12.6.2008
Geimfarar prófa kynlíf í geimnum - en hreyfðist Jörðin?
Geimfarar prófa kynlíf í geimnum - en hreyfist Jörðin?
Bandarískir og rússneskir geimfarar hafa stundað kynlíf í geimnum í þágu vísindanna og var tilgangurinn að kanna þol manna utan andrúmsloftsins.![]()
Kynlíf í geimnum er alvarlegt mál og þær tilraunir sem gerðar hafa verið nú þegar í þessum flokki miða allar við það að hjón geti með góðu móti stundað sitt hjónalíf utan þyngdarsviðs Jarðar.
Skýrslur NASA greina frá því að 1996 hafi kynlíf verið prófað á milli karls og konu. Tilgangurinn með Verkefninu sem nefndist STS-XX var að kanna hve margar kynlífsstöður séu mögulegar með góðu móti þarna úti.
Tuttugu stöður voru prófaðar fyrst í sýndarveruleika í tölvu og tókst að fækka þeim í 10.
Tvö tilraunadýr reyndu þær síðan í þyngdarleysi á jörðu niðri.
Þær voru filmaðar en myndirnar reyndust eftir á vera svo viðkvæmar að aðeins reyndist þorandi að sýna ritskoðaðar myndir fyrir vísindamenn Nasa.
Aðeins fjórar stellingar reyndust vera mögulegar án utanaðkomandi aðstoðar.
Hinar sex kröfðust sérstaks beltis og uppblásinna ganga, eins og svefnpoka.
Ein helsta niðurstaðan var sú að hin sígilda trúboðsstelling sem er einkar auðveld á jörðu niðri þar sem þyngdaraflið togar karlinn niður á við, reyndist einfaldlega ómöguleg í þyngdarlausum geimnum. ![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()