Döpur ástarsaga úr Hlíðunum. SKYLDULESNING
ÉG OG ÞÚ, VIÐ ÞEKKJUM ÞAU BÆÐI SVO VEL!
Hann sá engan tilgang í lífinu, aldrei fann hann til neinnar gleði eða hamingju.
Hvernig gera á konu hamingjusama?
Hvernig á að kyssa rétt!
http://www.hexia.net/upplestur
Loka Fáfnis reynist ætíð auðvelt að kyssa konur á réttan hátt!
Margar konur hafa lofað kossafimi hans sem honum þykir ekki skrýtið vegna þess að hann kyssir konu eins og hann vill að þær kyssi hann sjálfan.
Hann gætir þess að kossinn verði alls ekki nein tilbreytingalaus langloka.
Ástin er betri hinu öðru sinni -

Hann hlýtur að hafa verið föstudagurinn þrettándi fyrir mig
þessi dagur. Eða virtist mér það bara.? En í raun var hann aðeins týpískur mánu-bla-dagur, fyrir alla aðra en mig. Ég er eina persónan sem ég kannast við sem hlakkar til mánudaganna. Venjulega var ég kominn upp fyrir allar aldir, til þess að ég kæmist vel af stað fyrir vikuna. Ég bókaði mér eins mörg verkefni og ég framast gat til að koma mér í gírinn.
Hvern var ég að reyna að blekkja, þetta var bara aumkunarverð tilraun mín til að draga mig út úr ömurlegum einmanaleikanum heimavið. Helginni varði ég ýmist yfir bókum, nýjum eignum eða við matarinnkaup skyndirétta. En þessi tiltekni mánudagur var algerlega ólíkur en flestir aðrir, allt sem gat farið á rangan veg gerði það.

Það hófst allt við Bónus!!!!!!!!

Eftir að ég hafði verið að vinna við og kynna Netsöguna um tveggja ára skeið tóku "örlögin" óvænt en skemmtilega í taumana við linnulausa leit mína að mínum "betri helmingi".
Á haustdögum 2005 í blíðviðri miklu hafði ég komið mér í góða stöðu við anddyri bónusverslunarinnar Laugavegi og dreifði nafnspjöldum mínum til beggja handa
- ég á því mikla láni að fagna að eiga frábæra vini á ýmsum sviðum atvinnulífsins, þar á meðal feðgana Kristján og Val sem eiga og reka Borgarprent en þeir hafa mér að kostnaðarlausu útbúið og prentað netsögunafnspjöldin í þúsundatali sem ég hef síðan dreift um allar
'Heyrnarlausar hljómsveitir leika í þögn'
Lokanóturnar héngu í loftinu og hurfu mjúklega út í loftið. Heillaðir hlustendur sem voru á annað þúsundið risu á fætur, klappandi og fagnandi.
Á sviðinu brostu hljóðfæraleikararnir. Þeir gátu fylgst með fagnaðarlátunum á andlitum tónleikagestanna. Enginn þeirra gat þó heyrt þau, né þá heldur framíköllin um 'Meira!' og 'Aftur!' Nema stjórnandinn, allir meðlimir hljómsveitarinnar voru gersamlega heyrnarlausir.
Kæri Graf
Stingandi regnið barði áfram einmanalega veruna sem starði eikkað út í vaxandi myrkrið. Ruglingur hjúpaði veiklulega konuna sem velti því fyrir sér af hverju hún kom sífellt á þennan stað þaðan sem var gott útsýni yfir borgina. Hún leitaði ákaflega í minni sínu að ástæðunni. Þruma buldi á hlustum hennar á sama tíma og elding lýsti upp himininn. Það minnti á fyrirboða sem sló henni skelk í bringu og hún tók til fótanna. Hún flýði niður af fjallinu, eftir stíg sem hún þekkti orðið býsna vel á sama tíma og tár hennar tóku að blandast regninu sem rann niður kinnar hennar.
'Húsið'
Húsið
Verið var að afhlaða flutningabílinn. Stór drullug hjólin höfðu þegar troðið á mörgum túlípananum og múrsteinarnir sem duttu af öllum þunga sínum niður á þá gerðu sitt til að skemma restina. Næsti flutningabíll tæki örugglega krýsanþemurnar.
Þetta var fallegur staður rétt fyrir framan húsið mitt, fjöldi trjá og ræktarlegt grænt gras þakti flötina, með túlípanana sem dönsuðu í kulinu. En í dag hafði stór og ljót vél komið og troðið allt undir sínum svörtu fótum. Þeir ætluðu að fara að byggja hús. Stórt, nýtt hús með háum veggjum á staðnum einmitt þar sem hávaxin trén stóðu núna.
Það hófst allt í júlí
Það hófst allt í júlí
Ég var að passa litla frænda minn Kristján á meðan mamma hennar fór á kallafar yfir helgi. Er líða tók á kveldið lagði ég frænda litla í rúm sitt og tók að glápa á imbann.
|
![]() |
| Drífa og Örn í Vesturberginu |
|
Lítið áhugavert var í imbanum þannig að ég ákvað að kíkja Netið í skamma stund. Ég fór á Einkamál.is þar sem ég hef verið að spjalla við vini mína, en af einhverri ástæðu langaði mig til að spjalla við fólk sem fílaði íslenska glímu eins og ég.
|
Blindaður af ást!
Blindaður af ást!
Ég lét loks verða af því að skrá mig á Einkamál.is, reyndar gegn betri vitund. Á þessum tíma var ég nýorðinn 34 og var klár í "slaginn" [aftur]. Mig langaði að hitta góða stelpu - einhverja sem ég gæti elskað og gagnkvæmt. |
Ég og Salvör á meðan allt lék í lyndi.
|
Da Capo
Da Capo
Strembnastar eru langar þagnir.
En þegar hljóð kemur: fuglasöngur; regnið á þakinu; vindurinn næðir um þakskeggið, öfunda ég lögin og taktinn.
Þau minna mig á fortíðina þegar ég einnig hafði mátt hljóðsins og gat lyft hjörtum, styrkt andann og komið tárum fram hjá fólki.
Hverju sinni er hreyft er við minningunum, verður þögnin að neðan meira þrúgandi.
KONA EKKI AF ÞESSUM HEIMI
Þessa helgi hefst leitin að vini og félaga af gagnstæðu kyni að venju um ellefuleytið á föstudagskveldi. Vikan hafði verið venju fremur fljót að líða, þó að spennan jykist með hverjum degi sem nær dró helginni. Sjötta skilningarvitið tjáir honum að hamingjan verði honum sérstaklega hliðholl á þessu góðviðriskveldi í september.
Hann leggur bláa Trabant skutbílnum, þeirri örsmáu plastdós sem þó hentar honum einhleypum ungkarlinum svo ágætavel, á bílastæði handan Ingólfstorgs, áður en hann gerir sig kláran með ilmvatnsskoti í hálsakotið og stroki yfir snöggklippt, skollitt hárið með fingrum hægri handar.
Aftur í Paradís
Lísa horfði út yfir Karabíska hafið, lét hægan andvarann gæla við andlit sitt - augun aftur, volgur hvítur sandurinn á milli nakinna tánna.
Fegurð staðarins var vonum meiri, en nægði þó engan veginn til sefa sorgina sem hrjáði hana er hún minntist síðustu stunda sinna hér.
Ævintýri á útihátíð
Ég hafði verið fyrirmyndarnemandi öll skylduárin í skóla og lokið Landsprófinu með stæl, þriðji efstur á eftir Grétu Páls og Matta Kjartans.
Við Gæi, besti vinur ákváðum að fara í Menntaskólann á Laugarvatni, ásamt nokkrum öðrum bekkjarfélögum; Svenna, Bóa, Bidda, Mumma, Kristínu og Hildi.
Er Loki í Paradís?
Síðdegis þegar þau eru komin út úr glæsilegri flugstöðinni skammt utan við Parad... og inn í rútuna ásamt fjölda landa þeirra tekur unga, sviphreina konan með ljósa liðaða hárið niður á herðar, sér stöðu fremst með hlóðnema í hönd.
Beat-ballið
Ballið er skemmtilegt, viðburðaríkt og örlagaríkt, þar sem sumir finna sér maka fyrir lífstíð. Þ.á.m. Loki sem festir augun á þeirri fallegustu kvenveru sem hann hefur nokkru sinni augum litið.

