22.7.2007


Sigríður Vigdís Þórðardóttir.


Að ljúga eða ljúga ekki!



Dag einn, þegar saumakonan sat og vann á árbakkanum, þá missti hún fingurbjörgina sína útí ána.

 

Hún hrópaði upp yfir sig í örvæntingu og henni til mikillar undrunar birtist Drottinn sjálfur og spurði:

 

-Hvers vegna grætur þú?

 

Saumakonan svaraði að fingurbjörgin hennar hefði fallið í
vatnið og hún þyrfti á fingurbjörginni að halda svo hún gæti aðstoðað bónda sinn við að afla tekna til heimilisins.

Drottinn hvarf ofan í vatnið og kom til baka með gullfingurbjörg.

 

"Er þetta fingurbjörgin þín?"

 

spurði Drottinn.

 

Saumakonan svaraði neitandi og þá hvarf Drottinn aftur í vatnið og kom upp með demantsfingurbjörg.

 

"Er þetta fingurbjörgin þín?"

 

spurði Drottinn en saumkonan neitaði því.

 

Enn hvarf drottinn ofan í vatnið og kom nú upp með silfurfingurbjörg og spurði hvort þetta væri sú rétta og saumakonan jánkaði því.

 

Drottinn var mjög ánægður með sannsögli konunnar og færði henni allar fingurbjargirnar þrjár til eignar að launum, og saumakonan hélt glöð heim á leið.

Nokkru síðar þegar saumakonan var á göngu eftir árbakkanum með eiginmanni sínum, datt hann í ána.

 

Þegar hún hrópaði upp yfir sig í örvæntingu, birtist Drottinn enn á ný og spurði hvers vegna hún gréti?

 

"Æi guð, maðurinn minn datt í ána".

 

Guð stakk sér í ána og kom til baka með Mel Gibson.

 

"Er þetta eiginmaður þinn?"

 

spurði hann.

 

"Já"

 

hrópaði saumakonan.

Drottinn reiddist.

 

"Þú lýgur"

 

sagði hann.

 

"Æ, fyrirgefðu Drottinn, þetta á sér sínar skýringar.

Sjáðu til, ef ég hefði sagt nei við Mel Gibsons, hefðir þú næst komið með Tom Cruise og ef ég hefði sagt nei við honum, þá hefðir þú komið með eiginmann minn.

Ef ég hefði sagt já við honum þá hefðir þú gefið mér þá alla þrjá og þar sem ég er ekki lengur eins hress og ég var þegar ég var yngri hefði ég aldrei getað sinnt þeim öllum þremur.

Þess vegna sagði ég já við Mel Gibson.

Mórall sögunnar:

 

Þegar konur ljúga, er það af heiðvirðum ástæðum og öðrum til heilla.

 

Þetta er okkar skoðun og við stöndum við hana!

 

 

 

                      HUGGUN.

 

             Kæri vinur ég sakna þín,

             ég vildi að þú kæmist aftur til mín.

             En þú ert umvafin ljósi þar,

             eins og þú varst reyndar allstaðar.

 

             Sárt er að horfa á eftir þér,

             en ég veit að þú munt muna eftir mér.

             Því þitt hreina hjarta og bjarta sál,

             munu þerra okkar trega tár.

 

 

Konur yfir fimmtugt, eignast ekki börn. Þær mundu aldrei muna hvar þær lögðu þau frá sér.

Ein ráðgátna lífsins er hvernig 750 gr af konfekti verða 2 kg af konu.

Ég læt hugann reika.., en stundum yfirgefur hann mig.


Besta leiðin til þess að gleyma öllum vandræðum, er að ganga í of þröngum skóm.

Hið góða við að búa í litlum bæ, er að þegar ég veit ekkert hvað ég er að gera, veit einhver annar það.

Með aldrinum verður erfiðara að léttast. Árin, líkaminn og fitan bindast vináttuböndum.

Ég var einmitt að sættast við gærdaginn, en þá kom þessi dagur.


Stundum finnst mér ég skilja allt, en svo kemst ég aftur til meðvitundar.

Ég hætti að skokka mér til heilsubótar þegar hitinn af læranúningnum kveikti í sokkabuxunum.

Undarlegt! Ég hengi eitthvað upp í skáp og eftir smátíma hefur það hlaupið um tvö númer!

Horrenglur pirra mig! Sérstaklega þegar þær láta út úr sér hluti eins og :  Veistu, stundum bara gleymi ég að borða."

 

Sko, mér hefur tekist að gleyma hvar ég á heima, hvar ég lagði bílnum, hvers dóttir mamma er og hvar ég setti lyklana, en ég hef aldrei gleymt að borða.

Hvílík heimska: Að gleyma að borða!

Vinkona mín tók feil á Pillunni sinni og valíuminu sínu. Hún á orðið 14 börn en henni er eiginlega alveg sama.

Vandi sumra kvenna er að þær æsast upp útaf einhverju ómerkilegu og giftast því svo.

Það stóð í grein að dæmigerð einkenni streitu væru: Að borða of mikið, kaupa allt sem manni dettur í hug og að aka of hratt.

Er ekki í lagi með þetta lið?

Þetta er það sem gefur lífi mínu gildi.

Ég hef komist að leyndarmáli fatanna frá Victoria's Secret. Leyndarmálið er að engin eldri en þrítug passar í þau.

Fagnið kvenleikanum!

Sendu þessa síðu (eða rif úr þinni, ef þú ert karl) til
allra geislandi kvennanna í lífi þínu.

 

                Bekkjarafmælið

Ósk Ýr

 

gekk rösklega með

 

Brandi Ara

 

í afmælið til

 

Egils Daða því hún var að verða of sein að sækja

 

Leif Arnar

 

og

 

Loft Stein

 

í leikskólann.

Borgar Vörður,

 

pabbi

 

Egils Daða,

 

tók á móti þeim.

Þarna voru

 

Lind Ýr,

 

Líf Vera,

 

Sól Hlíf

 

og

 

Hreinn Bolli.

Erlendur Hreimur

 

kom blaðskellandi innan úr stofunni og vinkonurnar

Vísa Skuld

 

og

 

Dís Ester

 

fast á hæla honum.

Mýra Þoka

 

lét lítið fyrir sér fara úti í horni.

Innan úr herbergi

 

Egils Daða

 

bárust ógurlegir skruðningar -

"#%=&#$&/(=!z#$!/!=!

Línus Gauti,

 

Barði Vagn

 

og

 

Mist Eik

 

voru greinilega mætt. En hvar var

Ríta Lín?

Fyrir utan var

 

Sædís Líf

 

í rauðum fólksvagni.

Hægt og sígandi nálgaðist

 

Jökla Þoka

 

eftir stígnum.

Hún var orðin alltof sein í afmælið.

 

 

 

                         Höf: Sigríður Vigdís Þórðardóttir.