18.11.2007


Af hverju er hampur ólöglegur




        
Af hverju er hampur ólöglegur

Marijuana-samsærið - helsta ástæða þess að hampur er ólöglegur

18.júní, 2005 - 15:24

Sjá einnig greinina "The Truth about Drugs". Ég hef endurskrifað hana vegna þess að hampur er afar gagnleg planta, og samsærið gegn henni vekur mér forvitni, ekki af því að ég trúi að það sé ok að reykja kannabis til að komast í "vímu". Bestu vímuna færðu í beinu sambandi við Föðurinn.

http://www.world-mysteries.com/marijuana1.htm

 

041_picseftir Doug Yurchey

Og ég mun rækta fyrir þá plöntu sem verður fræg, og þeir munu ekki kenna hungurs þrátt fyrir hungursneyð í landinu.

-- Ezekiel 34/29

Meginástæða þess að kannabis hefur verið gert útlægt er ekki vegna áhrifa þess á huga og líkama.

MARIJUANA er VARASAMT. ÞAÐ er EKKI hættulegt mennskum líkama eða huga. Marijuana skapar EKKI hættu fyrir almenning. Marijuana er afar hættulegt fyrir olíufyrirtækin, áfengis- og tóbaksiðnaðinn og mörg lyfjafyrirtæki. Ýmis stórfyrirtæki með fé og áhrif hafa haldið sannleikanum frá fólkinu.

Sannleikurinn er að væri marijuana hagnýtt vegna mikilla sölumöguleika yrði til efnahagsleg atombomba! Frumkvöðlar hafa ekki verið menntaðir um mögulega framleiðslu "grass". Hinum ofurríku hefur verið tjáð að ef fólki yrði leyft að rækta svo fjölhæfa plöntu og með réttri notkun, yrði það til að koma fyrirtækjum þeirra á hausinn. .

Hvaðan kemur orðið 'marijuana'? Á miðjum fjórða áratug tuttugustu aldar var það búið til til þess að flekka hina góðu ímynd og einstætt orðspor hampjurtarinnar...eins og þú munt lesa. Staðreyndirnar sem hér munu koma fram, ásamt heimildasafni getur þú fengið staðfest í Fjölfræðibók Britannica sem var reyndar prentuð á hamp-pappír í 150 ár:

* Allar skólabækur voru gerðar úr hampi eða hör-pappír þar til á níunda áratug nítjándu aldar; Hemp Paper Reconsidered, Jack Frazier, 1974.

* Það var löglegt að greiða skatta með hampi í BNA frá 1631 til fyrrihluta 19. aldar; LA Times, 12. ág., 1981.

* Bannað var að hafna hampræktun í USA á 17. og 18. öld, skv lögum! Í Virginíu gastu verið fangelsaður á árunum 1763 til 1769 ef þú neitaðir að rækta hamp; Hemp in Colonial Virginia, G. M. Herdon.

* George Washington, Thomas Jefferson og aðrir stofnendur ríkisins ræktuðu hamp; Dagbækur Washington og Jefferson.

Jefferson smyglaði hampfræjum frá Kína til Frakklands og þaðan til BNA.

* Benjamin Franklin átti eina fyrstu pappírsverksmiðju í BNA og hún notaðist við hamp. Einnig, styrjöldin 1812 var vegna hamps. Napoleon vildi koma í veg fyrir útflutning Moskvu til Englands; Emperor Wears No Clothes, Jack Herer.

* Í þúsundir ára voru 90% af öllum seglum og reipi um borð í skipum gerð úr hampi. Orðið 'canvas' er hollenskan fyrir kannabis; Webster's New World Dictionary.

* 80% af allri vefnaðarvöru, dúkum, fötum, lérefti, klæðum, rúmfötum osfrv. var gerð úr hampi fram á 3. áratug 19. aldar, eða þar til notkun á baðmull hófst með fræskiljunni.

* Fyrstu biblíurnar, landakortin, skrár, fyrstu fánar og sjálfstæðisyfirlýsing BNA voru gerð úr hampi; Skjalasafn bandarísku rikisstjórnarinnar.

* Fyrsta ræktun í mörgum ríkjum var hampur. 1850 var metframleiðsluár í Kentucky, 40,000 tonn. Hampur var ágóðavænsta ræktunin fram að 20. öld; Skjalasafn ríkisins.

* Elstu heimildir um hampræktun eru 5000 ára gamlar í Kína, jafnvel þótt hamp-iðnvæðing hafi líklega farið fram í Egyptalandi til forna.

* Rembrants, Gainsboroughs, Van Goghs og fleiri málverk voru aðallega máluð á hamplín.

* 1916, áætlaði bandaríska ríkisstjórnin að á fimmta áratug 20. aldar yrði væntanlega öll pappírsframleiðsla úr hampi og þyrfti ekki framar að höggva niður tré. Opinberar rannsóknir sýna að ekra af hampi jafngildi 4.1 ekru af trjám. Stefnt var að því að auka hampræktun; Landbúnaðarráðuneyti BNA.

* Gæða málning og lökk voru gerð úr hampfræsolíu fram til 1937. 58,000 tonn af hampi voru notuð í BNA í framleiðslu málningarvara 1935; Þetta kom fram í vitnisburði Sherman Williams Paint Co. fyrir b. þinginu er verið var að ræða frumvarp Marijuana Tax Act 1937.

* T-bílnum hans Henry Fords var ætlað að verða knúinn af hampbensíni og bíllinn sjálfur settur saman úr hampi! Ford sjálfur var myndaður á stórri landareign sinni innanum hamp-akrana. Bíllinn, 'ræktaður úr jarðvegi,' hafði hamp-plastþil, en styrkleiki þess var tíu sinnum meiri en stáls; Popular Mechanics, 1941.

* Hampur kallaður 'Milljarða afurðin.' Afurðin var sú fyrsta sem skilaði meiri en milljarðs dala tekjum; Feb., 1938.

* Mechanical Engineering Magazine (Feb. 1938) birti greinina 'The Most Profitable and Desirable Crop that Can be Grown.' Þar var því haldið fram að ef hampur yrði ræktaður með tækni 20. aldar, gæti hann orðið mesta landbúnaðarafurð BNA og heimsins alls.

Eftirfarandi upplýsingar koma beint úr 14 mín. mynd Landbúnaðarráðuneytisins bandar. 1942 þar sem þjóðhollum bændum er kennt og þeir hvattir til að taka 350,000 ekrur til hampræktunar á hverju ári sem framlag til stríðsins sem þá geisaði:

'...(þegar) Grisk musteri voru ung, hafði hampur þegar náð elli í þjónustu mannkynsins. Í þúsundir ára, jafnvel þá, hefur þessi planta verið ræktuð fyrir kaðlaknippi og klæði í Kína og annarsstaðar í Austrinu. Um aldir fyrir árið 1850 uþb. höfðu öll skip sem sigldu í Vesturhöfum segl og kaðla úr hampi. Jafnt fyrir sjómanninn sem böðulinn var hampurinn nauðsynlegur...

...Nú er japanir sækja sinn hamp til Filipseyja og Austur Indía...verður bandarískur hampur að mæta þörfum landhers og sjóhers sem og atvinnuveganna okkar...

...aðgangur sjóhersins fer hratt minnkandi. Þegar það er búið mun bandarískur hampur komast í notkun á ný; hampur fyrir landfestar skipa; og fyrir toglínur; fyrir átök og drifbúnað; fyrir óteljandi viðvik á sjó og í landi. Á sama hátt og er öldruð orrustuskip sigldu sigursæl um heimsins höf með hamp hliðarstög og hamp segl. Hampur til sigurs!'

Staðfestar sannanir frá þingbókasafninu; fundnar í rannsóknum Jack Herer, hrekja fullyrðingar annarra opinberra stofnana um að fræðslumynd landbúnaðar-ráðuneytis frá 1942, "Hampur til sigurs" hafi aldrei verið gerð.

Hampræktun og -framleiðsla skaðar ekki umhverfið. cultivation and production do not harm the environment. Þessi tilkynning ráðun. er nr. 404 upplýsir að hampur gefi af sér 4 sinnum meiri kvoðu og mengi jafnframt fjórum til sjö sinnum minna. Popular Mechanics, Feb. 1938:

'Hann hefur hraðan vaxtartíma...Hægt er að rækta hann hvar sem er...Langar ræturnar brjóta niður jarðveginn þannig að hann verði í fullkomnu lagi á næsta ræktunartímabili. Hin þéttu laufblöð, í 2 - 4 metra hæð frá jörðu, koma í veg fyrir að illgresi þrífist með góðu móti.
...hampur, þessi nýi landnemi getur aukið óendanlega mikið við bandarískan landbúnað og atvinnuvegi.'

Á fjórða áratug síðustu aldar hefðu nýjungar í vélabúnaði landbúnaðarins valdið iðnbyltingu ef hampræktun hefði fengið að njóta þeirra. Þessi eina afurð hefði skapað milljónir nýrra starfa og getið af sér þúsundir hágæða vara. Hampur, hefði hann ekki verið ólöglegur hefði hann leitt Bandaríkin út úr hinni miklu kreppu.

William Randolph Hearst (Citizen Kane) og Hearst-pappírsframleiðsludeild Kimberly Clark átti geysimikið skóglendi. Hearst-fyrirtækið framleiddi aðallega pappírsvörur. Afi Pattyjar Hearst, sem var ábyrgur fyrir miklum skaða í náttúrunni í eigin hagnaðarskyni, átti á hættu að tapa milljörðum dala vegna hampsins.

1937, fékk Dupont einkaleyfi á aðferðinni við að búa til plast úr olíu og kolum. Dupont hvatti fjárfesta til að kaupa hlutabréf í þessari nýju deild. Gerviefni svo sem plast, sellófan, metanól, nælon, rayon, Dacron, osfrv. var nú unnt að búa til úr olíu. Hampræktun og -iðnaður hefðu stútað meira en 80% af viðskiptum Duponts.

SAMSÆRIÐ

Andrew Mellon varð Fjármálaráðherra í ríkisstjórn Hoovers og helsti fjárfestir í Dupont. Hann skipaði fjölskyldutengdan náunga, Harry J. Anslinger, forstjóra Alríkiseftirlitsins með fíkniefnum og hættulegum lyfjum.

Fjármálaofurmenni héldu leynifundi. Hampur var lýstur skaðvænlegur og talin ógn við milljarða fyrirtæki þeirra. Til þess að ekkert ógnaði veldi þeirra varð að banna hampinn. Þessir kallar tóku lítilvægt mexikanskt slanguryrði: 'marihuana' og tróðu því inn í vitund bandarísku þjóðarinnar.

FÖLSUN FJÖLMIÐLA

Leifturstríð 'gulu pressunnar' geisaði um og eftir 1930. Dagblöð Hearst-samsteypunnar birtu sögur og greinar sem lýstu ógnum marihuana. Skelfing marijuana varð forsíðuefni. Lesendur voru fræddir um að það væri ábyrgt fyrir mörgu, þám. bílslysum og skertri siðgæðisvitund.

Kvikmyndir eins og 'Reefer Madness' (1936), 'Marihuana: Assassin of Youth' (1935) og 'Marihuana: The Devil's Weed' (1936) var beitt í áróðursskyni af þessum iðnframleiðendum til að búa til þjóðaróvin. Tilgangur þeirra var að afla stuðnings almennings til þess að auðvelda leið laga sem bönnuðu Maríjúana í gegnum þingið.

Athugið eftirfarandi tilvitnanir úr 'brennandi spurningunni' sem kom fram í REEFER MADNESS:

ofsafengið eiturlyf .

athafnir hneykslanlegs ofbeldis

ólæknandi geðveiki

sálarskemmandi áhrif

undir áhrifum eiturlyfsins myrti hann alla fjölskyldu sína með exi

ofbeldisfyllri, banvænni jafnvel en eftirfarandi eiturlyf (heróín, kókein) er ógnin af marihuana!

Reefer Madness endaði ekki með hinu venjulega 'the end.' Myndin endaði með þessari setningu á tjaldinu: TELL YOUR CHILDREN.

Á fjórða áratug 19. aldar var fólk afar barnalegt; og jaðraði það við fávisku. Fjöldinn var eins og kindur sem biðu þess að verða leiddar af hinum fáu við völd. Hann efaðist ekki um orð yfirvalda. Væru fréttirnar á prenti eða í útvarpi trúði fólk að það hlyti að vera satt og rétt. Það sagði sínum börnum sem uxu úr grasi og urðu foreldrar barnafjölgunarinnar.

Hinn 14. ap. 1937 komst frumvarpið um bann á maríjúana og hamp til þingnefndar sem fjallaði um rétta og góða hegðun. Þessi nefnd er sú eina sem hefur vald til að koma málum til afgreiðslu á þingi, án þess að aðrar nefndir hafi neitt um það að segja. Formaður þessarar voldugu nefndar, Robert Doughton, var stuðningsmaður Dupont. Hann var trygging fyrir því að frumvarpið yrði samþykkt á þingi.

Dr. James Woodward, læknir og lögmaður, bar of seint vitni fyrir Bandarísku lyfjastofnunina (Bl). Hann sagði nefndinni að ástæða þess að Bl hefði ekki fyrr fordæmt lögunum um Maríjúana væri sú að hún hefði þar til nýlega ekki vitað að marihuana væri hampur.

Fátt fólk, á þeim tíma, gerði sér grein fyrir því að hin hættulega ógn sem það hafði verið að lesa um á forsíðum Hearst-blaðanna væri í raun hinn hættulausi hampur. B.l. skildist að kannabis væri læknislyf sen fyrirfyndist í ótal græðandi framleiðsluvörum sem hefðu verið í sölu síðastliðin 100 ár.

Í sept. 1937, varð hampur ólöglegur skv. lögum. Sú afurð sem hafði flesta kosti þekktra lífrænna afurða varð allt í einu orðin eiturlyf og af þeirri ástæðu hefur pláneta okkar þjáðst síðan.

Þingið bannaði hamp vegna þess að hann var talinn valda svo miklum skaða. Anslinger, forstjóri lyfjanefndarinnar í 31 ár, hélt því fram að marihuana ylli því að notendur þess yrðu afar ofbeldisfullir. Á sjötta áratug 19. aldar, er kommúnistahatrið var sem mest á McCarthy-tímanum, fullyrti Anslinger hið gagnstæða. Marijuana gerir yður svo óvirka að hermenn myndu ekki vilja berjast.

Í dag á pláneta okkar við mikinn vanda að stríða. Earth is Today, our planet is in desperate trouble. Jörðin þjáist á sama tíma og miklum skógum er eytt. Mengun, eitur og skaðleg efni eru að drepa fólk. Þessu vandamáli mætti eyða aðeins ef við efldum ræktun og notkun hamps. Náttúrulegur lífmassi gæti komið í stað eldsneytis sem framleitt er með steingerðum leifum. Við höfum notað 80% af olíu- og gasbirgðum okkar. Við þurfum endurnýjanlegar birgðir. Hampur gæti orðið lausnin á hækkandi bensínverði.

UNDRAJURTIN

HAMPUR hefur betri trefjar en viður. has a higher quality fiber than wood fiber. Mun færri ætandi efni þarf til þess að búa til pappír úr hampi en trjám. Hamppappír gulnar ekki og er afar endingargóður. Plantan nær fullorðinsaldri fljótt á sumri en tré eru lengi að því.

ALLAR PLASTVÖRUR ÆTTU AÐ VERA FRAMLEIDDAR ÚR HAMPFRÆSOLÍU. Hampplast eyðist sjálfkrafa í náttúrunni! Með tímanum brotnar það niður og skaðar því ekki umhverfið. Plastvörur sem eiga ættir sínar að rekja til olíu, þær sem við könnumst svo vel við, eru ekki umhverfisvænar; þær brotna ekki niður og valda skaða í framtíðinni. Ferlið við að framleiða plast úr hampi mengar ekki árnar eins og Dupont og önnur slík fyrirtæki hafa gert. Hampvörur eru öruggar og náttúrulegar.

LYF ÆTTU AÐ VERA GERÐ ÚR HAMPI. Við ættum að snúa aftur til tímans er B.l. var fylgjandi kannabis-lækningum. 'Lækninga marijuana' er gefið löglega til örfárra útvalinna, á sama tíma og við hinir verðum að reiða okkur á gerviefni. Hampur er einungis hollur fyrir mennskan líkama.

HEIMSINS HUNGRI GÆTI ORÐIÐ ÚTRÝMT. Fjölbreytni matvæla frammleiddra úr hampi er mikil. Fræin hafa einna mest allra plantna af prótíni. EINNIG: Þau hafa tvær nauðsynlegar fitusýrur sem hreinsa kolestrol úr líkama þínum. Þessar nauðsynlegu fitusýrur finnast ekki annarsstaðar í náttúrunni! Neysla marijuana fræa er það besta sem þú getur gert líkama þínum. Etið ósoðin hampfræ.

FÖT ÆTTU AÐ VERA GERÐ ÚR HAMPI. Hampsföt eru sérstaklega sterk og endingargóð. Þú gætir auðveldlega arfleitt barnabörn þín að fötum sem gerð hafa verið úr hampi. Nú á dögum framleiða ýmis bandarísk fyrirtæki föt úr hampi; venjulega 50% hampur. Hampvefnaður ætti að vera allsstaðar. Í þess stað er hann nánast neðanjarðar. Yfirburði hampsvara má ekki auglýsa í sjónvarpi fasista. Kentucky, þar sem einu sinni var mest framleitt af hampi i heiminum, setti það í lög fylkisins að BANNAÐ VÆRI AÐ KLÆÐAST hampsfötum! Getur þú gert þér í hugarlund þann fáránleika að lenda í steininum vegna þess að þú átt og klæðist gæðabuxum?

Heimurinn er klikkaður...en það þýðir ekki að við verðum að taka þátt í klikkelsinu. Stöndum saman. Látum fréttirnar berast út. Segið fólki, og þar með einnig börnum þínum, sannleikann. Notið hampvörur. Útilokið orðið 'marijuana.' Munið hvernig nafnið kom til. Stuðlið að því að það verði ólöglegt að segja það eða skrifa. Berjist gegn áróðrinum (sem hannaður er til að vinna fyrir hina ofurríku) og bullinu. Hampur verður að vera nýttur í framtíðinni. Við þörfnumst hreinnar orku til þess að geta bjargað jörðinni. IÐNVÆÐIÐ HAMPINN!

Áfengis-, tóbaks- og olíufyrirtækin styrkja um milljónir dala baráttuna gegn eiturlyfjum. Við höfum öll séð auglýsingar þeirra. Núna eru kjörorð þeirra: ‘Það er enn hættulegra en við töldum.' Lygar þessara fyrirtækja, sem byrjuðu með Hearst, lifa enn góðu lífi í dag.

Heilaþvotturinn heldur áfram. Núna segja auglýsingarnar: Ef þú kaupir þér jónu, stuðlarðu að morðum og átökum glæpagengja. Síðustu auglýsingar gegn hampvörum segja: Ef þú kaupir þér hass...ertu að styrkja HRYÐJUVERK! Nýi óvinurinn (hryðjuverk) er nú notaður til þess að heilaþvo þig á hvern þann hátt sem ÞEIM þykir við hæfi.

Óvinurinn er aðeins einn; vingjarnlega fólkið sem þú greiðir skattana þína; stríðsmangararnir og óvinir náttúrunnar nr. 1. Með stuðningi þínum eru þeir að drepa heiminn fyrir framan augu þín. TÓBAKIÐ BANAR HÁLFRI MILLJÓN MANNA ÁRLEGA. ÁFENGIÐ BANAR EINNIG HÁLFRI MILLJÓN MANNA Á ÁRI. MARIJUANNA HEFUR ENN EKKI BANAÐ NEINUM!!! Aldrei í mannkynssögunni hefur verið unnt að rekja dauðsfall til kannabis. Samfélag okkar hefur gert "gras" útlægt en leyfir notkun á banvænum efnum: TÓBAK og ÁFENGI. Hampur ætti að fá uppreisn æru og í kjölfarið ætti að selja hann í lyfjabúðum til þess að minnka stress fólksins. Herpingur og stíflun blóðæða er hið versta mál; en hampnotkun víkkar reyndar æðarnar...sem er afar heilbrigt ástand. Okkur hefur verið tamið að telja að: Reykingar valda skaða. Það á EKKI við um óvirkt hass.

Neysla á THC, hinu virka efni í hampi hefur jákvæð áhrif; læknar astma og gláku. Maríjúana-sígaretta stuðlar að því að minka ógleði sem efnalækningar valda. Þú getur borðað á hampi. Þetta er heilbrigði tilverunnar.

{Úr lífi höfundar: Á meðan eiginkona mín var barnshafandi átti hún í erfiðleikum með að þyngjast. Við vorum stödd á spítalanum. Hjúkka bað okkur að koma afsíðis og sagði: ‘Utan dagskrár, ef þú reykir marijúana...munt þú fá dálítið sem kallast "munchies" og munt í kjölfarið þyngjast. 'Ég sver að þetta er sönn saga).

Ímynd hasshaussins líkist fyllibyttu með ónýtan haus. Samt er það svo að sköpunarhæfni manna vex að mun undir áhrifum þess. Tímaskynjunin minnkar og maður verður hugmyndaríkari. Maður undir áhrifum kannabis kann betur að meta allskonar listir; upplifir náttúruna nánar og finnur betur til alls annars. Með öðrum orðum má segja að ástand hans sé algerlega andstætt drukkna mannsins. Maður getur orðið næmari.

Hassplantan er framandi jurt. Staðreyndir sýna að Kannabis er ólík öllum öðrum jurtum á þessari plánetu. Auðvelt er að álykta að hún hafi verið send hingað til góða fyrir mannkynið. Hampur er EINA jurtin sem lætur kynin virðast afar ólík, líkamlega! Enginn talar um karljurt eða kvenjurt nema þegar rætt er um Kannabis. Að greina kyn hampsins er auðvelt. Til þess að greina fræfla og frævur þarf að skoða DNA bygginguna. Karlkynsgrasstrá hefur nákvæmlega sama útlit og kvenkynsgrastrá. Hampurinn hefur ákaflega sterka kynhneigð. Ræktendur vita að best er að drepa karlkynið áður en kvenkynið er frjóvgað. Já, vinir...máttugasta hassið kemur frá 'gröðum kvenjurtum'.

Ástæðan til þess að þessi stórkostlega, afar þróaða, framandi jurt úr framtíðinni er ólögleg hefur alls ekkert með meint líkamleg áhrif á okkur að gera...

…HASS ER ÓLÖGLEGT VEGNA ÞESS AÐ HINIR RÍKUSTU VILJA VERA ÞAÐ ÁFRAM!

Es: Að mínu mati á alls eki að nota orðið 'FÍKNIEFNI' yfir öll efnafræðileg efni. Fíkniefni eru almennt talin vera eitthvað SLÆMT. En hvað með öll löglegu lyfjafyrirtækin og apótekin?! Já í hverju krummaskuði. Ótrúlegt. Hvert og eitt fíkniefni ætti að verða metið sérstaklega. Kannabis er lyf en ekki eiturlyf. Við ættum að ÞORA að ræða SANNLEIKANN hvað sem lögin segja.