By The Associated Press Reyndir, rólegir atvinnumenn.
Enginn var að drekka áfengi.
En þeir voru svo hræddir um að missa störfin sín að þeir kröfðust þess að nöfnum þeirra yrði haldið leyndum í opinberum skýrslum.
Enginn gerðu þeir ráð fyrir, myndi trúa þeirri fullyrðingu þeirra að framandi fljúgandi hlutur FFH hefði lent við flugvöllinn sem þeir hefðu haft umsjón með í Austur Englandi, komið niður á land í skamma stund, og tekið á loft á ný á gríðarlega miklum hraða.
Engu að síður er þetta það sem þeir skýrðu frá að hefði gerst kl 16 19. apríl 1984.
Atburðurinn er bara einn af hundruðum frásagna af meintum atburðum sem eru í skýrslum á meira en 1000 bls. sem fjalla um FFH í Bretlandi sem hafði verið haldið leyndum þar til þau eru birt almenningi í dag miðvikudaginn 14. maí 2008 í skjalasafni þjóðarinnar.
Þessi meinti atburður sem að ofan er getið var einn fárra sem aldrei hefur tekist að skýra svo vel fari.
Skýrsla flugumsjónarmannanna um þetta loft fyrirbæri kom frá ónafngreindum smáum flugvelli á A-Englandi.
Mennirnir sem höfðu amk 8 ára starfsreynslu lýstu hvernig þeir hefðu verið að leiðbeina lítilli flugvél inn til lendingar á flugbraut 22 þegar þeir voru truflaðir af skærlýstum hlut sem nálgaðist aðra braut án þess að hafa látið af sér vita.
"Allir voru þess áskynja að hér var um óþekktan hlut að ræða" sagði í skýrslu þeirra. "SATCO (merki flugumsjónarmanns með 14 ára reynslu)skýrir svo frá "að hluturinn hafi nálgast hratt, snert jörð ögn og síðan tekið á loft á ótrúlegum hraða nánast lóðrétt."
Atvikið er eitt af hinum trúverðugri í þessum nýbirtu skýrslum vegna þess að þarna voru flugumsjónarmenn á ferð, sagði David Clarke, sérfræðingur um UFO eða FFH en hann vann með ríkisstjórninni við útgáfu þessara leynilegu heimilda.
"Þeir áttu hreinlega ekki til orð," sagði hann. "Hluturinn var bjartur, hringlaga, blikkandi ýmsum litum, og eftir að hann hafði snart jörð hvarf hann með ævintýralegum hraða. Skýrslan er vottuð af mjög ábyggilegu fólki og er enn einn fárra sem ekki hefur tekist að skýra."
"En á sama tíma og nokkra atburði hafi ekki tekist að skýra með viðunandi hætti telur Varnarmálaráðuneytið sig ekki hafa fundið nein óhrekjandi rök fyrir því að um hafi verið að ræða gesti frá öðrum hnöttum," sagði Clarke sem sjálfur telur þó að um einhverjar samsæriskenningar um yfirhylmingu sé að ræða.
"Varnarmálaráðuneytið hefur engin sönnunargögn um að vörnum okkar hafi verið ógnað af framandi hlutum." segir Clarke. "Þeir hafi aldrei fundið neitt far, né hluta úr neinu. Við höfum ekki meira um málið að segja."
Clarke kvað birtu heimildirnar, sem eiga við árin seinnihluta áttunda áratugarins og fram á þann níunda, eru fyrstu gögnin sem koma fyrir sjónir almennings á 5 ára tímabili.
Skjalasöfn þjóðarinnar eru að birta þessi gögn vegna mikilla krafna um minni leynd í ríkisbúskapnum varðandi FFH.
Opinberir starfsmenn segja mörg nöfn hafa verið hulin svörtu til þess að vernda einkalíf þeirra og að mörg skjalanna hafi verið umskrifuð til þess að sjá til þess að birtingin skaðaði ekki þjóðaröryggi.
Starfsmenn ráðuneytisins benda á það í gögnunum að FFH skýrslur hafi aðeins verið rannsakaðar til þess að athuga hvort óvinavélar hafi ekki komið ólöglega inn í breska lofthelgi.
Þetta var mikilvægt á meðan á kalda stríðinu stóð þegar rússneskar flugvélar gátu verið ógn.
Þeir sögðu að þeir hafi ekki reynt að tengja atvikin FFH eftir að vitað þótti að þarna hefðu Rússar ekki verið á ferð.
Megnið af FFH tilkynningum koma frá almenningi sem sér skrýtna hluti á himninum og ályktar sem svo að óathuguðu máli að þarna hafi framandi geimverur verið á ferð jafnvel þótt rökréttar skýringar séu á því sem hann hefur séð, segja sérfræðingar.
"Algengast er að menn sjái fljúgandi för og ljós, bjartar stjörnur og reikistjörnur, gervihnetti, loftsteina, loftskip eða álíka hluti," sagði Nick Pope, annar FFH sérfræðingur sem aðstoðaði ráðuneytið við rannsókn á fyrirbærinu.
Þetta er dæmið þar sem hópur fólks sem var að koma af Tunbridge Wells kránni kvöld eitt og sáu þá einkennilegt far "með rauðum og grænum" ljósum, skv einu þessara opinberuðu gagna.
Er löggan spurði í hvaða átt farið virtist vera að fara, sögðu kráargestirnir fyrrverandi að það virtist stefna á Gatwick flugvöll Lundúnaborgar.
Ekki þurfti vísindamann til að átta sig á því að þarna hafði farþegavél verið á sinni venjulegu flugleið.

Vatican: It’s OK to Believe in Aliens









