22.7.2007
Þóra Stefánsdóttir
Lítill drengur stendur niður á strönd Hamingjan er hverful vinur minn, Ég mun ætíð styrkja þig og styðja Lítill drengur læðir kaldri hönd Því ekkert færir föður hans til baka, Þóra frá Brekkukoti
Ljóð
Þóra Stefánsdóttir
Lítill drengur
Ef þú bara vissir
Hvað þú gefur mér,
Elsku litli sæti góði drengur.
Þú ert það besta sem ég á Í þessum heimi hér
Þú veittir mér þann unað
Að elska einhvern aftur
Og bera ást og umhyggju
Fyrir öðrum en bara mér.
Þegar mér er heitt,
Þá gefur þú mér svala.
Og þegar mér er kalt
Þá veitir þú mér yl Þú kveiktir í mér aftur
Móðurást í hjarta
Og gafst mér með því enn á ný
Það dýrmætasta hér.Vertu hjá mér alla tíð
Í hjarta mér litli vinur,
Og heimsins mesta hamingja
Mun þá búa í brjósti mérÞóra frá Brekkukoti.
---------------------------------------------------------------
Vinur
Ég skal gefa þér með mér
Húsið mitt og bílinn minn
Börnin mín og dýrin.
Skíðin mín og skautanaMeira að segja rúmið mitt,
Trén mín og blómin.
Ég skal gefa þér
Himininn og stjörnurnar
Sólina og mánann.
Bláfjöllin og Esjuna
Og Austurríkistindana.Ég skal gefa þér góða skapið
Sem ég erfði eftir hann pabba.
Ég skal gefa þér
Ástina í brjósti mér
Og sjálfa mig meðOg kjark til þess
Að njóta þessa alls
Ef þú bara, ef þú bara
Oh damn it !!!!!!!!!!!!!Ef þú bara elskar mig, þín Þóra.
--------------------------------------------------------
X- ið mitt
Er ég lít hár þitt
Sem fingur mínir léku við
Er ég lít augu þín
Sem sjá mig ekki lengurEr ég lít varir þínar
Sem áður kysstu mig og
Hvísluðu ástar orðum í eyra mér
Er ég lít hina konuna
Sem núna nýtur þessa alls.
Sem rennir fingrum sínum
Gegn um hár þittFær ástartillit augna þinna,
Kyssir varir þínar og heyrir þær
Hvísla, ég elska þig----------
Þá vaknar í brjósti mér svo
Undarleg tilfinning.
Ég elska þig ekki lengurEn--en--en------------------------
---------------------------------------------------------------------
HELGA
Hve mikið hún gaf mér
Þessi lífsglaða stúlka
Er fiðluna þandi og vonina gaf.
Hún leiftraði af lífsgleði
Og sýndi mér fram á
Að trúin á lífið
Er allt sem að þarf.Það er sama hve gömul
Og veikburða verðum
Ef þetta er spekin
Sem trúum við á
Þá veit ég að þetta er það
Sem við verðum , og þetta er
Það sem að við munum fá.-----------------------------------------------
Helena Lítill munnur
Líkur rósu
Gullnir lokkar
Gimsteinn lítill
Glitra augu
Af gleði skokkar
Bros af vörum
Bræðir hjörtu
Barnið hlær
Léttur hlátur
Lífið laugar
Sem lindin tær.Febrúar 1978
Þóra í Brekkukoti
-------------------------------------------
AndriElsku litli hjartans Andri
Ef þú vissir hvað ég elska þig
Þú vekur aftur von í hjarta
Sem var svo mikið að þjaka migAð kanski væri ljósið bjarta
Hreint að yfirgefa mig.
Börnin stækka _ börnin fara
Börnin yfirgefa migÞá kemur þú með ljósið bjarta
Og segir ég megi eiga þig.
Börnin koma og börnin fara
Ég hélt ég væri orðin einÞá kemur þú með brosið bjarta
Opnar þitt litla bjarta hjarta
Og leggur svo fallega kinn við kinn
Á meðan þú vilt hjá mér veraÉg mun reyna að halda í þig
Allt ég myndi fyrir þig gera
til að fá þig til að elska mig.Þóra amma Jan.2000
-----------------------------------------
Ó þú fallna borg.Ó þú fallna borg
Ég geng eftir strætum þínum
augun full tárum,
þíður blærinn vefur þig örmum
grætur með mér
yfir örlögum þínum.Örvæntingarfullur grátur dætra þinna
nísta hjarta mitt
þær gráta yfir týndum sonum.Ó þú fallna borg
blóð og tár renna eftir strætum þínum,
valdafíkn mannanna þekkir engin takmörk,
því þjást börn þín,
því græt ég,
fótatak mitt bergmálar í auðum strætum,
það er hljótt,
dimmt,
það er ekkert ljós framar.Ó þú fallna borg,
Þeir sögðust ætla að vernda þig,
Þú trúðir þeim,
Því gráta börn þín,
synir týnast.Sólin megnar ekki að verma þig,
blóð og sviti renna eftir andlitum sona þinna.Ó þú fallna borg,
Þú sérð aldrei aftur ljós.
Þóra frá Brekkukoti.
------------------------------------------
SonaróðurLjúfir tónar
lífið fylla
ljúflingslag
fiðluhljómar
fjöllin gylla
fagran dag
saklaus augu
sjávarlituð
söngvar óma
saga drengs
í stjörnur rituð
strengir hljóma
lokkafagur
lítill drengur
leikur lag
fagurt hljómar
fiðlustrengur
fagran dag.Þóra frá Brekkukoti. 4. Apríl 1978.
-------------------------------------------------------------
Ó Mamma mínÓ mamma mín
Ég elska þig.
Og ég kem til þín
Ef ég meiði mig.
Því þú ert minn vinur
Sem ég treysti áMamma elsku mamma mín
Alltaf þú getur huggað mig
Hvað sem að bjátar aaaaá
Þá kem ég og tek utan um þig
Og þú kyssir kollinn á.Því þú ert minn vinur
Sem ég treysti á
Mamma elsku mamma mín
Ó mamma mín Ég stór orðinn er
En kem þó til þín
Ef amar að mér
Því þú ert sá vinur
Sem ég treysti á.Mamma elsku mamma mín.
Ó mamma mín
ég gefa vil þér
þá hamingju og gleði
er veittir þú mér
Því þú ert minn vinur
Sem ég treysti á.Mamma elsku mamma mín.
Þóra frá Brekkukoti
-------------------------------------------------
SORG
0g starir votum augum út til ránar,
Lítil telpa heldur í hans hönd
Og horfir á hans æskuvonir dánar.
Hafið djúpa skilar engu aftur,
Það hefur núna hremmt hann pabba þinn
Ó hörmulegur er sá ógnar kraftur.
Og standa með þér hvað sem bjátar á
Við saman skulum fyrir honum biðja
Hann sæll í friði hvíli guði hjá.
Ljúflega að traustri vinu sinni
Þau saman horfa út að sjávarrönd,
Sorgina mun hann reyna að byrgja inni.
Fögur loforð,bænir eða tár.
Hann mun um langar vetrarnætur vaka
Og vekja upp á ný hin liðnu ár.
------------------------------------------------------------
--_-----__________--------------
Lítil saga Lítill drengur á götu kastar steinum í poll
sól að gullnum lokkum leikur
blítt strýkur
blær um vanga Lítil telpa á götu ber brúðu við barm
mild rödd föður hennar segir sögur og ljóð úr ævintýralandi. Árin líða þau eldast og þroskast
ganga grýttan veg ævintýraMætast og læra að skynja söng fuglanna
hvísl golunnar
fegurð fjallanna Þau ganga saman út í vetrarrökkrið
hjörtun full hamingju
leiðast hönd í hönd út í óvissuna
og vona að tíminn færi þeim gæfu og frið. Föðurminning
Ég minningu á um indælan mann
er mildaði hjartasárin
þorið og þróttinn ég hjá honum fann
hann þerraði sárustu tárin. Hann horfinn er frá mér og
hefur á ný heilsuna fengið til baka
hann flýgur nú frjáls þarna himninum í
feginn hjá drottni að vaka--------------------------------------------------
DauðiÉg kvaddi þig kátan að kveldi
og kærleikur streymdi frá þér
er húmaði hjartað þig feldi
og horfinn nú ertu frá mér.26. mars 2005
Aumingja Óli????????..
Stundum gerir lífið að mér gaman
Gagngert til að sjá hvernig mér leið
Svona er lífið stundum elskan hahahahahahaBara til að hlægja að öllu saman
En ég árum saman bara beið og beið.Ég beið eftir að kona myndi koma
Og kynni að vilja elska bara migSvo ég beið og beið og hélt áfram að vona
Að hún kæmi og segði ó ég elska þig.Í einmanaleika mínum, ég horfði bara á þær
Og bað Guð að senda mér svona einaEn hann kann ekki að stoppa, og sendi mér einar tvær.
Hvernig get ég gengið veginn beina ??????????????????????
------------------------------------------------------------------------------