21.4.2008
Ljósmyndir frá Grænlandi
Á AÐ BANNA VEIÐAR Á LUNDA? Það er ekki laust við að maður hafi orði fyrir smá áfalli við að sjá ekki neinn lunda út í Dyrhólaey þegar ég var þar á ferð með ferðamenn á síðasta ári. Lundi er oft kallaður „prófastur“ eða „prestur“ á íslensku. Lundinn er af svartfuglsætt sem lifir við sjó og kafa sér til matar. Þeir verpa í djúpum holum sem þeir grafa. Lundinn er staðfugl en heldur sig úti á rúmsjó yfir veturinn. En hér kemur smá myndasería af lunda sem teknar hafa verið víða um land. Lundinn er sætur fugl eins og sjá má á þessari mynd Ef lundinn hefur ekki það æti sem hann þarf sem er að stórum hluta sandsíli eins og sjá má á þessari mynd, þá fer hann eitthvað annað Hér er lundamamma eða lundapabbi að færa ungunum sínum mat Hér er vanur lundaveiðimaður að sýna ferðamönnum hvernig á að bera sig að við að háva lundann Lundi í Dyrhólaey 2006 Hér sýnir veiðikona ferðamönnum hvernig á að bera sig að með hávinn til að fanga lundann í netið Frekar var lítið um lunda í Papey 2006 Annars er lundi einn sá besti matur sem að ég fæ - því miður Kjartan Flokkað undir Fjölmiðlar, Stjórnmál, Umhverfi, Ferðalög, Matur og drykkur, Umræðan, Ljósmyndun þann 21. apríl 2008 af photo | | 0 ummæli GRÓTTA, GRÓTTUVITI - MYNDIR Það er oft fallegt úti á Gróttu þar sem Gróttuviti stendur Grótta á Seltjarnarnesi Vitinn á Gróttu yrst á Seltjarnarnesi Hér má sjá golfvölinn úti á Gróttu á Snæfellsnesi Stefnuviti fyrir flug sem er að koma inn til lendingar á flugbraut 31/13 á Reykjavíkurflugvelli Grótta er yzti hluti Seltjarnarness. Hún er í rauninni eyja, sem tengist landi með skerjum sem standast upp úr á fjöru. Hér má sjá vel lukkaða ljósmynd af Seltjarnarnesi sem tekin er að vori til árið 2004. Sjálfsagt hafa margir gaman að því að renna yfir stækkaða útgáfu af myndinni og sjá hvað hefur breyst síðan þá. Loftmynd af bæjarfélaginu á Seltjarnarnesi. Ef smellt er á mynd, þá má sjá stækkaða panorama-loftmynd af svæðinu Kjartan Flokkað undir Umhverfi, Ferðalög, Vinir og fjölskylda, Ljósmyndun, Flug, Jarðfræði þann 20. apríl 2008 af photo | | 0 ummæli ÓTRÚLEGAR ÍSBJARNAMYNDIR Hér rakst ég á skemmtilega myndaseríu á Norskum netmiðli. En myndirnar eru frá ljósmyndara í Churchill, Kanada og heitir Norbert Rosings Kjartan Flokkað undir Umhverfi, Ljósmyndun þann 19. apríl 2008 af photo | | 0 ummæli FERÐ LEIÐSÖGUMANNA TIL GRÆNLANDS 2005 - HLUTI-1 Ég átti þess kost á að komast í ferð með leiðsögumönnum til Grænlands snemma árs 2005. Hér má svo sjá fyrsta hlutann úr þeirri ferð. Ferðin heppnaðist í alla staði vel. Þarna fékk hópurinn að kynnast af eigin raun frumstæðum aðstæðum sem þetta fólk býr við. Ekki laust við að sumir yrðu fyrir smá áfalli. Kulusuk er á eyju og hefur þorpið byggst upp ekki langt frá flugvellinum. Samgöngur eru erfiðar og þarf að ganga í ca. 40 mín til þorpsins. Þar búa nú rétt rúmlega 300 manns. Hundar hafa verið fleiri en íbúar þorpsins! En þegar mest var, þá voru þeir um 800 talsins. Það var árið 2005 sem hópur leiðsögumanna hélt í ferð snemma vors til Kulusuk í Grænlandi Það var margt sem varð á vegi þessa hóps sem kom vægast sagt undarlega fyrir sjónir eins og þessi kirkjugarður Á leið okkar þurftum við að ganga í gegnum þessi stóru snjógöng Hundar eru margir í Kulusuk og hefur lengi vel eina farartækið sem íbúar svæðisins höfðu. Á tímabili voru í Kulusu hundar 2-3 sinnum fleiri en fólkið sem bjó í bænum og þegar mest lét um 800 Hér má sjá ískáp náttúrunnar, Tilvalið er að geyma matinn áfram í sjónum Íslendingar eru að vonum ánægðir með harðfiskinn sinn, en hér má sjá þurrkaða loðnu hengda út til þerris Hér aka feðgar heim aflanum í hjólbörum. Aflinn er loðna og fékk íslenski leiðsöguhópurinn einnig að smakka þessu góðgæti sem bragðaðist vel þegar búið var að heilsteikja á pönnu Meðhjálparinn er búinn að taka að sér messuhaldið á staðnum. Presturinn farinn og organistinn komin á aldur og ekki neinir til að taka við þessum mikilvægu embættum. Tónlistakennslan í lamasessi og sjá má hvernig þorpsbúum fækkar smátt og smátt og húsum fjölgar sem leggjast í eyði. Unga fólkið flytur til stóru byggðakjarnanna eða til Danmerkur. Komið var við í kirkjunni í Kulusuk og var þar meðhjálparinn einn eftir til að sinna kirkjulegum skyldum. Presturinn horfinn og aldraður organisti og engin til að taka við því hlutverki heldur Það finnast líka sannir víkingar á Grænlandi, annars er merkilegt hvað það voru lítil tengsl á milli Íslendinga og Grænlendinga hér á árum áður og ekki mikið um blóðblöndun á milli þessa tveggja samfélaga Vestræn menning mætti þakka fyrir margt sem hún hefur í dag. Hér þarf að bera inn allt vatn til drykkjar, matar og þvottar, Í forgrunni má svo sjá klósettið sem er fata sem er sótt af aðila sem ekur um þorpið og safnar þeim saman til losunar þegar þær eru orðnar fullar af … Á 5 stjörnu hótelinu var sofið á gólfinu, hitað upp með olíuofni, ná þurfti í allt vatni í fötur í þar til gerða vatnspósta, klósettið var fata og engin sturta í húsinu. Hægt var að komast í sameiginlega sturtu og þvottaaðstöðu á öðrum stað í bænum. Á göngu um Grænland getur stundum verið vissara að vera vel vopnum búinn ef vera skyldi að svangur grænlenskur ísbjörn myndi skyndilega birtast Þetta er algeng sjón á Grænlandi, allir firðir og flóar fullir af ís Haukur Hauksson “ekki” fréttamaður tekur hér hraustlega til matar síns og voru menn sammála um að það hefði stórséð á grænlenskum jöklum eftir veru hans þar Víða mátti sjá yfirgefin hús og greinileg merki þess að íbúar svæðisins fór óðum fækkandi Leiðsöguhópurinn var svo heppin að honum var boðið í heimahús á staðnum, en þar bjó grænlensk kona með dönskum eiginmanni. Þau hjónin brugðu á leik fyrir okkur og hér er eiginkonan í dönskum þjóðbúning Loðna steikt á pönnu var orðin vinsæl hjá hópnum Það er annars fróðlegt að sjá þessa frétt sem lítið hefur farið fyrir að Grænlendingar eru líklega að verða sjálfstæð þjóð áður en langt um líður. Flokkað undir Fjölmiðlar, Stjórnmál, Umhverfi, Alþjóðamál, Ferðalög, Matur og drykkur, Menning og listir, Trúarbrögð, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Ljósmyndun, Samgöngur þann 18. apríl 2008 af photo | | 0 ummæli Það er einhver undarleg stemmning sem ríkir á þessum fjölsóttasta veitingarstað landsins. Maður hreinlega sogast að honum ósjálfrátt og áður en maður veit af, þá er maður búinn að kaupa sér eina með öllu Staðurinn er svo lítill að hann sést ekki einu sinni á þessari mynd og það vinnur aðeins einn starfsmaður á þessum vinnustað Þarna kemur ótrúlegur fjöldi fólks reglulega úr öllum stigum þjóðfélagsins til að fá sér í svanginn. Ef vel er skoðað, þá má sjá fræga mynd teiknaða af Sigmund þar sem Bill Clinton er að fá sér eina „Clinton“ en það ku vera pylsa í brauði aðeins með sinnepi Kjartan Flokkað undir Fjölmiðlar, Umhverfi, Efnahagur, Heilbrigði, Alþjóðamál, Ferðalög, Matur og drykkur, Menning og listir, Slúður, Umræðan, Ljósmyndun þann 15. apríl 2008 af photo | | 0 ummæli Það má lesa um misvísandi fréttaflutning um hvar Miðfellsland í Þingvallasveit sé. Það er ekki við Meðalfellsvatni eins og sumstaðar má lesa. Hér má sjá nokkur sumarbústaðarsvæði við Þingvallavatn. Hér má skoða sumarbústarsvæði við austan vert Þingvallavatn Hér má skoða sumarbústarsvæði við austan vert Þingvallavatn Hér er flogið með ströndinni við Þingvallavatn í landi Heiðarbæjar Hér má skoða nýbyggðan “Sumarbústaður” þar við Þingvallavatn Hér má skoða nýbyggðan “Sumarbústaður” þar við Þingvallavatn Hér má skoða nýbyggðan “Sumarbústaður” þar við Þingvallavatn Þeir eru mörg flott sumarhúsin í þjóðgarði Íslendinga og þau verða stærri og meiri með árunum Hér má sjá sumarbústaður í landi Nesja Hér má sjá sumarbústaður í landi Nesja Hér koma svo myndir sem teknar voru af sumarbústöðum við Þingvöll 2007 Flug við Þingvallarvatn Loftmynd af Þingvöllum og sprungunni sem kemur upp úr vatninu þar sem Almannagjá er Sumarhús í Hestvík í landi Nesja á Þingvöllum En ég hef ekki grænan grun um hvar þessi bústaður er við Þingvallarvatn sem brann. Kjartan
Á AÐ BANNA VEIÐAR Á LUNDA? - MYNDIR
Mynd tekin í heyvagnaferð út í Ingólfshöfða árið 2005 (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er lundi með gogginn fullann af sandsíli, mynd tekin úti í Ingólfshöfða (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er mynd af lundum úti í Drangey (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er beðið eftir að lundinn fljúgi fram hjá klettasyllunni til að verða hávaður (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Greinilegt að lundanum hefur eitthvað fækkað á svæðinu í kringum Dyrhólaey, hvort það er út af veðurfari eða einhverjum öðrum orsökum. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er sýnd staðan sem veiðimaðurinn notar þegar verið er að háfa lundann (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Einn af þeim fáu sem var á staðnum þegar okkur bar að garði var fljótur að forða sér þegar við nálguðumst (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
WWW.PHOTO.ISGRÓTTA, GRÓTTUVITI - MYNDIR
Fjölskyldudagur í Gróttu í dag

Á fjöru er auðvelt að labba út í Gróttuvita (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Loftmynd af vitanum á Gróttu (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Gróttuviti er á Gróttu sem er yzti hluti Seltjarnarness (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Golfvöllur Golfklúbbsins Ness (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Stefnuviti fyrir flug á Reykjavíkurflugvöll (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Seltjarnanes (smellið á mynd til að sjá myndina stærri)
WWW.PHOTO.ISÍSBJÖRN OG HUNDUR Í FAÐMLÖGUM - MYNDIR
Gekk 130 kílómetra heim til sín

Ísbjörn að leik við hund. Ekki annað að sjá en að það fari vel á með þessum 2 óskyldu dýrategundum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
WWW.PHOTO.ISFERÐ LEIÐSÖGUMANNA TIL GRÆNLANDS 2005 - HLUTI-1

Hér er samankomin glaðbeittur hópur leiðsögumanna á göngu á leið frá flugvellinum til þorpsins Kulusuk (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má sjá kirkjugarðinn í Kulusuk og takið eftir hversu litfögur blómin eru á leiðunum. Í ljós kom að þetta voru gerviblóm enda ekki nema von því veður eru válind og jarðvegur fyrir plöntur af skornum skammti (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér mætum við ungum grænlendingi sem er að hlaupa út á flugvöll sem er í 30 mín. göngufæri frá bænum Kulusuk (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér passar grænlenskur hundur vel upp á matinn sinn sem er illa lyktandi selkjöt. Hundurinn er í keðju og ekki er ætlast til að ferðamenn séu mikið að klappa þessum hundum, enda ekki nein gæludýr hér á ferð. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má sjá sel sem geymdur er í sjónum þangað til hann verður verkaður í næstu máltíð. Ein fjölskylda gæti þurft 30-40 seli til að fæða hundahópinn (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Grænlendingar matreiða loðnu á ýmsa vegu og mættu íslendingar gjarna rifja upp þá gömlu matarmenningu sína. Enda er loðna mikið lostæti (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér sjá hvorki Eimskip né Samskip um flutning á afla dagsins! (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Fólksfækkun er mikil á svæðinu og því erfitt að halda uppi lágmarks þjónustu sem samfélagið þarfnast (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér eru grænlensk börn í fullum víkingaherklæðum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má sjá leiðsögumenn bera inn vatn til matargerðar. Ekkert rennandi vatn er í húsinu. Fara þarf með þvott á annan stað í þorpinu. Sama gildir með þá sem vilja komast í sturtu. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér eru leiðsögumenn frá Íslandi að búast í langa gönguferð frá Kulusuk í Grænlandi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er leiðsöguhópurinn búinn að klifra upp á stóran ísjaka í fjörunni (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér ræðst Haukur fréttamaður á ísjaka og skömmu seinna var jakinn horfinn (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Mikið var af tómum húsum í Kulusuk og mörg merki þess að þarna væri hnignandi byggð á ferð (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er Haukur að mynda skemmtilega uppákomu (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er Haukur að verka leifarnar af loðnunni frá deginum áður. Sannkallaður herramans matur (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)MÁ BJÓÐA ÞÉR EINA MEÐ ÖLLU?

Bæjarins beztu - Ein með öllu og kók (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Loftmynd af Bæjarins beztu (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
WWW.PHOTO.ISHVAR ER ÞETTA MIÐFELLSLAND ÞAR SEM SUMARBÚSTAÐURINN BRANN - MYNDIR
Grunaður brennuvargur fluttur á sjúkrahús með reykeitrun

Sumarbústaðarsvæði við Þingvallavatn í Miðfellslandi mynd tekin í júlí 2007 (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Sumarbústaðarsvæði við Þingvallavatn í Miðfellslandi mynd tekin í september 2005 (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Sumarbústaðir við Þingvallavatn mynd tekin í apríl 2004 (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Bústaður í landi Heiðarbæjar mynd tekin í apríl 2004 (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Bústaður í landi Heiðarbæjar mynd tekin í september 2005 (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Bústaður í landi Heiðarbæjar mynd tekin í september 2004 (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér eru nokkrir sumarbústaðir þar sem Almannagjá byrjar (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Sumarbústaður í landi Nesja (eigandi Reynir Gunnar) myndir teknar í apríl 2004 (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Sumarbústaður í landi Nesja (eigandi Reynir Gunnar) myndir teknar í september 2004 (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Sumarbústaður við Almannagjá í Þjóðgarðinum. Mynd tekin í september 2004 (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Bústaðir í landi Heiðarbæjar mynd tekin í júní 2004 (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Loftmynd af sumarbústöðum í landi Heiðabæjar, Skálabrekku, Kárastaða og fleiri bæja (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hestvík í landi Nesja, sumarhúsabyggð (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
WWW.PHOTO.IS
