13.8.2008
Nýjar leiðir í baráttunni við Krabba
Nýjar aðferðir í baráttunni við Krabba? Það eru engar töfrakúlur í baráttunni við Krabba: Það er það fyrsta sem hver ábyrgur vísindamaður segir þegar í tal berst möguleg lækning, hversu lofandi sem hún kann að virðast vera. En væri töfrakúla til gæti hún verið eitthvað í líkingu við dichloroacetate, eða DCA, lyf sem banar krabbafrumum með því að notfæra sér veikleika í margskonar æxlum. Eins og er drepur hún þær aðeins í tilraunaglösum og rottum sem hafa verið smitaðar með mennskum krabbameinsfrumum; það hefur aldrei verið notað í manneskjum. DCA ... er lyf sem hefur tiltölulega litlar aukaverkanir. Einnig, að það er lítil sameind sem gæti mögulega gefist vel í stríðinu við heilaæxli sem erfitt er að eiga við. Innan nokkurra daga eftir að tæknileg grein um DCA birtist í tímaritinu Krabbafrumur í síðustu viku, helltust yfir aðal höfundinn Dr. Evangelos Michelakis við Albertaháskólann símtöl og Ímeilar frá tilvonandi sjúklingum sem hann gat ekki svarað öðruvísi en "Hafið biðlund." DCA er ákaflega einföld sameind. Hún virkjar í líkamanum hvatbera ( mitochondria). Rannsakendur hafa ætlað að hvatberar í krabbafrumum hafi skaddast ólæknanlega. En Michelakis efaðist um það. Með aðstoð félaga sinna notaði hann DCA til að virkja hvatbera í krabbafrumum-sem drápust í kjölfarið. Eitt af því besta við DCA er að það er einfalt efnasamband sem yrði afar ódýrt í framleiðslu. En það er líka vandamál vegna þess að stóru lyfjafyrirtækin vilja ólíklega eyða miklum fjárhæðum á þróun lyfs sem ekki er unnt að fá einkaleyfi á. Aths: Takk Newsweek fyrir að birta þessa grein um hugsanlega krabbalækningu. Hvers vegna hafa ekki aðrir fjölmiðlar greint frá þessari stórfrétt? Taktu eftir að jafnvel Newsweek viðurkennir að stóru lyfjafyrirtækin séu ekki spennt fyrir að finna lækningu við krabba nema því aðeins að þau geti grætt á því. Suma grunar jafnvel að fyrirtækin hafi jafnvel haldið aftur af krabbalækningum sem fundist hafa.
2007-01-23, Newsweek
http://www.newsweek.com/id/70212