Ungur maður, Robert Lincon féll niður á milli tveggja járnbrautavagna á brautarstöðu-inni í Jersy City í Bandaríkjunum.
.
grubbl 20. maí 2008
Ungur maður, Robert Lincon féll niður á milli tveggja járnbrautavagna á brautarstöðu-inni í Jersy City í Bandaríkjunum.
.
Húsinu var afskaplega illa viðhaldið þar sem það stóð uppi af gömlum vana við Hafnargötuna; bárujárnið víða sundurryðgað og tætt.
Við hjónin fórum á Players sl laugardagskveld til að fá okkur snúning eins og svo oft áður.
Er við vorum komin á dansgólfið tók ég eftir náunga sem er ansi þekkt andlit á Íslandi, einkum fyrir skrif sín og afskipti af pólítík.
Hann vangaði af mikilli tilfinningu við konu sem kúrði...
|
Um Söguna Jónas var ekki bara stórkostlegt ljóðskáld, því öll bókmenntaform virðast hafa átt ágætlega við hann sbr. bréf, fræðirit og sögurnar hans, en hann kunni vel að segja góðar sögur. Páll Melsteð sagði um hann: ,,Enginn af piltunum sagði eins vel og hann smásögur, einkum ef þær voru skrýtnar." Um söguna Stúlkan í turninum segir Tómas Guðmundsson í formála sínum að ljóðmælum Jónasar: ,,Þýðingin á Eggert glóa eftir Tieck, Fundurinn eftir Hebel, Stúlkan í turninum, - eru allt tilraunir til að miðla þjóðinni menningarstraumum og stílbragði þeirra bókmennta Evrópu, sem þá voru ferskastar, en þjóðin sem var orðin vanari óhjúpuðum prédikunarstíl en listrænni túlkun, tók slíkri viðleitni með furðulegu tómlæti." (Tómas Guðmundsson bls. XXVI) |
|
Stúlkan í turninum Einu sinni var fátækur fiskimaður og átti sér dóttur; hún var ung og fríð. |
http://www.hexia.net/upplestur
"Lalli, mér er stirt um tungutak!"
Það sem ég vildi sagt hafa var, "Hvað á ég að gera við þetta? Hluturinn sem ég hafði nýlega frelsað úr hommalega rauðgyllta jólapappírnum var plasttaska, um 20 X 30 sm., pakkað tortryggnislega inn í sag. Ég velti honum á milli handa minna, rétt eins og ég dáðist að honum og leitaði einhvers sem segði mér hvað þetta væri.
Þegar ég leit upp sá ég brún augu Lalla lýsa mikilli eftirvæntingu; jafnvel endarnir á löngu yfirvaraskeggi hans virtust titra er hann beið viðbragða minna. "Frábært," sagði ég á ósannfærandi hátt.

http://www.hexia.net/upplestur
Eins og vísir menn vita gjörla liggur leið fólks að þessu lífi loknu um sex himna, áður en það nær í sjöunda himin, þar sem næst hinn langþráði samruni við algyðið, þ.e.a.s. náttúruna.
Fólk þarf að dveljast mislengi í hverjum himnanna sex og getur vist framliðinna orðið hin mesta þrautaganga, en þó sýnu lengst og strembnust í fyrsta himni þangað sem það fer fyrst eftir andlát sitt.

eftir

Síðasta kvöldið í eyðidalnum.
Tilkynningarnar glumdu í eyrunum fyrir Verslunarmannahelgina 2006. Sannir stórtónleikar yrðu haldnir í Fjölskyldugarðinum á laugardagskveldinu 5. ágúst og hæfust þeir kl . hálf níu og stæðu til ellefu. Hljómsveitin yrði Stuðmenn að grunni til en jafnframt myndu koma fram allar sveitir sem meðlimir hennar hefðu leikið með frá því snemma á áttunda áratug tuttugustu aldar; Frummenn, Rifsberja, Spilverk þjóðanna og Stuðmenn ásamt Megasi. Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar er ég heyrði nafnið Rifsberja og hugurinn hvarflaði aftur til menntaskólaáranna á Laugarvatni er við Garðar herbergisfélagi höfðum starfað sem formenn skemmtinefndar skólaárið 1973-74. Veturinn sá hafði svo sannarlega verið viðburðaríkur og skemmtilegur, vegna þess að við sem formenn sáum um að panta skemmtiatriði fyrir nemendur skólans sem og hljómsveitir til dansiballa. Á þessum árum þótti mér það mikil upphefð fyrir mig táninginn að eiga samskipti við heimsfrægar hljómsveitir á Íslandi, töffara sem jafnaldrar dáðu, eins og td. Pétur heitinn Kristjánsson sem gerði okkur þann heiður að koma með okkur upp á heimavist eftir ball og bragðaði hann ma. á Júllanum okkar (hvítölsbruggi).
Karl fann lirfuhýði fiðrildis
Dag einn kom örlitið gat
Hann sat og horfði á fiðrildið stundum saman
Það rembdist við að troða sér út um þetta littla gat.
Þá var sem það gæfist upp
Það var sem það kæmist ekki lengra
Og það komst ekki lengra.
Svo karlinn ákvað að hjálpa fiðrildinu
Hann sótti sér skæri og klippti af
Ég bjó í Englandi í 5 ár og varð þar fyrir undarlegri reynslu eina nótt.
Vaknaði við að herbergið var baðað sterku grænu ljósi sem kom að utan.

Tess var bráðþroska átta ára stelpa þegar hún heyrði foreldra sína ræða um littla bróður hennar, Andrew.
Eina sem hún vissi var að hann var mjög veikur og þau voru algerlega blönk.
Þeir ætluðu sér að flytja í blokkaríbúð í næsta mánuði vegna þess að pabbi átti ekki pening fyrir reikninum læknisins og húsinu á sama tíma.
Aðeins afar kostnaðarsöm skurðaðgerð gæti bjargað honum núna og enginn virtist geta lánað þeim peninga fyrir aðgerðinni.
Með þessum orðum hóf Bjarni miðill Kristjánsson fjölmennan skyggnilýsingarfundinn í troðfullum fundarsal Olíusamlags Keflavíkur og nágrennis í allstóru húsi á hafnarbakkanum í Keflavík.

Þar sem að ég er rithöfundur og bý einn er ég algerlega frjáls að því hvernig ég ver tíma mínum og ekkert setur mér skorður nema ef vera skyldi fjárskorturinn.

Napur vindurinn næðir í hverju skúmaskoti í hrörlegum húskofanum, þar sem hann hangir saman við neðanverða Hafnargötuna í samræmi við gamalt og úrelt byggðarskipulag.
Í einu horninu húkir hann aldinn og hrumur kallinn, þar sem hann lætur huga sinn reika fram og aftur, inn og út.

Sjúkrahús-heilsugæsla, góðan daginn. Hvað get ég gert fyrir þig?
Um stund er eins og hann ætli sér ekkert að segja. Vegna málhelti sinnar sem lýsir sér í afar drafandi talanda, hefur hann tamið sér að vanda sitt orðaval og mæla orðin fram af mikilli stóískri rósemi.