14.4.2008
Íslandsmyndir Pálma
VELKOMIN Í SKAGAFJÖRÐINN - MYNDIR Líklega koma Ólafur og Dorrit til með að gista á þessu fallega og fína uppgerða hóteli hér sem ber nafnið Hótel Tindastóll eins og eitt frægasta fjall Skagfirðinga gerir líka Víðimýrakirkja er ein af af fallegri kirkjum á landinu og ein af mörgum endurbyggðu kirkjum á svæðinu Kirkjur í Skagafirði hlaðnar með torfi eru fjölmargar í Skagafirði. Það hefur sýnt sig að gömlu kirkjurnar höfðu mun meiri endingu á norðurlandi miða við suðurlandið. En það hefur með rakan og kuldann að gera. Einnig hafa varðveist mun mera af handritum frá norðurlandi vegna þessa. Hér má sjá svo altaristöfluna sem er í Víðimýrakirkju Ekki er ólíklegt að forsetahjónin líti við á hestabúgarði eins og þessum hér Heimasíðan á Flugumýri er http://www.flugumyri.com/ Hér er danskur vinnumaður á Víðimýri að kynna fyrir samlöndum sínum Íslenska hestinn Við verðum bara að vona að Ólafur Ragnar Grímsson forseti láti það ógert að bregða sér á bak. En eins og margir muna eflaust, þá gekk það ekki vel á Snæfellsnesi hér um árið. Nema það hafi verið dulbúin aðferð til að næla sét í konu eins og sjá má Safnið Glaumbær í Skagafirði er einn vinsælasti viðkomustaður ferðamann og má þar skoða burstabæ af stærri gerðinni sem hefur verið endurbyggður Ein skemmtilegasta uppákoma sem að ég hef orðið vitni af fyrir ferðamenn var leikrit sem flutt var fyrir ferðamenn á Hólum í Hjaltadal Hólakirkja er einstök og margan gersema þar að sjá Á Hólum í Hjaltadal er fiskasafn þar sem sjá má mörg furðuleg kvkind Grafarkirkja í Skagafirði er fyrir margt merkileg og er meðal annar garðurinn í hring um kirkjuna Hofsós er þorp á Höfðaströnd við Skagafjörð sem er vinsælt fyrir ferðamenn. Bærinn hefur verið byggður upp af miklum myndarbrag í gömlum stíl Spurning hvort að forsetahjónin hætti sér í siglingu út í Drangey til að skoða fuglalífið út í eyjunni Að afloknu ströngu prógrami, þá er spurning hvort að forsetahjónin fái sér bað í sömu laug og Grettir Ásmundason gerði eftir Drangeyjarsundið fræga Það er hægt að halda svona áfram lengi, en af nógu er að taka á svæðinu. Flokkað undir Fjölmiðlar, Stjórnmál, Umhverfi, Alþjóðamál, Ferðalög, Menning og listir, Slúður, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Ljósmyndun þann 14. apríl 2008 af photo | | 0 ummæli TURNINN Í SMÁRALIND - MYNDIR Hér má sjá turninn í Smáralind í byggingu. Myndin er tekin í júní 2007. Þessi mynd er svo tekin 2004 og þá eru framkvæmdir ekki hafnar á svæðinu. Kjartan Flokkað undir Fjölmiðlar, Umhverfi, Efnahagur, Slúður, Umræðan, Ljósmyndun, Flug þann 9. apríl 2008 af photo | | 0 ummæli Önnur spennandi frétt í orkumálum Íslendinga Ég var á ferð með skemmtilegum hóp fyrir stuttu sem leiðsögumaður. Þegar ég var að fletta í gegnum vefmiðlunum stuttu seinna, þá rakst ég m.a. á þessa frétt hér: Verksmiðja sem breytir hverareyk í bensín! Ef satt reynist, þá er hér á ferðinni stórkostleg tækifæri í orkumálum framtíðarinnar. Spurning hvort að íslendingar séu að stefna í að verða 100% sjálfbærir í orkumálum Kjartan Flokkað undir Umhverfi, Efnahagur, Alþjóðamál, Ferðalög, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Tækni og vísindi, Samgöngur, Jarðfræði þann 9. apríl 2008 af photo | | 0 ummæli Hvar kemur þessi olíuhreinsistöð til með að rísa? Mynd + kort Ég vona að ég sé að fara með rétt mál hér. En nafnið Hvesta hljómar nú ekki beint kunnuglega. Staðurinn er um 6 km frá Bíldudal. Fínar myndir ásamt loftmynd af svæðinu með örnefnum má einnig sjá hér (ef klikkað er á gulu punktana á sumum myndanna, þá koma upp örnöfnin sem er undir viðkomandi punkt): http://www.mr.is/~gk/hvesta/hvesta.htm En myndirnar sem linkurinn vísar á eru unnar af Guðbjarti Kristóferssyni Á myndinni er horft til norðurs þar sem má sjá Arnarfjörð og þar sem glittir í gulan sandinn er Hvestudalur þar sem áin Vaðall rennur. Hér er svo kort af má Hvestudalur, Arnarfjörður, Nónhorn Kjartan Flokkað undir Fjölmiðlar, Stjórnmál, Umhverfi, Efnahagur, Alþjóðamál, Slúður, Tækni og vísindi, Ljósmyndun, Jarðfræði þann 9. apríl 2008 af photo | | 0 ummæli Jarðgöng og vegurinn um Óshlíð á milli Ísafjarðar og Hnífsdals Hér má sjá veginn sem liggur á milli Hnífsdals og Ísafjarðar. Nýju göngin munu liggja frá Hnífsdal yfir í Bolungarvík. Óshlíðina þekkja margir úr fréttum í gegnum árin. En hún hefur löngum verið erfiður farartálmi fyrir Bolvíkinga. Mikið grjóthrun hefur verið úr hlíðum fjallana yfir veginn á milli Bolungarvíkur og Hnífsdals. Í gegnum þessi fjöll er búið að skipuleggja jarðgöng. En á myndunum má sjá að vegurinn meðfram ströndinni hefur víða verið settur í stokka til að verja umferð, sem fer um veginn, grjóthruni. Hér má sjá kort af flugleiðinni yfir Bolungarvík sem farin var á mótordrekanum. Rétt eftir að búið er að aka fyrir Óshlíðina á leið til Bolungarvíkur, þá blasir Bolafjall við hinu megin við lítinn fjörð. Þá er stutt í Minjasafnið Ósvör sem er uppgerð verbúð frá árabátatímanum. Verbúðin er ein elsta sinnar tegundar á landinu. Kjartan Flokkað undir Fjölmiðlar, Stjórnmál, Umhverfi, Efnahagur, Ferðalög, Umræðan, Tækni og vísindi, Ljósmyndun, Flug, Samgöngur, Jarðfræði þann 8. apríl 2008 af photo | | 1 ummæli HESTHÚS Í HAFNARFIRÐI, REYKJAVÍK OG KÓPAVOGI - MYNDIR Spurning er hvar eldur kom upp í hesthúsunum í Hafnarfirði. Það eru nokkur hesthúsasvæði í Hafnarfirði og hér má sjá eitt þeirra Nóg virðist vera til af fjármagninu þegar byggja þarf upp hús eða hallir fyrir hrossin sín Það eru nokkur hesthúsasvæði í Hafnarfirði og hér má sjá eitt þeirra Hesthúsahverfið í Árbæ _ Loftmynd af hesthúsahverfinu í Árbæ Hesthúsahverfið í Árbæ Spurningin er hvort þetta hesthúsahverfi tilheyri Garðabæ eða Kópavogi Fákur er komin langt út fyrir bæjarmörkin með sína aðstöðu Þessi mynd er tekin yfir hverfið í Kópavogi sem er víst komið inn í miðja borg eins og mörg önnur hestahverfi í nágreni Reykjavíkur. Lóðir og hús voru seldar fyrir metupphæð til Kópavogbæjar sem seldi aftur og græddi mikið á sölunni Hvar er svo þetta hesthúsahverfi Kjartan Flokkað undir Fjölmiðlar, Umhverfi, Íþróttir, Umræðan, Ljósmyndun þann 7. apríl 2008 af photo | | 3 ummæli GEYSIR, STROKKUR OG BLESI - MYNDIR Flott að Geysissvæðið sé að komast í eigu ríkisins. Það hefur staðið svæðinu fyrir þrifum að ekki sé hægt ð skipuleggja eitt mesta sótta ferðamannasvæði landsins vegna ágreinings milli landeiganda og ríkisins. Hér má sjá Strokk í öllu sínu veldi sem virðist vera sísprækur enda ungur að árum og á því líklega enn mikið eftir af sínum líftíma þó Geysir gamli hafi nú alltaf staðið fyrir sínu, þá er hann nú farinn að eldast greyið og yngri og sprækari teknir við. Nafnið Geysir er eitt af fáum alþjóðlegum nöfnum sem er íslenskt að uppruna og þýðir að sjálfsögðu goshver. Á myndinni af Geysi má sjá op sem er um 2 metrar í þvermál. Einnig má sjá rennuna frægu sem útbúinn var á sínum tíma til að lækka yfirborðið á Geysi. Þetta var Viagra þess tíma og aðferð sem reynt var að nota til að koma honum í gang aftur. Ekki er ólíklegt að Strokkur taki eitthvað frá honum af þeirri orku sem hann hafði áður þannig að það streymir líklega ekki eins mikið í Geysi eins og áður. Þrátt fyrir þessar aðgerðið, þá lét gosið eitthvað standa á sér. Eitthvað er enn um að það sé notuð sápa á tyllidögum til að koma honum til En Sápan virkar þannig að hún lækkar yfirborðsspennu vatnsins þannig að loftbólur eigi auðveldara með að myndast á miklu dýpi sem að lokum myndar keðjuverkandi suðu og allt að 100m vatnssúla þenst skyndilega út og þá nær hverinn að gjósa. Við hvert gos kólnar hverinn og þarf hann þá aftur smá stund til að ná að hita sig aftur upp í suðumark. En á ca. 100 metra dýpi þarf vatnið að sjóða við 120-130 gráður til að þessi suðuvirkni eigi sér stað. Spurning um það hvort að svona goshver nær að gjósa eða ekki ræðst að því hversu mikil orka kemur inn í hann neðan frá og hversu mikil kælingin er á yfirborðinu og þá hvort að orkan er nægjanleg til að láta hann gjósa af sjálfum sér. Gaman væri að prófa að þræða rör niður í botninn á Geysi og skjóta þrýstilofti inn í hann neðan frá. Spurning er hvort að það væri nægjanlegt til að koma honum af stað aftur með einföldum hætti og þá þyrfti bara lítinn þrýstihnapp fyrir ferðamennina til að fá að sjá Geysi gjósa En það er alltaf von á að Geysir lifni við eða verði eitthvað sprækari ef jarðskjálftar hafa verið öflugir á svæðinu en þá gliðnar bergið og heita vatnið nær að finna sér nýja leið upp á yfirborðið. Einnig er eins og að það hitni vel undir þegar gosvirkni verður meiri í næsta nágreni. Ýmis önnur fyrirbæri má einnig finna á svæðinu eins og Blesa Blesi er tvískiptur og þar sem sjá má sömu liti og í Bláa Lóninu í öðrum hlutanum og svo hreina hitavatnsuppsprettu í hinum. En liturinn stafar að litlum kísilflögum sem endurvarpa bláa ljósinu. Strokkur í öllu sínu veldi, fullt af ferðamönnum fylgjast spenntir með Þeir sem ferðast um svæðið verða að gæta vel að sér en vatnið er á flestum stöðum við suðumark eða 100°C Kjartan Flokkað undir Stjórnmál, Umhverfi, Ferðalög, Umræðan, Tækni og vísindi, Ljósmyndun, Flug, Jarðfræði þann 5. apríl 2008 af photo | | 0 ummæli ÞINGVELLIR - ÖXARÁ OG ÖXARÁRFOSS Í KLAKABÖNDUM - MYNDIR Umhverfisráðherra Þórunn Sveinbjarnardóttir stendur í stórræðum þessa dagana. Núna fer hvert málið á fætur öðru í gegnum kerfið og virðast engar hömlur þar á. Eitthvað voru deildar meiningar um veginn á milli Þingvallar og Laugarvatns ef mig minnir rétt. Svona til að minna á fyrsta þjóðgarð okkar Íslendinga í allri þessari umræðu, þá má sjá myndaseríu sem að ég tók í góða veðrinu fyrir nokkrum dögum síðan. Hér byrjuðum við félagarnir að ganga fram á brún Almannagjár þar sem Öxará fellur fram af og myndar fossinn Öxará. Fossinn mun víst vera manngerður af víkingum sem vantaði vatn niður á flatirnar fyrir neðan til að brynna mönnum og skepnum á meðan á þinghaldi stóð. Hér má svo sjá hefðbundna mynd af fossinum Öxarárfoss í Öxará á Þingvöllum Víðmynd eða panoramamynd af Öxarárfossi Nú fer að líða að vori og leysingar lita eða grugga vatnið. Hér má vel sjá hraðan á vatninu sem streymir fram hjá linsu myndavélarinnar Áin Öxará og fossinn Öxárárfoss eru greinilega enn í klakaböndum Ekki er auðvelt að taka myndir af fossinum sökum úða og sterks skyn sólarinnar. Kjartan Flokkað undir Stjórnmál, Umhverfi, Alþjóðamál, Ferðalög, Umræðan, Ljósmyndun, Jarðfræði þann 4. apríl 2008 af photo | | 1 ummæli ER BRÚIN NOKKUÐ AÐ HRYNJA Á SELFOSSI? - MYNDIR Við verðum að vona að það verði ekki of margir þungaflutningabílar á brúnni í einu í mótmælum vörubílstjóra sem standa yfir á Selfossi þessa stundina Hér má sjá hvað gerðist hér um árið þegar Ölfusárbrú hrundi og vörubíll fór í ánna. Ölfusárbrú, hér er horft til suðurs yfir hluta af nýja miðbænum sem verið er að byggja upp þessa dagana Hér skartar Selfoss, brúin og svo Hekla í fjarska sínu fegursta Það stendur víst til að leggja nýja brú yfir Ölfusá fljótlega og skulum við þá vona að bílstjórar fái nóg að gera fyrir þessi dýru tæki sín. Það er mikið vatn sem rennur þarna til sjávar en Ölfusá við Selfoss er með meðalrennsli um 423 m3/sek Við skulum vona að það sé svo ekki eitthvað annað sem að sé að angra blessuðu vörubílstjórana okkar. En mig grunar nú að hluti af vandamálinu geti legið í snöggum samdrætti þessa dagana. Kjartan Flokkað undir Fjölmiðlar, Stjórnmál, Umhverfi, Efnahagur, Umræðan, Ljósmyndun, Flug, Samgöngur þann 4. apríl 2008 af photo | | 0 ummæli ÞVERRIFUSKATTUR FER ÓÐUM HÆKKANDI Á ÍSLANDI Það á ekki af honum Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni að spyrja þessa dagana. Þverrifan og ritsnilldin er greinilega að koma honum í koll og virðist ekkert lát á. Þessar ofsóknir fara að jaðra við einelti og ofsóknir sem Íslendingum er lítill sómi að. Það vita allir hvernig Hannes er máli farin og taka því mis alvarlega það sem hann hefur fram að færa. Hann kemur oft með skoðanir sem öðrum mislíkar, en í lýðræðisþjóðfélagi þá verður líka að halda vörð um málfrelsið þó svo að ekki öllum líki. En annars hef ég ekki getað myndað mér skoðun á nýföllnum dómi Hæstaréttar. Líklega er ekki auðvelt að rita ævisögur þar sem fara þarf yfir fjöldann allan af heimildum. Ég veit um dæmi þess að ferðabækur sem hafa verið gefnar út eru að nota sömu textana aftur og aftur. Einnig er orðið auðvelt að leita heimilda á netinu með því að Googla það sem verið er að leita að. Fjölmiðlar gera víst ekki annað en að endursegja fréttir frá öðrum frá morgni til kvölds. Ég verð t.d. reglulega vitni að því að fjölmiðlar og fleiri eru að nota myndir frá mér aftur og aftur án þess að geta heimilda. Líklega gerði ég ekki annað en að lögsækja þá aðila, en því miður tekur það langan tíma að standa í slíku - enda lögmenn ekki beint ódýrir. Titill fréttarinnar hjá visir.is “Opinberun Hannesar fyrir helgi” er líklega til að núa saltinu í sárið. Þetta kennir líklega mönnum að gera ekki grín af stjórnsýslunni. Kjartan Flokkað undir Fjölmiðlar, Stjórnmál, Umhverfi, Efnahagur, Slúður, Trúarbrögð, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 3. apríl 2008 af photo | | 0 ummæli GLÆNÝJAR MYNDIR AF SNEKKJUNNI HANS SADDAMS HUSEINS SEM NÚ ER Í EIGU PÁLMA HARALDSSONAR. Ég var svo ljónheppin að vera á flugi á fisinu mínu þegar snekkja Pálma Haraldssonar, áður í eigu Saddams Husseins, kom til landsins og dólaði sér fyrir utan Viðey í flotta veðrinu í dag. Ef betur er að gáð, þá má sjá hvar yngismeyjar eru að spóka sig í sólinni léttklæddar uppi á þilfari snekkjunnar. Hér má sjá hvar yngismeyjar eru að spóka sig í sólinni léttklæddar uppi á þilfari snekkjunnar (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir) Til að öryggis snekkjunnar sé gætt hvívetna, þá var varðskip Landhelgisgæslunnar fengið á staðin og stendur til að þeir muni skjóta heiðursskotum í tilefni dagsins kl. 3 fyrir þá sem hafa áhuga á að sjá nánar það sem fram fer. Hér gætir varðskip Landhelgisgæslunnar öryggis snekkjunnar (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir) Hér er svo Pálmi Haraldsson að prófa nýju Snekkjuna sína og grunar mig að dömunni sé orðið frekar kalt þarna framan á bátnum í norðan næðingnum - en hvað gerir maður ekki fyrir ljósmyndarann Pálmi Haraldsson að prófa nýju Snekkjuna (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir) Hér tekur svo Pálmi smá snúning fyrir ljósmyndarann á nýju snekkjunni sinni. Pálmi Haraldsson að prófa nýju Snekkjuna (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir) Eins og sjá má, þá er snekkjan hin glæsilegasta Pálmi Haraldsson að prófa nýju Snekkjuna (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir) Að lokum vil ég óska Pálma Haraldssyni til hamingju með þessa glæsilegu snekkju. Ég er ekki í nokkrum vafa um að skipið á eftir að reynast honum hið mesta happafley í framtíðinni. Kjartan
SKAGAFJÖRÐURINN ER FLOTTUR - MYNDIR
Tekið á móti forsetahjónunum í Skagafirði

Hótel Tindastóll er vel búið hótel með öllum þægindum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Víðimýrakirkja í Skagafirði (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Gömul altaristafla í Víðimýrakirkju (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Flugumýri er staðsett í “Mekka hestamennskunnar“ Skagafirði. Hjónin á Flugumýri bjóða upp á skipulagðar hestaferðir og sýningar fyrir ferðamenn (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kynning á Íslenska hestinum fyrir dönskum ferðamönnum á Víðimýri í Skagafirði (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Glaumbær í Skagafirði (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er verið að flytja verk um Galdraloft eftir fyrir danska ferðamenn við gríðarlegan fögnuð áhorfenda (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Spurning hvort einhver veit hvað þetta hér er, úr hverju það er smíðað og hvar (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hvaða fiskur skildi þetta vera? (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Í kirkjum íslands blandast saman tákn frá ýmsum trúarbrögðum allt frá heiðnum tíma til okkar dags. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Á Hofsósi er Vesturfarasetur sem er safn um burt flutta vestur íslendinga (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Drangeyjarferjan Víkingur sem er í eigu Jóns Eiríkssonar “Drangeyjarjarls” (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hlaðin náttúruleg laug (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)TURNINN Í SMÁRALIND - MYNDIR
Búið að komast fyrir eldinn í tuninum

Turninn í Smáralind í byggingu (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Svæðið þar sem turninn í Smáralind á að rísa (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
WWW.PHOTO.ISSPENNANDI FRÉTT Í ORKUMÁLUM ÍSLENDINGA
Segjast geta breytt koltvísýringi og vetni í eldsneyti
WWW.PHOTO.ISHVAR KEMUR OLÍUHREINSISTÖÐIN TIL MEÐ AÐ RÍSA? MYNDIR OG KORT
Neitar að upplýsa um bakhjarl að olíuhreinsunarstöð

Hornið sem dökka skuggann ber á heitir Nónhorn (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hvestudalur, Arnarfjörður, Nónhorn (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
WWW.PHOTO.ISJARÐGÖNG OG VEGURINN UM ÓSHLÍÐ Á MILLI ÍSAFJARÐAR OG HNÍFSDALS - MYNDIR
Skrifað undir samning um Óshlíðargöng í dag

Hnífsdalur, Þórólfshnúkur, Miðhlíð (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
fjöllin Óshyrna, Arafjall, Búðarhyrna ásamt Ófæru (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
kort af flugleiðinni yfir Bolungarvík og nágreni (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Minjasafnið Ósvör (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)HESTHÚS Í HAFNARFIRÐI, REYKJAVÍK OG KÓPAVOGI - MYNDIR
Loftmynd af hesthúsahverfinu í Hafnarfirði (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Loftmynd af hesthúsahverfinu í Hafnarfirði. Hef heyrt að stóra höllin tengist einum ráðherra ríkisstjórnarinnar (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Loftmynd af hesthúsahverfinu í Hafnarfirði (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Loftmynd af hesthúsahverfinu í Árbæ (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Loftmynd af hesthúsahverfinu í Árbæ (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Loftmynd af hesthúsahverfinu í Garðabæ (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Loftmynd af hesthúsahverfi fyrir utan Reykjavík (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Loftmynd af hesthúsahverfi í Kópavogi rétt hjá Smáranum sem stendur til að fjarlægja (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Loftmynd af hesthúsahverfi, en hvar? (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
WWW.PHOTO.IS GEYSIR, STROKKUR OG BLESI - MYNDIR

Hér gýs Strokkur reglulega á 5-10 mín fresti (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þegar Geysir var upp á sitt besta, þá náði hann svipað háu gosi og Hallgrímskirkjuturn er eða um 70-80m (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Blesi minnir mikið á litin í Bláa Lóninu (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Blesi minnir mikið á litin í Bláa Lóninu (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Goshverinn Strokkur í öllu sínu veldi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)ÞINGVELLIR - ÖXARÁ OG ÖXARÁRFOSS Í KLAKABÖNDUM - MYNDIR

Á brún við Almannagjá á Þingvöllum þar sem Öxarárfoss fellur fram af (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Öxarárfoss í Öxará á Þingvöllum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Öxararfoss í Öxará á Þingvöllum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Öxarárfoss í Öxará á Þingvöllum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Öxará í klakaböndum á Þingvöllum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má svo sjá mynd af flúðum aðeins lengra frá fossinum
Öxará í klakaböndum á Þingvöllum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)ER BRÚIN NOKKUÐ AÐ HRYNJA Á SELFOSSI? - MYNDIR
Vörubílstjórar og bændur teppa umferð í Ölfusi

Mynd á safni niður á Eyrabakka sem sýnir þegar Ölfusárbrú hrundi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ölfusárbrú horft til suðurs (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Mynd af Selfossi, eldfjallinu Heklu í fjarska og svo brúnni sem um ræðir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hugmyndir eru uppi um að útbúa nýja brú og er þá líklegt að sú brú verði á allt öðrum stað. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Gríðarlegt vatnsrennsli er í Ölfusá enda samsett úr Soginu og svo Hvítá (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)ÞVERRIFUSKATTUR FER ÓÐUM HÆKKANDI Á ÍSLANDI
Opinberun Hannesar fyrir helgi
GLÆNÝJAR MYNDIR AF SNEKKJUNNI HANS SADDAMS HUSEINS SEM NÚ ER Í EIGU PÁLMA HARALDSSONAR.





