Vafra um hugans fylgsni og sýt,
velti mér upp úr mistakahít.
Sjálfstraust-Kolbrún Baldursdóttir
Tveir menn samferða.
Tveir menn samferða.
Um flugslysið á Snæfellsnesi 28. nóvember 1941 og sagnir tengdar því.
Í lok nóvember árið 1941 fórst bresk sprengjuflugvél í fjöllunum fyrir ofan Kolgrafafjörð á Snæfellsnes og með henni 6 ungir flughermenn. Þeir létu líf sitt ekki aðeins fyrir ættjörð sína, þeir börðust einnig fyrir Ísland í þeim skelfilega hildarleik sem stríðið við vítisvél Hitlers var. Þessi atburður vakti óhug þeirra sem á einn eða annan hátt komu að slysinu og var harkaleg áminning um skelfingu styrjaldarinnar. Nær ekkert hefur þó verið fjallað um þetta flugslys þótt ýmsar sögusagnir séu þó á sveimi er tengjast því og enn séu menn til sem muna þessa atburði. Hér verður þessi saga sögð eins og heimildir segja til um.
221. flugsveit konunglega ...
Heilablóðfall
Það sem þú þarft að vita um heilablóðfall!
Svona fyrst að við erum að tala um heilsumál hérna inni....
Vona að mér fyrirgefist og að þetta flokkist ekki undir ruslpóst...
Blóðtappi í heila - lesa og læra um einkennin
BTL (brosa, tala,lyfta)
Heilablóðfall : Munið ÞRJÚ FYRSTU SKREFIN
Aðrar víddir
ÓlafurÞórEiríksson:
Aðrar víddir

Kenningar hafa verið uppi um aðrar víddir í mörg ár, og er í raun hornsteinn margra trúarbragða.
Jafnvel Albert Einstein hugleiddi möguleikann á því að annar alheimur væri til samhliða þessum.
Vísindablaðagrein sem hét "Óséðar víddir alheimsins" og var birt í ágúst 2000 gerir ráð fyrir því að vísindalegar sannanir fyrir tilvist annarra vídda hafi komið fram innan næstu 10 ára!
Ljóð eftir A á Vesturlandi
Ljóð eftir A á Vesturlandi
Framtíðin farsæl er NÚ
ÁÐAN er fortíð að baki.
Hvaðan ert þú
Hvernig er sú
veröld er viltu´ að þér taki.
kveðja A
Verkstjóra-vísur af Suðurlandi
Verkstjóra-vísur af Suðurlandi
Eitthvað hef ég verið ónákvæm þegar ég sagði frá en þessi kveðskapur og vísur eru eftir marga karla og læt ég hér flakka eina frá 1934 en þá var allt með öðrum hætti.
Er þá belja yksna nú
engu dútli ég nenni
á morgun held ég minni kú
mun það nægja henni.
Laufey Theodóra Ragnarsdóttir
Laufey Theodóra Ragnarsdóttir
LJÓÐ
Ein sat ég við gluggan minn
kom þá drottinn inn
kondu herna vina mín.
Ég er komin inn
Ef þú átt leið á Siglufjörð
komdu þá við á Myllukoti
Kári Harðarson
Ár var alda...
eftir Kára Harðarson
Þegar Ásbjörn kom heim var íbúðin tóm.
Hún var ekki bara tóm heldur tómtóm:
Það voru engir veggir og ekkert gólf og Ásbjörn hafði næstum dottið í ginnungagap, en hann greip í hurðarhúninn og það bjargaði honum frá einhverju
sem enginn veit hvað var.
Íbúðin var orðin eins og félagsheimilið
Marta Gunnarsdóttir
Skilaboð
Vinkvennaspjall
A:
Veistu bara hvað, þegar ég var í vinnunni í dag sagði hún Didda í afgreiðslunni mér frá vinkonu sinni sem var að kynnast manni sem skildi nýlega við konuna sína. Það var ótrúlegt að hlusta á hana því hann hefur lent alveg eins illa í þessu og þú. Konan hans var alltaf úti að skemmta sér og hann varð að vera hjá börnunum öll kvöld og allar helgar þegar hann var ekki í vinnunni.
Hún var alltaf á fylleríi og skipti sér ekki af börnunum, hún þoldi þau ekki.
Heidi Soosalu
Maðurinn minn er amaba"
eftir Heidi Soosalu
(Heidi er finnskur jarðfræði-doktor búsett í Reykjavík)
Að minnsta kosti elska ég hann mjög heitt. Og ég trúi að hjónabönd ólíkra tegunda séu ekki ólögleg. Enginn getur álasað mér að hafa gert það sem ég gerði, alla vega; hvernig átti ég að hafa vitað það að óreyndu. Ég efast um að hann hafi vitað það sjálfur í upphafi. Hann heillaði mig strax við fyrstu kynni. Hann var svo ólíkur öllum öðrum.
Jóhanna Helga Halldórsdóttir,
Síðasta kvöldið í eyðidalnum.
eftir Jóhönnu Helgi Halldórsdóttur bónda, rithöfund
og skáld sem býr fyrir norðan
Hann beið þarna ennþá hjá gamla malarnáminu. Hann var búinn að bíða lengi í bílnum, alltof lengi, og hann hálfvegis fyrirleit sjálfan sig fyrir að fara ekki bara. Hún var með öðrum, hann vissi það, fann það í öllu og öllum, fann eins og óþekkt afl væri ýtandi honum í burtu frá henni. Það var eins og væri verið að búa til pláss í kringum hana í loftinu, í tilverunni, hreinsa hann út og nú beið þetta nýja pláss eftir að hinn maðurinn nýtti sér það, yfirtæki hans sess í tilverunni. Hann fann það jafnvel inni í bílnum þar sem hann sat í kuldanum, að lyktin hennar var að yfirgefa hann líka, hverfa smátt og smátt, hugsanir hennar og hlátur voru víðsfjarri honum og bílnum hans, tilveru þeirra og framtíð þeirra.
Bílljós.
Bíladella
Komið þér sælir koppa smiður,
koppinn vil ég fá hjá yður.
Í koppi þessum er góður viður,
verið þér sælir koppa smiður.
Svo er vísa eftir Þuru ...
Kjartan Jónsson
Skugginn í Paradís
eftir
Kjartan Jónsson
(Vinum Indlands)
Klukkan hálf sjö á aðfangadagsmorgun vaknaði ég við píp úr farsímanum, á þessum slóðum þjónaði hann eingöngu hlutverki vekjaraklukku. Ég var staddur á hóteli í Rongo, smábæ í austur-Kenýa, síðasta viðkomustað mínum og félaga míns Ken Amittou, á leiðinni frá Kisumu, heimaborg Kens, til Sindo, smábæjar við Viktoríuvatn. Þaðan var ætlunin að sigla út á vatnið til eyjarinnar Remba. Tilgangur ferðarinnar var að heimsækja hópa sjálfboðaliða Húmanistahreyfingarinnar sem Ken starfar með.
Ari T Guðmundsson
SKÓGARKVÖLD VIÐ ELD
Höfundur: Ari Trausti Guðmundsson
Ég hitti hann í skóginum fyrir austan fjöllin þar sem árnar breytast úr háræðum landsins í slagæðar. Hann tók á móti mér í rjóðri við árbakkann þegar ég steig á land úr eintrjáningnum, feginn að vera laus við bræluna úr suðandi utanborðsvél bátsins. Hann gekk til mín niður leirbakkann, ofan eftir skugga af risastóru kapok-tré. Það breiddi úr fullkomlega svepplaga krónu móti heiðum himni að baki hans. Við tókumst í hendur, laust eins og indíánar gera. Þétt handtak er merki um yfirgang.
Nú sátum við hjá litlum, logandi viðarkesti ...
Jónas Helgi
Eyjólfsson
Kæri Sáli!
Maður nokkur að nafni Jónmundur Sigurðsson ákvað að fara til Sálfræðings að ráði atvinnurekanda síns, en Jónmundur hafði farið frekar illa út úr skilnaðarmáli við konu sína sem hann hafði verið kvæntur í um 20 ár og hér fer á eftir stutt samtal sem hann átti við sálfræðing sinn: Jónumund nefnum við M: og sálfræðinginn S:
Jónmundur mætir á réttum tíma kl.11.00 að morgni, klinikdama tekur á móti honum og vísar honum að dyrum sem hún opnar og segir frekar hratt JÓNmundur er mættur gjörðu svo vel, og Jónmundur gengur inn.
S: fáðu þér sæti þarna á bekknum Jón
Laufey Ingólfs-Klementína
Fjarðlægð
Svo sárt við skilnað hér,
stundarsakir eilífð er..
lífið ei svo ljúft hjá mér,
lýgur þegar enginn sér.
Fjarðlægðin fráhrindandi þér,
foreldrar hömlun mér...
Kökk í kjafti mér ber...
Ljósbráin
samkvæmt mannalögum.
Þess vegna er ég miður mín
á mán. og þriðjudögum
Aðalsteinn Jónsson
Raindrops in my face as I watch you
fade away
I know I won't get you back, but I pray
The pain has a mirror and is pointing
at me
Probably beause I've been blind and is
trying to make me see
That you and I were never ment to be
Alone standing in the rain
My heart is filled with lonelyness and
pain
Þóra Stefánsdóttir
Ljóð
Þóra Stefánsdóttir
Önd kemur inn á bar og spyr barþjóninn: "Áttu brauð"?
Barþjónn: "Nei".
Önd: "Áttu brauð"?
Barþjónn: "Nei".
Önd: "Áttu brauð"?
Sólveig Einarsdóttir
I. Regnbogastúlkan
Í sólskinslandinu Ástralíu, langt, langt inni í landi óravegu frá sjónum, býr lítil stúlka sem heitir Yuluwirree.
Yuluwirree er hvorki mjó né feit.
Hárið er súkkulaðibrúnt og augun tinnudökk.
Í skólanum klæðist hún ljósbláum, köflóttum kjól eins og allar hinar telpurnar.
Katrín Ósk Jóhannsdóttir
Katrín Ósk Jóhannsdóttir
Mín lífsganga.
Hvað skal gera er sólin ei skín
hvað á að gera er ljósið dvín
þá skal ég aðeins biðja til þín
um það að sólin komi til mín.
Því örlögin öll eru í hendi þér
Hrönn: Léttmeti
Í sumarfríi
Hjón í sumarfríi fóru í bústað við Þingvallavatn.
Eiginmanninum fannst best að veiða við sólarupprás.
Konunni fannst gaman að lesa.
Einn morgun snýr eiginmaðurinn aftur eftir nokkurra klukkustunda veiðar og ákveður að leggja sig.
Þó konan þekki ekki vel til á Þingvöllum ákveður hún að fara á bátnum og sigla út á vatnið.
Bjarkardálkur:
London 1984.
Það virðist vera svo langt síðan.
Ég fór sem au pair til London vann fyrir forríkan mann á Oxford street.
Áður en ég kom hafði ég enga vinnu gisti bara hjá vinkonu sem var au pair hjá gyðingum.
Þau voru svo ströng að hún varð
Undirspilið-ókunnur höfundur
Hún hafði góðan tíma og ákvað að klæða sig smart og snyrta sig fallega. Útvíðu mjaðmabuxurnar voru í sérstöku uppáhaldi í klæðaskápnum þessa dagana og sama gilti um fjólubláu skyrtuna. Hún virti sig fyrir sér. Já, þetta var smart. Vantaði bara svörtu támjóu skóna og þá yrði þetta fullkomið.
Hún fór inn í baðherbergi og hreinsaði andlitið, bar á sig meik og smá púður til að festa það, setti hvíta línu í augabrúnirnar innanverðar, bar beige augnskugga á augnlokin og tók svo svarta augnskuggann og bjó til línu með honum í kringum augun. Maskarinn rammaði augun endanlega inn. Hún náði í varalitinn og glossið, horfði á þá smá stund og velti fyrir sér hvorn hún ætti að nota. Báðir voru dökkir og klæddu hana mjög vel. Hún ákvað loks að nota glossið, varirnar urðu svo þurrar af að nota varalitinn.
Hanna Magnúsdóttir
Skútan er lent...
Morguninn roðnar af fegurð sólarinnar og örfá ský teikna bústna bólstra á annars heiðan himininn.
Loftið er tært eftir regnskúr næturinnar og anganin í loftinu ljúf.
Öldurnar kyssa hvítan sandinn og hvísla ástarorð er þær kveðja á ný.
Þær heilsa og kveðja.
Sigríður V. Þórðardóttir
Dag einn, þegar saumakonan sat og vann á árbakkanum, þá missti hún fingurbjörgina sína útí ána.
Hún hrópaði upp yfir sig í örvæntingu og henni til mikillar undrunar birtist Drottinn sjálfur og spurði:
-Hvers vegna grætur þú?
Svava Strandberg
'en orðstír deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.'
Hún lá endilöng á gangstéttinni í Bankastræti og
skrifaði nafnið sitt á grasið við götukantinn.
Hún skrifaði með rauðu bleki svo nafnið væri vel sjáanlegt
á grænu grasinu.
Hún var ekki í neinum fötum en
Grænt furðuljós í London
Ég bjó í Englandi í 5 ár og varð þar fyrir undarlegri reynslu eina nótt.
Vaknaði við að herbergið var baðað sterku grænu ljósi sem kom að utan.
"Saga Elísabetar - Heimilislaus!"
Það er erfitt að trúa því að Elizabeth, gáfuð og glaðlynd 17 ára hafi alist upp án eigin heimilis.
Eftir hennar langa og erfiða ferðalag
aðeins með sitt jákvæða viðhorf að leiðarljósi
segir Elísabet frá því hvernig hún komst loks "HEIM".