11.6.2008
EM 2008
Í litlu og afskekktu þorpi lifir og býr einstakur karl á óræðum aldri, þeas.
Viltu vita hverjir verða Evrópumeistarar 2008?
enginn veit hversu gamall hann er; sumir segja að hann hafi alltaf verið til...
Hann er gæddur hreint óviðjafnanlegum hæfileikum í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur.
Sem töfralækni hefur honum tekist að viðhalda svo vel heilsu þorpsbúa að þar hefur enginn dáið svo áratugum skiptir, og þar sem að hann hefur svo mikið yndi af börnum hefur honum tekist að viðhalda frjósemi konu sinnar fram á þetta ár en skv. læknisskýrslum tók hann á móti henni úr móðurkviði fyrir 91 ári síðan og í nóvember nk á hún von á sínu 31. barni, segi og skrifa þrítugasta og fyrsta barni!
Í Namibíu eru Íslendingar með þróunaraðstoð
Einn af hæfileikum hans er að geta kallað fram ótrúlegustu hluti í lófa sinn, líkt og Ali Baba hinn indverski gerir einnig.
Annar hæfileikanna og sá sem er tilefni þessara skrifa er að geta séð fyrir sigurvegara í hinum ýmsu fótboltaleikjum og -mótum.
Einn þáttur í spádómum hans er að grafa í sand blikkdós
sem inniheldur miða með nöfnum allra þátttakenda í
viðkomandi móti.
Honum hefur tam. tekist að sjá fyrir um úrslit allra hinna meiriháttar móta í áratugi, alveg síðan Úrugvæ tókst að sigra á 1. HM 1930.
Hér hafa sum barna hans safnast í kringum hann, þar sem hann er að gera sig kláran til að opinbera hverjir verða Evrópumeistarar 2008!
Vegna hinna mögnuðu hæfileika hans þarf enginn þorpsbúa að mæta til neinnar slítandi atvinnu, fremur en þeir vilja, nema á laugardögum sem er opinber getraunadagur, en þá fyllir fólkið út getraunaseðla fyrir næstu viku og síðan fylgjast öll með leikjum helgarinnar í risastóru samkomuhúsinu.
PORTÚGALAR með Ronaldo í fararbroddi.
Glow