12.12.2007
Heilablóðfall : Munið ÞRJÚ FYRSTU SKREFIN
Hæ allir,
Þetta eru ágæt heilræði – legg til að allir lesi þetta – tekur 1 mínútu. Bróðir minn dó úr heilablóðfalli bráðungur og ef þeir sem voru með honum þegar hann veiktist hefðu þekkt einkennin hefðu þeir hugsanlega haft séns á að koma honum undir læknishendur. Ekki get ég hugsað mér neitt ömurlegra en það að lenda í þeirri aðstöðu að einhver veikist við hlið mér og ég viti ekkert og geti ekki hjálpað og þurfa síðan að lifa með því.
Alla vega er þetta einfalt og auðlesið.
Heilablóðfall : Munið ÞRJÚ FYRSTU SKREFIN
20 MARS 2006
Vinur minn sendi mér þetta og hvatti til að senda áfram til að koma þessum áríðandi skilaboðum á framfæri.
Hvernig þekkir maður heilablóðfall:
vinkona mín sem var að fá heilablóðfall hrasaði við og datt og hún sannfærði viðstadda um að það væri allt í lagi með sig, hún hefði bara hrasað út af nýju skónum sínum. Síðar um kvöldið hringdi eiginmaður hennar og sagði að hún hefði látist og dánarorsökin væri heilablóðfall. Ef þeir sem voru með henni hefðu þekkt einkenni heilablóðfalls þá hefði kannski verið hægt að bjarga henni. Heilablóðfall dregur suma til dauða en lamar aðra.
Taktu þér smástund til að lesa eftirfarndi:
Taugasérfræðingur segist geta snúið við afleiðingum heilablóðfalls ef hann fær sjúklinginn nógu fljótt, galdurinn sé að greina blóðfallið og koma sjúklingnum á sjúkrahús innan þriggja klukkustunda.
HVERNIG HÆGT ER AÐ ÞEKKJA HEILABLÓÐFALL þrjú mikilvæg skref sem þú skalt muna:
Sá sem vill komast að því hvort um heilablóðfall er að ræða á að spyrja þriggja einfaldra spurninga:
B* Biddu viðkomandi að BROSA .
T * Biddu manneskjuna að TALA, SEGJA EINFALDA SETNINGU Í SAMHENGI (sólin skín í
dag en í gær var rigning)
L * Biddu hana/hann að LYFTA BÁÐUM HANDLEGGJUM UPP
{ ath : Annað merki um heilablóðfall: B iddu viðkomandi að reka út úr sér tunguna og ef hún er bogin til annarrar hliðarinnar getur það líka verið merki um heilablóðfall }
Ef viðkomandi á í vandræðum með eitt eða fleiri af þessum fyrirmælum hringdu þá í 112 og lýstu einkennunum.
Hjartasérfræðingur hefur sagt að ef allir sem fá þetta bréf sendi það til 10 manns muni það bjarga amk einu mannslífi.
_______________________________________________________