25.6.2008
Typpastærðir
Hvað er eðlileg stærð á kynfæri karlmanna?
Það hlýtur að vera eins með typpastærðir og allt annað; þær eru mismunandi.
Svipað lögmál gildir með kynfæri kvenna; leggöng eru mismunandi að stærð og lögun.
Inni í sumum leggöngum líður sumum typpum eins og í himingeimi en önnur eru þröng.
Einu sinni í búningsklefa Laugardalslaugar sá ég miðaldra karlmann með álíka lítið typpi og það minnsta á myndunum hér að ofan.
Með honum voru þrír ungir drengir sem auðsjáanlega voru synir hans og mikil glaðværð einkenndi þá feðga.
Málið er að við verðum að sætta okkur við það sem við höfum og gera sem best úr því.
Mundu að það sem skiptir máli í kynlífinu er ekki stærðin heldur miklu frekar hvernig þú kemur fram við maka þinn af ástúð, tillitssemi og hugmyndaauðgi.