5.4.2008


Alvöru sæskrýmsli


Alvöru sæskrýmsli - 24 undarleg kykvendi í hafdjúpinu

real-life-sea-monsters-24-bizarre-creatures-of-the-deep

Hafið geymir mikinn fjölda skrýtinna og furðulegra skepna.  Sagt er að við vitum meira um sólarkerfi okkar en okkar eigin höf.

Reyndar eru sumar skepnur í höfunum okkur meira framandi en þú getur ímyndað þér.

En það sem verra er að sumar þeirra kunna að virðast meira ógnvekjandi en versta martröð.

Að neðan má sjá 24 skepnur úr Djúpunum!




Kímerar (Chimaeras) eru brjóskfiskar skyldir hákörlum og skötum, stundum kallaðir drauga-hákarlar eða kanínu-fiskar.   Til varnar nota þeir eiturbrodd sem staðsettur er fyrir framan bakuggann.

Þessi undarlegi brjóskfiskur notar langt trýni sitt til að kanna sjávarbotninn og finnur þannig rafbylgjur frá bráð sinni sem er grafin í leðjubotninn, líkt og málmleitartæki. Líkt og aðrar kímerur (svo sem drauga- og fílahákarlar) gjóta þessi dýr hornóttum eggjabelgjum (péturskipum) þar sem ungviði þeirra eru látin þroskast, hugsanlega allt að einu ári.

Nöðrufiskur ( Viper fish ) er djúpsjávarfiskur með langar nálalíkar tennur og neðri kjálka á hjörum.

Pelikanállinn (pelican eel).

Smokkfiskur (squid) sem fannst í maga Pelikan-áls.  

Kolkrabbi  (Dana Octopus Squid).

Þeir gefa frá sér blindandi ljósleiftur í árás á fórnarlömb sín.   Talið er að þessi afar hreyfanlegi smokkfiskur noti leifturljós til þess að rugla hugsanleg fórnarlömb sín í ríminu.   Hlutverk blossanna gæti einnig verið að lýsa upp fórnarlambið til þess að veiðin gangi betur sem og í mökunarferli eða svæðisbaráttunni.  

Risakolkrabbinn (Colossal Squid), stundum kallaður Antartíku- eða risasmokkfiskurinn  (Giant Cranch Squid), er talinn vera stærstur smokkfiska.

Úthafstunglfiskurinn (ocean sunfish) eða algengi mola er þyngsti beinfiskur í heimi en meðalþyngd hans er um eitt tonn eða 1000 kg.

Skýjaglópar (stargazers) hafa augu ofan á höfði sínu (sbr nafnið).  Þeir eru eitraðir; hafa tvo stóra eiturbrodda fyrir aftan höfuðið (opercle) og fyrir ofan brjóstuggana (pectoral fins). Þeir geta einnig valdið raflosti.

Einkennast af stórum hausum, stórum ginum og augum,  fótgönguliðar eða rottuhalar(grenadiers (rattails)) hafa granna búka sem mjókka mikið niður í langan hala eða skott.

Þessi stóri fiskur hefur hringlaga haus og gin sem snýr fram til þess að gleypa smokkfisk og fisk sem syndir upp af hafsbotni.  Eins og hjá öðrum rottuhölum hafa hængar þessarar tegundar einskonar trommuvél á sundmaga sínum sem þeir nota til að heilla dömurnar upp úr skónum, þó ekki bókstaflega audda.  Þeir verða þó að gæta fyllstu varkárni vegna þess að aðrir fiskar eins og hinir hættulegu þorskar hafa hlerunarbúnað á sínum sundmaga sem gerir þeim kleift að leita uppi uppruna slíkra hljóða.   

Síldarkóngur (Oarfish) er stór, afar langur, úthafsfiskur.

Stórkjaftshákarl (megamouth shark) er afskaplega sjaldgæf og óvenjuleg djúpsjávar hákarlstegund.  Uppgötvaður 1976, síðan hafa aðeins fáir sést eða 39 einstaklingar hafa veiðst eða sést til ársins 2007 og þeír hafa náðst á mynd.

Vígtanni (Fangtooths), einnig kallaðir ogrefiskar, eru grimmdarlega útlítandi djúpsjávarfiskar.  

Sjávarglóbrystingur (Sea robins) eru botnsjávarfiskar (scorpaeniform).

Eldflugusmokkfiskurinn (Firefly squid).

Rétt nefndur handfiskur Handfish.

Líkkistufiskur (Coffin fish) er skvapholda botnlægur fiskur sem finnst í hafdjúpinu um allan heim.  Hann getur gengið eftir botninum á stuttum uggum sínum sem minna á fótleggi.  Þessir fiskar koma oft upp í neti og eru þá uppblásnir eins og boltar.   Líkt og ígulfiskar (-ker) geta þeir gleypt mikið af vatni þannig að þeir uppbelgjast, líklega í þeim tilgangi að gera ránfiskum erfiðara fyrir að bíta þá. 

Drekafiskur (dragonfish).

Bláhringjaði kolkrabbinn (blue-ringed octopus) er á stærð við golfkúlu, en eitur hans er nógu öflugt til að bana mönnum.  Ekkert mótefni fyrirfinnst.

Blöðrufiskur (Blobfish) finnast á dýpi þar sem þrýstingurinn er mörgum sinnum meiri en við yfirborð sjávar, sem gerir líklega gasblöðrur óhagkvæmar.   Til að geta haldið sér á floti er hold blöðrufiskjarins fyrst og fremst hlaupkenndur massi og aðeins minni eðlismassa en vatn; þetta gerir fiskinum kleyft að synda ofar hafsbotni án þess að þurfa að eyða til þess mikilli orku.  Vöðvaskorturinn er ekki ókostur þar sem hann etur það sem flýtur í ginið.

Sægúrkan (sea cucumber).

Eðlufiskurinn (lizardfish).

Og ég hef ekki hugmynd um hvað þessir heita.  Getur þú hjálpað mér?