á þessu segðu mér hvað hún sagði.
A:
Sko, ég spurði Diddu loksins í gær að því hvað þetta fólk héti því við erum búnar að vera að tala um þau og þig og bera saman þessa skilnaði sem hafa verið svo ótrúlega líkir nema það var eiginkonan í hinu hjónabandinu sem átti að haga sér eins og fífl og hún sagði mér nöfnin og hvað heldurðu.
Þau heita Kalli og Katla.
B:
Ha, hvað segirðu, Kalli og Katla.
Hvað er hann að gera..... ljúga svona upp á mig.
Djöfull er hann rotinn. Ég vissi náttúrulega að hann væri lyginn en svona........
Djöfulsins fíflið.
Hann er að klína helvítis ógeðinu upp á mig þessi andskotans auli.
A:
Já, Finnst þér þetta hægt? Ég var alveg gapandi og sagði henni líka nafnið þitt og þetta passaði allt. Öll nöfnin pössuðu og hún ætlar að segja Kötlu frá þessu sem ég sagði henni.
B:
Ég næ þessu ekki, hvernig gat hann gert þetta. Þetta sýnir þó að hann veit hvað hann gerði af sér. Ég var farin að halda að hann skildi það ekki því hann er svo djöfulli vitlaus. Hann hefur náttúrulega ekki getað sagt sannleikann, hann hefði aldrei náð sér í neinn kvenman með því að segja hann.
A:
Didda heldur að Katla segi honum upp þegar hún fréttir þetta.
B:
Það væri bara gott á hann. Hann er búinn að vinna fyrir því og fer þá heim til pabba síns aftur. ......
Það var svo sem ágætt að hún losni við hann svo hún lendi ekki í honum eins og ég.
Það er spurning hvort hún trúir þessu því hann er svo helvíti sannfærandi og á auðvelt með að ljúga. Hann hefur oft komist langt á lyginni þó hún komi honum í koll á endanum.
Annars væri kannski mátulegt á hana að reka sig illilega á þar sem hún var að halda við giftan mann, það vissi hún allan tímann. Það er nú örugglega sjaldan gott að treysta manni sem byrjar sambandið með framhjáhaldi og lygi.
Sent at: 26. júlí 2004 15:11:34
Started form at: 26. júlí 2004 15:08:00