19.5.2008


Kobbi og Miðbærinn



Heill og sæll Jakob F.

Til hamingju með starfið og ég efast ekki um að þú átt eftir að breyta ásýndinni Miðbæjarins svo um munar.

Þú manst nú varla eftir mér en ég minni þig á Grænu byltinguna sem þið Stuðmenn stóðuð fyrir ma. suður með sjó, en þar var ég í hópnum sem þú stýrðir svo röggsamlega við niðursetningu trjáa í heiðinni.  Þess má geta að þessir sprotar hafa lítið vaxið á þessum tíma, sorrí!

Skiptir ekki máli vegna þess að við lifum í núinu Kobbi og mig langar aftur að leggja þér mitt lið.

Undir lok síðustu aldar skrifaði ég grein í Morgunblaðið sem vakti miklu meiri viðbrögð en nokkur þeirra greina sem ég hafði áður ritað og þær höfðu reyndar skipt tugum og fjölluðu um ýmis málefni sem voru heit í umræðunni á hverjum tíma, maður þóttist vera svona besser wisser.

Þennan birtingardag sem um ræðir tók síminn að hringja fyrir kl átta og gerði það síðan meira og minna allan daginn, þannig að ég gat ekkert hreyft minn karlmannlega afturenda spönn úr mínum húsum.

Á hinum endanum var mikill fjöldi kvenna á öllum aldri, en bara þrír karlar sem áttu allir eitt sameiginlegt sérkenni; “feimnina”.

Allar komu konurnar með hugmyndir að næstu grein, enda þótti þeim málefnið afar brýnt, þótt fyrr hefði verið.

Greinina

“Feimni og einmanaleiki”

skrifaði ég eftir miklar pælingar um eigið líf og annarra.

Ég er að rembast við að halda úti veftímariti www.netsaga.is þar sem finna má ógrynni sagna, greina, brandara, ljóða og tónlistar.

Ég skrifaði í kjölfarið nokkrar greinar sem tóku á þessu alheimsvandamáli sem feimnin óneitanlega er og leitaði uppi allt sem viðkom málinu á Netinu; “Shyness”.

Komst ma. að því að prófessor við UCLA í USA hefur skrifað lærðar bækur um málið og komið því í gegn að stofnuð hefur verið sérstök deild við háskólann sem fjallar um feimni frá öllum hliðum og leitar leiða til að minnka feimnina í heiminum.

Hvað gerir fólk til þess að auka sér kjarkinn svo nálgast megi hitt kynið; það fær sér í glas eða neytir annarra vímugjafa.

Við þurfum að finna leiðir til þess að minnka þessa bölvuðu feimni sem er orsök allra þessara láta í Miðbænum,

Í upphafi koma allir af sömu ástæðu í miðbæinn, að fullnægja kynhvötinni, en þegar ekkert gengur hjá mörgum verða vonbrigðin til þess að fólk drekkur meira og það fer að gera ýmislegt sem það aldrei gerði edrú.

Mínar bestu kveðjur Jakob,

Óli Þór