10.4.2008


Á ÞESSU ÞARF AÐ TAKA MARK Í ALVÖRU .


Á ÞESSU ÞARF AÐ TAKA MARK Í ALVÖRU .

Fært af brussulina undir á Vísir.is

KONUR: Á þessu þarf að taka mark, í alvöru.


Vissir þú…..

…. að ef gínur í búðum væru raunverulegar konur væru þær of grannar til þess að fá blæðingar?

…. að af 3 milljörðum kvenna í heiminum eru aðeins u.þ.b. 10 súpermódel?

…. að Marlyn Monroe notaði stærð 14 (ameríska, sem er sama og 44 í evrópu) og hafði alla karlmenn í vasanum án þess að nokkur kvartaði yfir kílóunum á henni?

….að ef Barbie væri alvöru kona væri hún svo vansköpuð að hún yrði að ganga á fjórum fótum?

…. að konur eru að meðaltali 65 kíló (ekki hávaxnar) og nota stærðir 12 til 14 (amerískar = 42-44 í evrópu)?

…. að ein af hverjum 4 konum á háskólaaldri þjáist af einhverskonar átröskun?

…. að fyrirsæturnar í glanstímaritum og sjónvarpi eru lagaðar til í tölvu eða fiffaðar með lýsingu og ljósmyndatrikkum?

…. að rannsóknir hafa sýnt að fimm mínútna lestur glanstímarita veldur þungu skapi, skömm og sektarkennd hjá um 70%kvenna

…. að fyrirsætur fyrir 20 árum voru 8% léttari en konur almennt?

…. að fyrirsætur í dag eru 23% léttari en konur almennt?


Fegurð konunnar er ekki hægt að smækka niður í mælieiningar heldur felst hún í þeirri útgeislun sem ástin á sjálfri sér veitir hverri og einni.

-Fegurð felst í þroska og góðri sjálfsímynd og fer einungis batnandi með árunum.

-Spurningin er ekki um fatastærðir, kílóafjölda, hæð eða háralit, heldur er hún spurning um að læra að elska sjálfa sig frá toppi til táar.

-Hjálpumst að við að ýta undir góða sjálfsímynd hvorrar annarar. Við erum allar æði………..og ekki gleyma því!