4.5.2008


Skítafýla af körlum!


Skítafýla af körlum!

5_tn.jpg5_tn.jpg5_tn.jpg5_tn.jpg5_tn.jpg5_tn.jpg5_tn.jpg

Í gærkveldi fórum við hjónin á Players, en ekki þó ein eins og endranær.

Nei við buðum með okkur einmana samstarfskonu konu minnar og einmana nágranna okkar.

Þau virtust áfjáð í að hittast og ljúka ef til vill áralangri einsemd sinni.

Við pikkuðum þau upp hvort á sínum staðnum.

Síðan sátu þau saman í aftursætinu og fylgdist ég með þeim í speglinum.

Þau sátu þar afkáralega beinstíf bæði tvö, þegjandi, en þó gjóandi augum hvort á annað.

Er við komum á Players fundum við okkur borð og settust þau hvort á móti öðru, en í stað þess að reyna að spjalla og kynnast hvort öðru, þá tók hún upp gemsann sinn og tók að senda og svara sms-um, eins og er hennar vani, furðuleg kona vægast sagt.

Hún átti afmæli um daginn og bauð okkur, en ég skyldi ekki mæta fyrr en kl átta.

Er ég mætti á staðinn stóð mín kona í vinnuslopp inni í eldhúsi yfir eldavélinni, en afmælisbarnið sat í hornsófanum með fartölvuna í fanginu og var hún á fullu ýmist við leiki eða að svara á msn.

Sjónvarpið var í gangi, háttstillt og aðrir gestir af báðum kynjum sátu fyrir framan það og reyndu þannig að hafa ofan af fyrir sér.

Jæja hvað um það þegar afmælismaturinn var tilbúinn tóku allir hraustlega til matar síns og reyndu síðan að spjalla saman, en sú sem var miðpunkturinn sat áfram með sinn lapptopp, en nú með feitt kjúklingalæri í annarri á meðan hin pikkaði svörin og sendi útum allan heim, gerði ég ráð fyrir.

Ég hrósaði happi yfir að ekki ætti ég svona konu, en skildi jafnframt af hverju hún er sífellt á Einkamálum leitandi sér að einhverjum sem kynni mögulega að þola svona kvendi.

Það er af einmana kallinum að segja að þar sem vonbrúða hans sat öðru megin með gemsann sinn sat hann áfram þegjandi og húkandi á sínum stól og horfði í gaupnir sér.

Og ég sat við hlið hans og var að reyna að stjórna þeim eins og minn er vaninn og spurði hann af hverju hann ekki biði henni í dans eða biði henni í glas, en hann þumbaði það fram af sér.

Hún fór enda og keypti sér bjór en hann kókglas.

Og áfram sátu þau og virtust alveg hafa gleymt háleitu markmiði þessa stefnumóts.

Um eittleytið fór hún annað en skildi einmana kallinn eftir.

Konu minni líkaði ekki ástandið frekar en mér, stóð upp og bauð honum að dansa við sig.

Eftir dansinn kom hún aftur með skelfingarsvip á annars björtu og fínu fési sínu.

-Gvööð minn almáttugur, ferleg skítafýla af kallinum!  Ekki þykir mér það furða þótt hann búi einn.

Og þar er komið að tilgangi þessarar greinar. 

Alltof algengt er að skýtafýluna leggi af körlum, td hendir það oft er maður stendur í biðröð að svita- og skýtafýluna leggi af körlum og stundum konum.

Svona lagað á bara ekki að þurfa að ske hérna í landi þar sem ofgnótt er af heitu og köldu vatni sem og sápu og sérstaklega ekki þegar mikið stendur til eins og stefnumót við konu, þótt skrýtin sé.

Mér finnst það helber dónaskapur og virðingarleysi við viðkomandi.

Hvað segir þú um svona lagað eða ertu kannski ekki skárri!