17.12.2006
Ritverk þetta má ekki afrita með neinum hætti, svo sem ljósmyndun, -ritun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis höfundar.
UPPRISAN
Erótísk ástarsaga á gráu svæði!
-G-bletturinn fundinn á einfaldan hátt!
skáldsaga
eftir Ólaf Þór Eiríksson
*
Allar persónur og söguefni eru alger uppspuni höfundar og beðist er velvirðingar ef einhverjum þykir nærri sér höggvið fyrir einskæra tilviljun.
Loki Fáfnisson
Fæddist í Bárðarvík 1. júní 1955
Dáinn í Reykjavík 15. nóv. 2001
Útför hans fer fram frá Helguvíkurkirkju.
Erfiðasta hlutskipti móður er að lifa börn sín. Þetta hef ég þurft að gera vegna elsta barns míns, sonar sem virtist sem ungur maður eiga sér all glæsta framtíð, fyrirmyndar námsmaður og vel af Guði gerður í flesta staði, en enginn ræður sínum örlögum, nema að allt of litlu leyti.
17.12.2006
Jarðneskur formáli
-Af hverju ertu svona fjári kynköld kona, spyr vöðvastæltur karlinn hina leggjalöngu og eggjandi eiginkonu sína. Þú ert bara aldrei tilbúin að njóta besefans míns. Ég veit ekki af hverju í ósköpunum þú vildir verða konan mín. Þú virðist aldrei njóta mín eins og aðrar þær konur sem ég hef verið með.
-Ég skil ekki af hverju ég nýt þess ekki að vera með þér, eins mikið og ég elska þig frá dýpstu hjartarótum, svarar kaffibrún fegurðardísin með tárin í augunum og kökkinn í hálsinum. Mér finnst þetta bara ekki eins æðislegt og vinkonur mínar hafa margtuggið oní mig, heldur hin umskorna stúlka áfram, og
svo er ég eitthvað svo þreytt og áhugalaus. Kannski að ég verði æstari í þig, ef ég næ að hvílast aðeins og njóta ylsins af nærveru þinni, og hún snýr sér óðara út að vegg í hringlaga strákofa þeirra.
17.12.2006
Himneskur formáli
Eins og vísir menn vita gjörla liggur leið fólks að þessu lífi loknu um sex himna, áður en það nær í sjöunda himin, þar sem næst hinn langþráði samruni við algyðið, þ.e.a.s. náttúruna.
Fólk þarf að dveljast mislengi í hverjum himnanna sex og getur vist framliðinna orðið hin mesta þrautaganga, en þó sýnu lengst og strembnust í fyrsta himni þangað sem það fer fyrst eftir andlát sitt.
Flutningur milli himna, t.a.m. frá fyrsta upp í annan getur tekið langan tíma og næst ekki nema framliðnir hafi sýnt og sannað svo ekki verði um villst, að þeir séu verðir þess með bættri hegðan sinni og atferli.
17.12.2006
1. kafli
Þessa helgi hefst leitin að vini og félaga af gagnstæðu kyni að venju um ellefuleytið á föstudagskveldi. Vikan hafði verið venju fremur fljót að líða, þó að spennan jykist með hverjum degi sem nær dró helginni. Sjötta skilningarvitið tjáir honum að hamingjan verði honum sérstaklega hliðholl á þessu góðviðriskveldi í september.
Hann leggur bláa Trabant skutbílnum, þeirri örsmáu plastdós sem þó hentar honum einhleypum ungkarlinum svo ágæta
vel, á bílastæði handan Ingólfstorgs, áður en hann gerir sig kláran með ilmvatnsskoti í hálsakotið og stroki yfir snöggklippt, skollitt hárið með fingrum hægri handar.
17.12.2006
2.kafli
Bókasafnið í bænum er bæði nýlegt og stórt og þangað sækir Loki töluvert bæði til að skipta á bókum og til að komast í nýjustu tímaritin. Hægra megin við innganginn eru nokkur bólstruð rauð sæti, borð og nokkrir rekkar, þar sem blöð og tímarit eru geymd niðurflokkuð.
Einu sinni á mánudagsmorgni í ágúst verður honum gengið inn á safnið. Við afgreiðsluna stendur hún Erla starfsstúlka og horfir niður á eitthvað sem hún er að bjástra við, Fjóla ráfar um í reiðileysi, en Hulda gengur í þann mund inn á kaffistofu. Hægra megin situr kona í bláum gallabuxnajakka og er hugsandi yfir einhverju erlendu tímariti. Hár hennar er svart, nokkuð krullað og þétt.
17.12.2006
3.kafli
Loka verður litið inn eftir þéttskipuðum fremsta sal hinnar sívinsælu Kringlu-kráar, þangað sem hann er mættur enn og aftur á laugardagskveldi sem í þetta sinn ber upp á þrettánda degi jóla, 6. janúar. Nú þegar á ellefta tímanum hefur misdrukkið fólk af báðum kynjum í spariklæðnaði mætt snemma á þennan skemmtistað vitandi að kæmi það áður en forn stofuklukkan slægi ellefta högg sitt þyrfti það ekki að punga út 800 krónum í aðgangseyri.
Fyrir þá summu mætti hæglega fá sér væna kollu öls sem hjálpaði fólki við að losna við feimnisdrauginn sem er einn helsti þröskuldurinn í samskiptum kynjanna, hvort sem það er við ný kynni, eða ekki.
18.12.2006
4. kafli
-Ég er nokkuð óánægður með úthald mitt, elskan mín, hvernig hann lyppast oft niður skömmu eftir að inn er komið, segir hann hugsi, þar sem þau liggja saman hvort undir sinni sæng og slappa af eftir enn einn ástarleikinn. Þau eru farin að hittast á hverju kvöldi nánast og geta vart hvort af öðru litið.
"-Ofstæki", nefnir sonurinn hegðun móður sinnar sem er á sextugsaldri. "Þú ert verri en ég, ungur maðurinn, hreinlega aldrei heima." Hann saknaði handaryfirlagningar hennar og stuttrar bænar í þau fáu skipti sem hann svaf heima. Þá svaraði hún einatt með sama hætti: "-Hann er svo góður við mig og mér líður bara einstaklega vel með honum", en hún fór aldrei nánar út í þá sálma, enda kom honum það ekkert við, hvernig hún verði sínum frítíma, fremur en hvað hann gerði með sinni kærustu. "-En hún systir mín er alltaf ein heima, þegar þú ferð til karlsins", reynir hann af veikum mætti að hafa
áhrif á mömmu sína í eigingirni sinni.
18.12.2006
5. kafli
-Krakkarnir mínir eru nokkuð spenntir að fá að kynnast þér, nýjum vini mömmu sinnar.
-Nú þá er bara ekkert annað að gera en líta við í kvöld, elskan, tilkynnir Loki Söru sinni.
Um þetta leyti höfðu þau verið saman u.þ.b. mánuð og höfðu þegar farið tvær ferðir til foreldra hans, þar sem hún hafði fengið frábærar móttökur svo vægt sé til orða tekið og hún meðhöndluð sem prinsessa. Vissulega hefur mikill léttir legið að baki og ánægja yfir því að nú kynni hinn fatlaði sonur þeirra loksins að hafa fundið sér förunaut sem tekur honum eins og hann er; með alla sína duldu galla.
19.12.2006
6. kafli
Gættu þín á henni!
Eitt sinn er Loki og Sara eru nýkomin á dansgólfið á hinum smáa, en notalega bar og dansstað Gullöldinni í Hagkaupsbyggingunni Grafarvogi dansandi að venju sinn samlokudans; hún með sínar hendur á herðum hans en hann sínar um neðanvert mitti hennar, sér hann hvar kunningjakona hans stígur dans með einhverjum herra. Þegar þau horfast í augu gefur hún honum merki um að hún vilji ná af honum tali hið bráðasta.
Þessa konu sem við skulum kalla Tinnu hafði Loki dansað við á Kringlukránni nokkrum mánuðum áður en hann hitti Söru. Svo vel fór á með þeim í dansinum, að þau dönsuðu saman lokalagið í þéttum faðmlögum sem lauk með djúpum og ástríðufullum kossi.
20.12.2006
8. kafli
Loki kemur Söru til síns heima og er þau kveðjast með einum mömmu- eru þau ákveðin í að halda áfram að vera aðeins vinir, þangað til aðstæður í hennar lífi hafa lagast. Þau ætla sér á Akureyri um aðra helgi á Trabantinum hans Loka.
Á leiðinni heim í Vesturbergið er Loki kátur mjög, alveg viss um að endalokin séu ekki komin enn, langt í frá...
Um níu-leytið hringir síminn, en að loknu símtalinu hrynja háar spilaborgir Loka Fáfnissonar enn á ný.
Það á ekki af þessum náunga að ganga.
Hvar er réttlæti heimsins?
Hvers á hann sífellt að gjalda?
20.12.2006
9. kafli

Breiðholtslaugin er sannur unaðsreitur fólksins sem hefur uppgötvað hana og samanstendur af tuttuguogfimm metra langri og átta metra breiðri lauginni sem er mikið notuð af þeim sem vilja hreyfa sig á afslappaðan máta í volgu klórblönduðu vatni; grunnum buslpotti, þar sem yngstu gestirnir fá spriklað og leikið sér og umlykur nær turninn, þar sem gæslumaður er á vakt; litlum potti með ylvolgu vatni og steinsteyptum bekkjum til að sitja á; potti með vel heitu vatni og fjórða pottinum sem er þeirra stærstur með ylvolgu vatni og er rómaður um alla borg sem besti nuddpotturinn, enda mikið notaður af fólki með eymsli í vöðvum, enda hópast það hingað til að fá bót sinna meina. Auk þessa eru þrjú gufuböð.
20.12.2006
10. kafli
Morguninn eftir að Sara kemur heim hringir Loki í hana í vissu þess að börnin séu hvorugt heima.
-Halló, svarar lágstemmd sópran-röddin við sjöundu hringingu skv. venju.
-Hæ, hvernig var, spyr hann djúpum bassa.
-Alltílæ.
-Betri en okkar ferð?
-Svo sannarlega ekki.
-Ég er einn heima. Viltu ekki líta inn?
-Ég kem kl. eitt.
Voðalega ætlar þetta að verða erfitt að koma henni út úr lífi hans, stynja þeir báðir Adolf og Delanó.
Ástin lætur ekki að sér hæða, bæta Katrín og Andrea...
20.12.2006
11. kafli
Mörgu sinni þegar Loki hefur verið að kynna sig fyrir ókunnugu fólki, t.a.m. afgreiðslufólki eða tilvonandi nemendum sínum hefur hann verið inntur eftir því hvort hann sé útlendingur, eða hvaðan hann sé eiginlega. Það skeði einmitt um daginn er hann var staddur í stórverslun Debenhams í Smáralind,
snyrtivörudeild og spyr afgreiðslukonuna, hvort hún geti ekki bent sér á góð ilmvötn fyrir karla og hún þjónustulundin uppmáluð lætur sem hún hafi haft kartöflu í eyrunum, því að í stað þess að taka til greina spurninguna frá viðskiptavininum tilvonandi dregur hún út skúffu í glerborðinu, þar sem er ógrynni ilmvatna fyrir konur, já kvenkyn en ekki karlkyn og hún lyftir
þegar upp forláta öskju sem hefur að geyma fallega litla flösku.
20.12.2006
12. kafli
Draumur sem Loki hafði átt í hugskoti sínu var að elskast úti í náttúrunni og um miðjan maí rættist loks þessi draumur sem var tekinn að þjaka hann á sinninu.
Á miðvikudegi, þegar veðrið er eins og best verður á kosið um þetta leyti ársins ákveður Loki að bíða utan skólans í lok vinnudagsins í þeim tilgangi að bjóða unnustunni í bíltúr upp að Esju.
Hún tekur boðinu auðvitað fegins hendi, því að einn kostanna við að eiga sér kæran "vin" er að geta gengið hönd í hönd úti undir beru lofti. Fátt er ömurlegra en að neyðast til að njóta undra náttúrunnar einn á báti, að geta ekki leitað uppi t.d. fimm blaða smára í sameiningu eða skeggrætt á staðnum ýmsar breytingar á náttúrunni. Af þeirri ástæðu eru gönguklúbbar svo vinsælir sem raun ber vitni.
20.12.2006
13. kafli
Snerting er nauðsynleg fullorðnu fólki, en þó einkum börnum sem munu hafa eftir það sem fyrir þeim er haft. Þau munu því fullnægja snertingarþörf og hlýju sem þeirra eigin börnum verður nauðsynleg.
Snerting getur t.a.m. verið í formi faðmlags sem er mjög gott, þ.e. jákvætt og hvetjandi fyrir alla hvenær sem tækifæri gefst til.
Líkamleg snerting, s.s. faðmlag, handaband eða koss er nauðsynlegt fyrir sálarheill manna, karla og kvenna.
20.12.2006
14. kafli
Eftir að Sara kom heim eftir landaflakk sitt með foreldrum sínum, systur og systursyni hélt hún áfram að sækja Loka heim, eins og ekkert hefði í skorist, nema hvað leynilegir fundir þeirra fóru fram eftir hádegi, á milli 13 og 17, á meðan afkvæmin voru við sumarvinnu sína. Um helgar þóttist Sara dveljast í foreldrahúsum, en var auðvitað hjá sínum leynivini.
Eitt sinn að kveldi ákveður Loki í flumbrugangi sínum og hömluleysi að sækja þau heim, rétt eins og hann hafði svo oft gert fyrir spánarferðina.
20.12.2006
15. kafli
Fátt bar til tíðinda á ættarmótinu, sem átti að verða vendipunkturinn í lífi og samskiptum Loka og Söru. Mótið fór vel fram og lítið var um uppþot, eins og nærri má geta, enda var lítið neytt af hinum sterkari efnum.
Ættmennin voru hin prúðustu í öllu sínu atferli. Eitthvað á annað hundrað manns sótti mótið sem haldið var í Landbroti, V-Skaftafellssýslu, þar sem eitt ættmennanna hefur ásamt fjölskyldu sinni komið upp glæsilegri gistiaðstöðu í sumarhúsum og fyrirmyndar tómstundaaðstöðu; golf, hestamennsku, samkomustað fyrir veislur og dansleiki og einnig er unnt að
renna fyrir silung á staðnum.
21.12.2006
16. kafli
Hann er einn heima og lætur sér leiðast yfir útþynntri dagskrá
sjónvarpsins, en þá hringir síminn aldrei þessu vant. Hann teygir sig í hann, virkilega hress með þessa truflun, ef til vill er þetta ein hinna þúsunda kvenna sem hann hafði fengið nafnspjaldið sitt, og viti menn.
-Há ar jú, Loki, og hann kannast óðara við hæga negraskotna enskuna.
-Am fæn, böd há ar jú, Mabisku. Loki man gjörla eftir þessari getnaðarlegu blökkustúlku.
Enn og aftur er hann staddur á Kringlu-kránni...
22.12.2006
17. kafli
Á september-mánudegi um kaffileytið leggur Loki leið sína í Kringluna, eftir að hafa fyllt tankinn á ÓB-bensínstöðinni á Miklubraut vegna nokkurrar lækkunar deginum áður. Leggur bílnum á neðra planinu er hann hafði eftir nokkra mæðu fundið stæði. Gengur síðan inn um glæsilegan snúningsinnganginn
og kemur inn í glæsta sali, þar sem fólkið ráfar stefnulaust um í tugavís.
Matvörumarkaður Nýkaups er á vinstri hlið, en beint framundan upplýsingabás og veitingastaður Kaffitárs, þangað sem hann gengur. Tárið er staðsett, þar sem í upphafi var gosbrunnur og þess vegna er þessi rómaða kaffisala í gryfju.
Utanum staðinn hefur verið reist smekklegt tréverk og þangað er gengið niður tröppur á tveimur stöðum.
Hann staðnæmist við verkið og ...
22.12.2006
18. kafli
Um vorið hafði Loki lagt inn umsókn vegna kennslu og umönnunar sex ára stráks sem bundinn var hjólastól og stundaði nám í fyrsta bekk grunnskóla. Ýmsar kvaðir fylgdu starfinu t.a.m. bleiuskipti og sundlaugarferð. Hann var boðaður í viðtal með skólastjóra og aðstoðarkonu hans. Lyktir urðu þær að
Loki fékk ekki starfið.
Þegar Loki Fáfnisson er einn orðinn aftur og einmana í sínu kvenmannsleysi rámar hann í umsóknina í kennarastöðu sem enn liggur fyrir skólastjóranum í fyrrgreindum skóla sem höfundur vill ekki nefna að svo stöddu. Þar sem að grá vinna er í algeru lágmarki um þetta leyti nýhafinnar aldar vill hann reyna sitt ýtrasta til að fá stöðu sem fullgildur kennari og fá þannig aukið tekjur sínar að einhverju leyti í þeim tilgangi að fá betur framfleytt sér og ef til vill fengið ögn meira af lífsins lystisemdum. Eins og allir ættu að vita er líf öryrkjans ekki beint neinn dans á rósum.
Loki sem hefur gegnum tíðina þurft að rita vælubréf í allskonar tilgangi, t.a.m. vegna ýmissa undanþága sem hann hefur að lokum fengið.
22.12.2006
Endalokin...
Síðasta viðverudaginn ber upp á þriðjudaginn 31. október, en enginn kennari boðar forföll, þannig að Loki situr á kaffistofu kennara yfir Lifandi vísindum, því skemmtilega tímariti. Verkirnir eru orðnir svo yfirþyrmandi, að ekki duga færri en fjórar sterkustu töflur við hverja inntöku.
Fyrstu helgina í nóvember helgar Loki sonum sínum þrem þeim Einvarði sem er elstur, Játvarði og Lofvarði. Faðirinn gætir þess að láta ekki uppi hversu sjúkur hann er, en það reynist honum sífellt örðugra, einkum gagnvart Játvarði sem býr hjá honum. Með ótrúlegum hætti tekst honum þó hið
ómögulega, enda hefur honum í gegnum mörg ár erfiðleika tekist að ná einstakri hæfni við að halda uppi brosandi grímu hins áhyggjulausa manns sem lífið virðist brosa við.
22.12.2006
...eða hvað?
Við gátum því miður ekkert gert, verður þeim þremur hugsað til Hans sem stendur eða liggur fyrir framan þau. Þeim þykir erfitt að greina hvort er vegna þess hversu hrikalegur útlits hann er orðinn, er þau horfa í augun sem eru djúpt sokkin í spikuðu andlitinu. Andarnir þrír og drottinn þeirra eru stödd á milli öftustu bekkjanna Í þéttskipaðri Helguvíkurkirkju, þar sem
klerkurinn er að jarðsyngja Loka heitinn Fáfnisson, sem liggur andvana í þunnri hvítri furulíkkistunni sem hulin er miklu blómahafi og stendur fyrir miðju fremstu kirkjubekkjanna.
17.7.2007
Síðdegis þegar þau eru komin út úr glæsilegri flugstöðinni skammt utan við Parad... og inn í rútuna ásamt fjölda landa þeirra tekur unga, sviphreina konan með ljósa liðaða hárið niður á herðar, sér stöðu fremst með hlóðnema í hönd.
Hún kynnir sig, segist vera starfsmaður Ofurferða, sé búsett í borginni ásamt innlendum eiginmanni sínum og sé ráðin til að aðstoða ferðamennina.
Hún kynnir þær ferðir með leiðsögumanni sem ferðafélagið býður upp á, auðvitað gegn aukaþóknun, m.a. upp á hæðina þangað sem hún bendir, en þar sé stórt og mikið nunnuklaustur sem vert er að skoða;