29.4.2008
Framhjáhald-Sannar sögur
Erótík fyrir þig á www.netsaga.is -Ég skil bara engan veginn hvað er að ske í samfélaginu; þú ert sá þriðji á þessu ári sem kemur á slysadeildina með afskorinn getnaðarliminn í plastpoka! -Helvítis kellingin, hún skilur alls ekki hvað það er erfitt fyrir sannan karlmann að fá ekki oftar á broddinn! -Þannig að þú leitaðir fanga hjá annarri kvinnu? -Já, hvað átti ég að gera, orðinn algerlega viðþolslaus? -Og hvernig komst hún að framhjáhaldinu? -Hún sá okkur saman á Players. -En hvað var hún að gera þar? Hvernig stendur á þessari auknu tíðni framhjáhalda í okkar “fullkomna” samfélagi? Í samfélögum sem standa í átökum bæði innanlands og utan er fyrirbærið skiljanlegra þegar fólk er sent til átakasvæða þar sem það lætur oft lífið. Má sem dæmi nefna Rússland er hermenn þaðan fóru til Afganistans, að þá sátu þeir eða þær sem eftir voru um grasekkjurnar og -ekklana, vegna þess að náttúra fólks vill sitt.
Framhjáhald-Sannar sögur úr heilbrigðiskerfinu af afleiðingum þess!