2.6.2008
Vietnam - land lita og ilms.
Í landinu búa um 84 milljónir manna. Sl. sumar fór sonur minn til Vietnam, heillaðist af vietnamskri snót, giftist henni og nú er hún komin til Íslands og heillar alla uppúr skónum með glaðværð sinni. Kona mín er frá Úkraníu, þar sem kranavatnið er ódrekkandi nema það sé soðið. Kuldinn getur orðið svo mikill á veturna að fólk verður að sofa kappklætt. Maður tárast úti í kuldanum og tár frjósa föst á leiðinni niður vangann. Hitinn á sumrinn getur aftur á móti verið svo mikill að loftræstingin þarf að hamast. Einnig getur næturhitinn verið óþolandi og manni liggur við drukknun í eigin svitabaði. Ísland er svo sannarlega best
Vietnam - land lita og ilms.
Einhvern veginn virðast litirnir vera skærari í Vietnam, ilmurinn meiri og orkan áþreifanlegri en við eigum að venjast.
Þetta fallega og spennandi land sem maður þekkti áður mest af sögum og bíómyndum af stríðinu sem háð var á milli Norður Vietnam (kommúnista) annarsvegar og Suður Vietnama (lýðræðissinna) og BNA hinsvegar.
Í dag er landið að breytast úr lokuðu kommúnistaríki í þjóð þar sem að efnahagurinn blómstrar og allt er á uppleið þótt stjórnarfarið hafi ekki breyst mikið.
Vietnamar eru glaðlyndir og stoltir enda hafa þeir orðið að verja sitt í gegnum tíðina og hafa sigrast á stórþjóðum eins og BNA og Kina.
Hún er afar ánægð með landið og lífið hér.
Meðfylgjandi myndir tók ég í skottúr til þessa fagra lands er ég fór að kynnast því dásamlega landi sem sonur minn hafði látið svo vel af.
Við Íslendingar erum svo vanir þessu góða landi okkar að við tökum sem sjálfsögðum hlut því sem fólk í öðrum löndum þarf að greiða offjár fyrir.
í heimi hér með bestu og óspilltustu stjórnmálamennina!











![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()







