16.7.2006
The Way We All Go
Eins og vísir menn vita gjörla liggur leið fólks að þessu lífi loknu um sex himna, áður en það nær í sjöunda himin, þar sem næst hinn langþráði samruni við algyðið, þ.e.a.s. náttúruna.
The Way We All Go

http://www.netsaga.is/media/files/Svenni-into%20the%20night-edit.mp3
Just as every wise human is aware of we are all headed for a very long journey via six Heavens, when we will die, before reaching the seventh Heaven, where we will get the long desired diffusion with the pantheon, the nature viz.
Our souls will have to dwell unequally long in each of the six Heavens making the departed´s dwelling often quite a hardship, but longest and most difficult in the first Heaven which we will enter right after our death.
The transportation between the Heavens, eg. from the first to the second might take a long period and cannot be reached, until the deceased have proven without a doubt that they are worthy souls which have improven their behaviour and action.
The most important part of this hardship is usually reincarnation, a single or more, that is until the committee in the next Heaven decides whether you have improven yourself sufficiently.
Those of the deceased who will have to return to the pain and anguish the Earth´s dwelling is supposed to be compared to the devine one, won´t recall a thing from their former life.
Save those who have through some kind of an accident been able to ripen their clairvoyance, an ability everybody has somewhere hidden in their brains.
The number of reincarnated people on Earth has become so enormous, that just a tiny few are Earthlings who are beginning their endless journey toward their diffusion with the pantheon.
The people who are just beginners in the devine order, which the Hindoos call Dharma are the ones who seem quite without a worry in their world, so happily free and easy.
On the other hand most reincarnated people are shy and worried.
The built-in fear of making mistakes is elevated proportionally with the number of reincarnations.
The dwellers use their time in the first Heaven as well as possible by following and assisting people down on Earth.
Escorting them like the shadow.
But there´s a catch to this endeavour, mainly that there is no manner for the "shadow" to influence the living, in spite of numerous possible reasons.
Unless either the one in question enjoys clairvoyance or when psychics can be used as agents.
Everyone has their own "shadow", one or more, according to their importance and/or by a decision from "above".
ÓlafurÞórEiríksson:
Leið okkar allra
Fólk þarf að dveljast mislengi í hverjum himnanna sex og getur vist framliðinna orðið hin mesta þrautaganga, en þó sýnu lengst og strembnust í fyrsta himni þangað sem það fer fyrst eftir andlát sitt. 
Flutningur milli himna, t.a.m. frá fyrsta upp í annan getur tekið langan tíma og næst ekki nema framliðnir hafi sýnt og sannað svo ekki verði um villst, að þeir séu verðir þess með bættri hegðan sinni og atferli.
Helstur liður í þeirri þrautagöngu er jafnan endurfæðing, ein eða fleiri, þar til að samráðinu í næsta himni þykir komið nóg.
Þeir framliðinna sem verða að snúa aftur í þá kvöl og pínu sem jarðvistin yfirleitt þykir vera samanborið við himnavistina, muna ekkert eftir sínu fyrra lífi.
Nema þeir sem fyrir einhverja slysni ná að þroska með sér skyggnigáfuna sem býr reyndar einhversstaðar í heilabúi allra karla og kvenna.
Fjöldi endurfæddra á Jörðu er orðinn svo mikill, að einungis örfátt fólk er þar statt í fyrsta sinn á hinni endalausu göngu að samrunanum eilífa við algyðið. 
Það fólk sem er nýtt í skipulaginu sem Hindúar kalla reyndar darma er það sem virðist vera svo áhyggjulaust, kátt og ófeimið. 
Hinsvegar telst mikill meirihluti til endurfæddra og er feiminn og áhyggjufullur. 
Innbyggður óttinn við mistök eykst í réttu hlutfalli við fjölda endurfæðinga.
Vistfólk notar tímann í fyrsta himni eins vel og það getur við að fylgjast með og aðstoða lifandi fólk á Jörðu niðri.
Fylgir því eins og skugginn.
Einn hængur er þó á þessari viðleitni, en hann er sá að ekki er nokkur vegur fyrir "skuggann" að hafa nein áhrif á lifandi fólkið, þrátt fyrir að tilefnið sé margt og mikið.
Nema því aðeins, að viðkomandi sé búið skyggnináðargáfu eða þegar notast er við miðla sem millilið.
Allt fólk á Jörðu á sér sinn "skugga", einn eða fleiri, allt eftir mikilvægi viðkomandi og/eða ákvörðun "að ofan".