25.10.2007
Vilji Guðs - Bakþankar Dr. Gunna
Vilji Guðs - Bakþankar Dr. Gunna A Einhversstaðar, í annarri vídd jafnvel, er því búið að hola niður Guði og hans stórkostlega himnaríki sem er örugglega útúrhannað og Innlit/Útlit þyrfti að taka 3 þætti í að fjalla um. Nákvæm staðsetning er á huldu og himnaríki hefur aldrei sést í stjörnukíkjum, en fólk efast samt ekkert um þetta, enda þægileg tilhugsun að komast á svona eðalstað þegar staðið er frammi fyrir gangi lífsins. Guð Þegar hann kom síðast blés hann nokkrum náungum heilögum anda í brjóst og lét þá skrifa leiðarvísi fyrir lífið sjálft með alls konar fyrirmælum, boðum og bönnum. Í dag hefur fullorðið fólk enn atvinnu af því að vera útsendarar Guðs á jörðinni og á fullu kaupi hjá ríkinu rífst það árlega um það hvort samkynhneigðum skuli veitt sömu mannréttindi og öðrum. Frá þessu er sagt í fjölmiðlum og sömu grettu andlitin birtast, jafn forpokuð og fordómafull og á síðasta ári, veifandi leiðarvísinum og farandi með sömu þreyttu tugguna. Sífellt kvarnast þó úr forpokanum og ég spái því að fullkomin mannréttindi fái samkynhneigðir árið 2011. Nú Út var að koma ný þýðing á leiðarvísinum og hún er alls ekki jafn forpokuð og sú síðasta. Búið er að breyta fyrirmælunum i átt til hins félagslega siðferðis sem nútímafólki þykir eðlilegt. Hinir forpokuðu ætla því að gefa skít í nýja leiðarvísinn og halda sig við gömlu góðu útgáfuna með "kynvillingunum" og öðru fornaldarfíniríi, enda vita þeir fyrir víst að Guð er fornaldargaur og örugglega ekki með internet heima hjá sér eða neitt. Meðan 