14.6.2008
Einmanaleiki og samskiptaleysi er að fara með samfélagið í hundana, en er Skype lausnin?
Til þess að bæta ástandið legg ég til að við hlöðum öll inn samskiptaforritinu www.skype.com sem er miklu meiri “guðsgjöf” en nokkuð það sem hin einskisnýtu trúarbrögð hafa og geta fært okkur. Þrátt fyrir og kannski vegna trúarbragðanna hafa stríð geisað um allar jarðir frá því elstu menn muna, eða þannig. Samskiptaleysi á milli fólks, bæði innanlands og milli landa elur á tortryggni. Tortryggni sem getur og hefur oft vaxið svo óstjórnlega að fólk og þjóðir hafa tekist á með hræðilegum afleiðingum, eins og dæmin sanna. Skype gæti orðið til þess að fólk um allar jarðir ræðist meira við, kynnist þannig hvert öðru og geri sér vissulega grein fyrir því að öll erum við eins og stefnum að sama marki: Betra og ánægjulegra lífi. Hvað er Skype? Skype.com er frítt samskiptaforrit sem gerir fólki um allar jarðir og lönd kleift að eiga ókeypis samskipti, samtal á netinu, ræða saman í heyrandi hljóði. Hvernig er þetta hægt? Langi þig að vita meira eða eigir í erfiðleikum við að tengjast þessari “guðsgjöf” skaltu bara hafa samband við mig um netsaga@netsaga.is Dæmi um kosti Skype: Konan mín á dóttur og fjölskyldu úti í heimi. Þar til báðar fjölskyldur höfðu tölvuvæðst voru samskipti bæði stutt og strjál. Nú fær maður hlustað á glaðsinna og -væra rússana spjallandi saman tímunum saman og allt frítt, Nova hvað? Maður skráir sig og getur jafnvel aflað nýrra vina.
Einmanaleiki og samskiptaleysi er að fara með samfélagið í hundana, en er Skype lausnin?
Af hverju er svona mikill einmanaleiki og samskiptaleysi í samfélögum heimsins?