21.7.2007


Jóhanna Halldórs- Kona á kaffihúsi


eftir Jóhönnu Helgu Halldórsdóttur bónda, rithöfund

og skáld sem býr fyrir norðan

Kona á kaffihúsi

Sama kaffihús, daginn eftir.
Sama borð, sami þjónn, sama fólk,
skuggi gærdagsins
leiftur úr mynd.

Í gær þekkti hún þetta allt
tengdist því öllu
var hluti af öllu
var hluti af mynd
var hluti af heildinni hans
var hluti af skarkala kaffihússins
talaði, hló, hrukkaði ennið og benti
skildi eftir rauðan varalit á barmi
öll hljóðin
glamrandi bollapör
kliður raddanna, hláturinn
skarkali kaffihússins
raunveruleiki gestsins
ilmurinn
vindlalyktin
ilmvötnin, bókalyktin
kaffi og brauðilmurinn
ilmur kaffihússins
raunveruleiki gestsins
hún tengdist því öllu í gær
í dag er hún eitt spor til hliðar
til hliðar við heildina hans
þekkir ekki raunveruleikann, hljóðin, ilminn
myndin er ekki í fókus þó hún horfi á
hún talar ekki, hlær ekki né bendir
hún hrukkar aðeins ennið
skilur eftir rauðan varalit á barmi
skugga gærdagsins
á sama kaffihúsi, daginn eftir.

Jóhanna Helga Halldórsdóttir, sept. 2002