15.7.2006


Grænt furðuljós í London




http://netsaga.is/media/files/Morning_Glory.mp3

Grænt furðuljós í London 

 

 

Ég bjó í Englandi í 5 ár og varð þar fyrir undarlegri reynslu eina nótt.

 

Vaknaði við að herbergið var baðað sterku grænu ljósi sem kom að utan.

 

Ég stóð upp og gekk út að glugga, sá bara þetta sterka græna ljós og rétt grilla í húsin og trén, en ekki hvaðan þetta kom.

 

Svo deyfðist ljósið tiltölulega hratt og hvarf og allt varð eðlilegt aftur.

 

Konan sem ég leigði herbergi hjá, sagði mér morguninn eftir að hún hefði orðið fyrir þessu áður en þá hafði hún gengið út í bakgarðinn að nóttu til þegar hún hafði ekki getað sofið fyrir hita og þá hefði allt í einu garðurinn orðið upplýstur þessu græna ljósi.

 

Hún varð sem lömuð um stund, leit upp en sá ekki neitt nema ljósið sem svo hvarf skyndilega.

 

Strax á eftir sá hún 3 diska hátt á lofti sem hurfu á braut.

 

Einu viðbrögðin sem hún fékk voru að hún sæi ofsjónir og hefði verið drukkin!