28.4.2008


FRAMHJÁHALD!


FRAMHJÁHALD -Tilviljanir í lífi okkar eða er þar drottinn á ferð!–Sönn saga

0416344345.jpg 

Við hjónin fórum á Players sl laugardagskveld til að fá okkur snúning eins og svo oft áður.

Er við vorum komin á dansgólfið tók ég eftir náunga sem er ansi þekkt andlit á Íslandi, einkum fyrir skrif sín og afskipti af pólítík.

Hann vangaði af mikilli tilfinningu við konu sem kúrði í hálsakoti hans, þannig að ég sá ekki andlit eiginkonu hans sem reyndar hálf þjóð kannast einnig við.

Ég gaf honum ekki frekari gaum enda átti ég í fullt í fangi með eigin konu sem var í mínu eigin hálsakoti.

Er við komum nær þessum ástföngnu hjónum í okkar tilfinningaþrungna dansi varð hann eikkað vandræðalegur er hann tók eftir okkur, en kinkaði þó kolli lauslega til mín.

Enn sá ég ekki konuna hans því að hann virtist gera sér far um að hylja ásýnd hennar betur, en skyndilega var eins og hún hefði fengið nóg af andleysinu í koti eiginmannsins sem hálf þjóðin þekkir.

Mér brá…þetta var ekki eiginkona karlsins sem hálf þjóðin býður svo oft inn í stofuna sína.

Hvað var hér í gangi……..?

Þetta kemur mér ekki við varð mér hugsað, jafnvel þótt framhjáhald stríddi mikið gegn minni eigin sannfæringu.

Að mínu mati þarf maður að geta lagt traust sitt á einhverja persónu í lífsins ólgusjó.

Áður en ég komst lengra í hugleiðingum mínum heyrði ég átakanlegt öskur sem yfirgnæfði skarkala hljómsveitarinnar.

-HVAÐ ERT ÞÚ AÐ GERA HÉR …….?  ÆTLAÐIR ÞÚ EKKI AÐ VERA Í VEIÐIFERÐ?