17.6.2008
Er satt að Guð hafi skapað heiminn allan?
http://netsaga.is/media/files/Last_Call.mp3
Er satt að Guð hafi skapað heiminn allan?
Í Biblíu kristinna karla og kvenna stendur ritað að Guð Almáttugur hafi skapað himin og jörð; allan heiminn með manni og mús.
Hann hlýtur þá að hafa skapað hið góða og hið slæma.
Ég heyrði Geir okkar ástsæla forsætisráðherra þakka guði kærlega fyrir að enginn skyldi hafa farist í jarðskjálftunum á Suðurlandi.
Í barnslegri einfeldni minni spurði ég, en hver skapaði jarðskjálftana.
Eru sumir hverjir að reyna að drepa með hægri hendi en bjarga með þeirri vinstri?





