11.6.2008
Komdu við tónlistina - Scott Hopps
Scott Hopps er breskur gaur sem er að búa til allskonar hluti og ég hugsa að þessir hlutir eigi eftir að verða legend í framtíðinni. Þar sem ég hef mikinn áhuga á tónlist fannst mér þetta nýjasta dæmi hjá honum alveg magnað. Hér er á ferðinni dj borð þar sem allt er diggital og ekki bara það heldur getur maður séð tónlistina eins og hún kemur á waveformi. Snertiskjár þar sem hægt er að stjórna töktum með því að snerta þá hljómar mjög vel. Videóið talar algjörlega fyrir sig sjálft og ég mæli með því að allir sem hafi áhuga á framtíðinni í tónlist tékki á þessu. Kveðja Badboy Þetta er það sem gerðist helst í tækniheiminum í gær, Apple sagðist ætlar að koma með nýjan IPhone 3G síma sem verður með innbyggt GPS kerfi. Tvær gerðir af símanum verða til sölu svartur og hvítur, 8G og 16G útgáfur. Ódýrari útgáfan fæst fyrir litla 199 dali ( 15000 smakkarúnis eða krónur ). En það sem verður að teljast merkilegast við þessar fréttir er að ódýrasti IPhone síminn í dag kostar 200 dali eða meira en sá nýji. Með þessu held ég að Apple sé að drepa alla samkeppni á markaðnum og verður gaman að kaupa svona síma um leið og hann kemur. Kveðja Babdoy Kveðja Badboy ps. The Big Pimp er tilbúinn og kominn af stað - myndir af honum í næstu viku : ) Kveðja Badboy. Kveðja Badboy LIÐIN: Kveðja Badboy
Komdu við tónlistina - Scott Hopps
11. júní 2008
Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli
Nýr IPhone - 200 dollarar 10. júní 2008
Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli
Nú er gaman 8. júní 2008
Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli

Nú er EM 2008 farið af stað og byrjaði að mínu mati með miklum látum. Sérstaklega er ég að horfa á leikinn hjá Portúgal en þeir fengu flugstart og ég er ánægður með mitt veðmál. Tyrkir gátu nú reyndar ekki neitt og verða líklega teknir ílla í næstu leikjum. En hvað með þetta klúbburinn með KASSA Á BAKINU er farinn af stað og mjög gaman að taka þátt í leiknum að þessu sinni. Reglur hafa verið sendar á menn og á þetta allt að vera komið á hreynt. Þeir sem vilja hafa samband við mig og taka þátt geta gert það fram að næstu helgi eða þangað til öll liðin eru farin, þess má geta að menn geta verið tveir með eitt lið og það verður hægt að kaupa sig inn aftur ef liðið sem maður velur dettur út. Endilega hafa sambandi og vera með potturinn verður mjög hár að þessu sinni og ekki leiðinlegt að komast langt í veðmálinu og stressið yfirtekur allt og alla. Krakkarnir 5. júní 2008
Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli

Mynd af krökkunum tekin um síðustu helgi á ströndinni í Kerteminde, þetta var í meira lagi hressandi ferð á ströndina og krakkarnir að njóta veðursins í botn. MEÐ KASSA Á BAKINU - er svo farinn af stað með krafti og mun Búkurinn.ehf sjá um framkvæmd og upplýsingargjöf í sambandi við það. Sameiginlegt áhugamál á fótbolta hefur nú sameinað menn aftur og Euro2008 næst á dagskrá. Viðamikið Blogg strax eftir helgi mun vera póstað hér á Badboy og þar verður hægt að sjá hverjir eru búnir að velja hvað, en mesta spjallið fer svo fram hérna á Badboy yfir alla keppnina. Í kvöld er svo póker hérna á Herluff, Stefania er nefnilega farin á tónleika í Köpen.Gengið í trjánum 4. júní 2008
Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli

Um síðustu helgi fór klúbburinn Búkurinn.ehf í Egeskov sem er mjög skemmtilegur staður fyrir alla fjölskylduna. Þar er hægt að meðal annars kíkja á kastala, bílasafn og mótorhjólasafn. Einnig eru leiktæki út um allt fyrir krakkana en eitt þessara leiktækja er einmitt hengibrú sem liggur efst upp í trjátoppi. Undirritaður er búinn að fara tvisvar í brúnna en alltaf jafn smeikur við hæðina. Eiður Rafn kom svo með í seinna skiptið en hann var svona fjórar mínútur að átta sig og var svo farinn að ganga sjálfur í 12 metra hæð í trjánum. Davíð Dan á heiðurinn af myndinni en Jónas Dan var ekki langt undan heldur en hann var að keppa við sjálfan sig í því að hlaupa eins hratt og hann gat yfir allt draslið án þess að nota hendur. Egeskov fær fjórar stjörnur frá Badboy ekki spurning.EURO2008
Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli

Um helgina byrjar EM2008 og verður mjög gaman að fylgjast með þessu móti. ”MEÐ KASSA Á BAKINU” ætlar að taka þátt að þessu sinni og skráningu hefur verið rúllað af stað í gegnum msn hjá mér. Ég ætla svo að blogga jafnt og þétt um keppnina og væri gaman að fá greinar frá þeim sem taka þátt. Nokkur lið hafa þegar verið tekin frá en ég opnaði fyrir þann glugga í gær og því um löglega frátökur að ræða. Hér fyrir neðan eru svo riðlarnir og liðin sem mætast í fyrstu umferð.
Group A - Czech Republic Portugal Switzerland Turkey
Group B - Austria Croatia Germany Poland
Group C - France Italy Netherlands Romania
Group D - Greece Russia Spain Sweden
