3.5.2008


Sykur


Sykur



Hvítur sykur (tvísykran sukros). Hreinsaður sykur sem búið er að vinna mikið og bleikja til að gera hann hvítan. Vegna þess hversu mikið hann er unnin, er hann næringarsnauður. “Tómar hitaeiningar”.

Púðursykur (brown sugar). Er mikið unninn sykur. Hann er tekinn seint í sykurferlinum og við hann er bætt melassa (sýróp sem myndast við vinnslu sykurs) sem gerir hann brúnan og breytir bragðinu líka töluvert. Hann inniheldur mikinn raka og verður glerharður ef hann nær að þorna. Því dekkri sem púðursykurinn er þess meira inniheldur hann af melassa.

Hrásykur. Óhreinsaður sykur. Það sem er betra við hann en hvítan sykur er að hann inniheldur töluvert meira af stein- og snefilefnum og B-vítamínum. Hann er því betri kostur en orkuinnihald hans er samt svipað og í öðrum sykri.

Náttúruleg sætuefni. Fyrir utan hrásykurinn má nefna hrísgrjónasíróp, epla- og perusíróp og agavesíróp. Þessar tegundir af sykri Innihalda einnig töluvert af stein- og snefilefnum og eru því betri kostur en hvíti sykurinn.

Ávaxtasykur (einsykran frúktósi) er sætari á bragðið en hvítur sykur og því hægt að nota minna magn af honum í t.d. bakstri.

Agave - er upprunalega ættað frá Mexíkó en bæði Inkar og Aztekar notuðu það á ýmsan hátt. Það er unnið úr sætum kjarna Agave jurtarinnar.

Agavesíróp er, vegna framúrskarandi sætueiginleika, góður valkostur í staðinn fyrir sykur. Vegna þess hve bragðið er milt hentar það einkar vel til að sæta eftirrétti, morgunkorn, ávaxtarétti, drykki og í bakstur.

Magn ávaxtasykurs í Agavesírópinu er óvenjulega hátt og er meira en 50% af kolvetnisinnihaldi. Upptaka ávaxtasykursins, sem er einsykra, er auðveld fyrir mannslíkamann og breytist fljótt í orku fyrir heila og vöðva. Einstaklingar með sykursýki og sveppasýkingu (candida) er óhætt að neyta Agavesíróps í hófi.

Það sem er sérstakt við Agavesírópið:

? Lífræn ræktun
? Alhliða sætuefni með fínu, hlutlausu sætubragði
? Mikilir sætueiginleikar sem er sérstaklega auðvelt að nýta
? Tilvalið til að sæta drykki, morgunkorn, bakstur og eftirrétti

Agavesíróp fæst í Maður lifandi búðunum

Áhættan á velmegunarsjúkdómum vegna ofneyslu sykurs s.s.offita, of hátt kólesteról, sykursýki 2 og hjarta- og æðasjúkdómar. Margur unnin matur sem við neytum inniheldur óhollan sykur. Gætið ykkar sérstaklega á maltodextrin, sírópi, laktósa, dextrins, ávaxtasykri (fruit sugar), dextrose eða maltose og munið að hrásykur (cane sugar) er heldur ekki alveg saklaus“.

Til baka

Prentvæn útgáfa