7.10.2008

Eitruð flétta


 

Ramakveinin urðu hærri þar sem að þau bárust ógnvænlega frá skógarveggnum.    Ti var ekki lengur svo viss um þau kæmu frá elskendum á fullu, þótt svæðið væri einmitt kjörið fyrir slíkar athafnir.   Hefði hann ekki vitað betur hefði hann getað fullyrt að hér væru draugshljóð á ferðinni!








 


6.10.2008

Skælandi blæjan

Skælandi blæjan

Óendurgoldinni ást svarað...

Anna strauk höndum yfir blúnduna á fallegum brúðarkjólnum. Hún hafði keypt hann fyrir lag, Imagine, 50,000 króna kjól fyrir tíunda hluta af uppsettu verði! Og búðareigandinn hafði mas verið afar áfjáður í að ljúka viðskiptunum, eins og hætta væri á að Anna skipti um skoðun.


12.6.2008

Draugahús

 



 

Ómur af draugalegri símhringingu.

Manda:"Halló Â…Â…Â…Â…Â… þú hefur náð sambandi við Gjaldfrjáls-draugahús, Manda talar, hvernig get ég aðstoðað þig?"

Georg:"Jamm, halló, Georg hér, ég er nú dáldið á nálum - hringi enda í fyrsta sinn - ég er nú frekar hress náungi, en þú ert ekki að draga mig á asnaeyrunum er það nokkuð? Geturu í alvöru bent mér á draugagang?"

Manda: "Audda! Til þess erum við hér. Draugahús er þjónusta sem hefur verið við lýði um aldir sem útvegar ráð- og leiðbeiningar þegar valin eru andleg eða líkamleg lífform leitandi að æskilegum heimilum."

Georg: "Ég er dálítið ruglaður - rétt áðan bar ég hönd að eyra mér og alltíeinu hélt ég á símtóli og þú varst á línunni!"

Manda:"Við hreykjum okkur af því hve auðvelt er að hafa samband og nota tæknivæddustu forntólin. Hvernig get ég aðstoðað yður herra?"



14.1.2007

Fleiri sannar draugasögur


 

Frá Garðari - 01/13/06 - Efni DRAUGUR 

Hey ég rakst á Netsögu er ég var að afla mér vitneskju um það hvað draugar eru í raun.   Mig langar að segja þér sögu um það sem ég sá, en ég bý enn hjá mömmu í húsi sem byggt var á 5. áratug 20. aldar, í Breiðholti.  Húsið var áður í eigu gamallar konu Lovísu Birnu og eiginkalls hennar en hann var þegar látinn er fjölskylda mín keypti húsið.  Faðir minn dó úr hjartaáfalli 11 árum seinna á spítala 1995.

Demon Rising



16.11.2006

Maðurinn í þokunni.

Maðurinn í þokunni


Stefán drap í rettunni um leið og hann tendraði glóðina í annarri í arineldinum.   Þetta var eikkað nýtt.  Sá Stefán sem ég þekkti myndi aldrei reykja.  

Hann hallaði sér aftur í hægindastólnum, saug lengi og andaði hægt að sér,  og blés síðan hægt frá sér reyknum sem lýstist upp af eldsbjarmanum úr arninum.    'Já ég veit að ég hef ekki haft samband í langan, langan tíma.   Mér þykir það verulega leitt.    En ástæðan fyrir því er góð.'





16.11.2006

Andaglas


Andaglas (Ouija-board)


 

Flestar sögur og skýrslur tengdar yfirnáttúrulegum og dulrænum fyrirbærum tengjast notkun á andaborði.


Hugtakið "Ouija" (anda) er eignað Parker bræðrum sem settu það á markað sem leik án þess að veita neinar skýringar eða upplýsingar um það hvernig það virkaði, þótt ein fyrri tíma grein segi það geta tengst innri vitund.  




15.11.2006

Gesturinn

GESTURINN 

Anna Lísa,  Davið og börnin þeirra þrjú  Mási, Gemma og Snæfríður voru nýflutt inn í 5 svefnherbergja sumarhús sem byggt var á tímum Jóns Sigurðssonar á nítjándu öld og var staðsett í þorpinu Stokkseyri  skammt frá Selfossi. Davíð hafði nýverið tekið upp samstarf við lögmannafyrirtæki í  Oxford og var sú ástæða flutninganna. 

Er fjölskyldan hafði annað hvort haldið til vinnu eða skóla  ákvað Anna Lísa að ganga frá restinni úr tveimur kössum sem voru leirmunavörur.    Ef til vill yrði það til að breyta þeirri undarlegu tilfinningu hennar um að vera ekki velkomin í þetta hús.   Hvernig gæti hún mögulega útskýrt fyrir öðrum í fjölskyldunni hvernig henni leið? 





2.10.2006

Dauðapróf

                            Dauðapróf

Einar varðstjóri stóð við móttökuna á löggustöðinni önnum kafinn við það sem löggur gera jafnan í móttökunni, er persónu varð  bókstaflega gengið í gegnum hurðina.

Jæja, svo ég geri mig skiljanlegan, var dyrunum ekki lokið upp og ekkert gat var á hurðinni.

Hann kom reyndar í gegnum viðinn án þess að valda neinum skaða.
 
Persónan sem reyndar var kall gekk að Einari og sagði:
 "Ég er mættur til þess að skýra frá morði."






29.9.2006

Reimleikar í BNA


ÓlafurÞórEiríksson:




 

                  Reimleikar í Bandaríkjunum


 

Rétt eins og þú gætir gert þér í hugarlund er það heljarinnar mikið verk að safna heimildum í flokka um drauga og reimleika í öllum fylkjum BNA.


29.9.2006

Draugagangur í Washington


Bellingham

Herragarðurinn
The Mansion


 

Þessi staður, einfaldlega kallaður The Mansion sem þýðir herragarðurinn, er sagður hafa all öfugsnúna blöndu fyrirbæra sem eru ma. þrjár sérstakar verur eða andar.
 
Þá er fyrst til að nefna hljóð í konu




29.9.2006

Draugagangur í Utah

Mountain Meadows
Fjallsengi

Mountain Meadows, Utah voru vettvangur hroðalegs glæps sem var framinn sameiginlega af Indjánum og Mormónum á um 140 óvopnuðum körlum, konum og börnum á miðri 19. öld.

Sagan er löng og í mörgum útgáfum, en samantekt á því sem gerðist í Fjallsengi er eftirfarandi:

Stór og nokkuð ríkmannleg vagnalest með margar fjölskyldur um borð var á leiðinni vestur á bóginn frá Arkansas til Kalíforníu, þar sem átti að nema land.



28.9.2006

Draugagangur í Tennessee


Adams

Reimleikar hjá Bell
fjölskyldunni
 
(Bell Witch Haunting)

Draugagangurinn sem kenndur er við Bell-nornina er einna einkennilegastur og best skráður draugagangur allra reimleika í bandarískri sögu, og ekki að ástæðulausu.


28.9.2006

Draugagangur í Rhode Island

Warren

Krossgötur Milford & Hornbine veganna í Swansea

29. júní 1675, drápu Indjánar 7 hvíta landnema og afhöfðuðu þá síðan og markaði það upphafið að 15. mánuði stríðsins sem kennt var við Filipus kóng.

Höfuðin fundust daginn eftir við bakka Kickemuit-árinnar á svæði sem nú kallast School House Road (skólahússvegur). 



27.9.2006

Draugagangur í Norður Karólínu

Beaufort

Hammock House
Hammock-húsið

Engin samantekt á draugum í Norður Karólínu yrði fullkomnuð án þess að geta hinnar ótrúlegu en sönnu sögu um Svartskegg sjóræningja.

Enginn veit hvaðan hann kom, en vitað er að hann kallaði sig  Edward Teach, frekar látlaust nafn á þeim grimma og skrautlega manni sem hann átti eftir að verða.


26.9.2006

Draugagangur í New York


Brunswick

Forest Park Cemetery

Forestgarðsgrafreitirnir

sem einnig eru kallaðir Forest hæða grafreitirnir og Pinewoods kirkjugarðurinn á meðal sveitunganna er nokkuð vel þekktur í New York fyrir meintan draugagang sinn, einkum í kjölfar greinar í Life-tímaritinu 1980, þar sem fullyrt var að staðurinn væri á meðal tíu andsetnustu staða í BNA.


 


25.9.2006

Draugagangur í New Hampshire


Nashua

Kirkjugarðurinn við Gilsonveg

Skyldir þú eiga leið um suðurhluta New Hampshire einhverntíma á næstunni, skaltu endilega fara í kirkjugarðinn við Gilsonveg og litast um , hvort sem væri að nóttu eða degi.

Þessi litli kirkjug. hefur verið nákvæmlega rannsakaður af mörgum vísum draugaáhugamönnum og allir hafa þeir tekið eftir
áþreifanlegri orku á staðnum.



24.9.2006

Draugagangur í Montana


Bozeman

Chico Hot Springs Lodge & Ranch
Chico hverir, smáhús og búgarður

Í Maí 1986, fylgdust tveir næturvaktmenn með vofu "Frúarinnar í hvítu" svífandi yfir píanóinu í setustofunni á fjórðu hæð þessa hótels.

Þeir trúðu því að þetta væri afturganga Percie Knowles, eiginkonu kallsins sem byggði hótelið á árinu 1900.

Aðeins efri hluti hennar líkamnaðist og í nokkrar mínútur starði hún á verðina tvo, gaf þeim þannig tóm til að sækja myndavél af nærliggjandi borði og smella síðan af mynd.





23.9.2006

Draugagangur í Missouri

 St. Louis

Lemp-setrið

Saga Lemp-setursins er að grunni til þróunarsaga frá  fátækt til ríkidæmis og aftur til fátæktar.

Kryddaðu söguna með fjölskyldu óstöðugra, sérviturra einstaklinga og þú hefur orðið grunninn að sköpun alvöru andsetins húss.










23.9.2006

Draugagangur í Mississippi


Vicksburg

McRaven-heimilið

 McRaven-heimilið er á vafa andsetnasta hús í Mississippi. 

Núverandi eigandi þess er Leland French - sem viðurkennir fúslega að draugagangur loði við húsið - heimilið er vettvangur flestra tegunda dulrænna fyrirbæra þám. svífandi ljóskúlna, misturs, hljóða, lyktar og líkamninga eða vofa í fullri stærð.

Byggt 1796 og tvisvar stækkað (1836 & 1839),og hefur heimilið fengið sinn skerf af ofbeldi.
 



22.9.2006

Draugagangur í Minnesota

  Duluth

Glensheen-setrið

Glensheen-sagan er ein þeirra flóknustu og áhugaverðustu af andsetningarsögum sem við höfum rannsakað til þessa dags.
 

Chester Congdon byggði húsið én byggingu þess lauk 1908 (og var þá talið $865,000 virði). 

Dóttir Chesters, Elizabeth erfði húsið en að henni...







22.9.2006

Draugagangur í Michigan


Belleville

Soop-kirkjugarðurinn

Þessi virki kirkjugarður í Michigan er velþekktur vegna algengs draugagangs og annarra andlegra fyrirbæra, þám. svífandi ljóshnatta, hringiða, radda, kaldra bletta, skuggalegra fígúra og ýmislegra afturganga í fullri stærð.

Gröf nornar sem hét víst Elizabeth er að finna einhversstaðar í garðinum.
  
Soop grafreitirnir eru upprunalega frá því í kringum 1800 en nefnast núorðið Pleasantview-kirkjugarðurinn


22.9.2006

Draugagangur í Massachusetts

 Gloucester

Hammond-kastalinn

Hammond-kastali er tignarleg miðalda bygging reist á klettaströnd  Gloucester, og var byggingu hans lokið  1929. 

Hann var heimili og vinnustaður auðugs sérviturs snillings John Hammond að nafni, sem reyndar var einn af mestu uppfinningamönnum okkar tíma.

Hammond fór vítt um heiminn og færði heim í kastalann ótrúlega mikið af aldagömlum húsgögnum






20.9.2006

Draugagangur í Maryland

Ólafur Þór Eiríksson

Point Lookout (Útsýnisstaður)

Point Lookout State Park & Lighthouse
(Útsýnisríkisgarður og viti)

Engin upptalning á andsetnum stöðum væri fullkomin án þess að geta Point Lookout State Park & Lighthouse í suður Maryland. 

Þetta er svæði þar sem hverskonar dulrænna fyrirbæra verður vart; allskonar sýna, hljóða og orku sem draugarannsakendur þekkja til.






20.9.2006

Draugagangur í Maine

 Ólafur Þór Eiríksson

Suður af Georgetown

Ljósið í Seguin-eyju

Vitar eru jafnan "einmana", afskekktir og dularfullir staðir, þannig að ekki þykir undarlegt að margir hinna gömlu vita sem dreift er eftir ströndum okkar eigi sér sögur um meiri og minni draugagang og er þar vitinn í Seguin-eyju engin undantekning.
 
Vitinn í Seguin-eyju var byggður 1797. 

Byggingin var endurreist 1820, og aftur 1857. 


20.9.2006

Draugagangur í Louisiana

Ólafur Þór Eiríksson:



St. Francisville

Myrtle's Plantation
(Plantekra Myrtle)

Þetta gistihús í Louisiana hefur verið kallað andsetnasta hús í Amríku.  

Jafnvel þótt við samþykkjum ekki þá fullyrðingu þá hafa áreiðanlegar sögur um vofur, hljóð og önnur undarleg fyrirbæri verið nógu margar til að réttlæta nánari athugun.








11.9.2006

Draugagangur í Kansas

 

ÓlafurÞórEiríksson:



Lawrence

Eldridge-hótelið

Eldridge-hótelið er eina fyrirtækið í Lawrence, Kansas sem hefur verið við lýði síðan áður en Kansas var tekið inn í Samband norðurríkjanna.

 Byggingin sjálf hefur verið eyðilögð og endurbyggð (og þar hafa margir dáið) þó nokkrum sinnum á síðustu hálfri annarri öld eða svo, en 5 hæða húsið sem enn stendur var byggt 1926 og enduropnað í núverandi formi 1986. 




9.9.2006

Draugagangur í Iowa





Iowaborg



 

ÓlafurÞórEiríksson:

Svarti engillinn við Oakland-grafreitina.




 

Spyrjið hvern sem er í Iowa-borg um Svarta engilinn og vita skaltu að hver og einn hefur sína draugasögu að segja, flestar á þeim nótum að ekki sé þorandi að snerta eða snúa rassinum í styttuna vegna hættunnar á slysum eða dauða.

Svarti engillinn er mikilfenglegur tveggja og hálfs metra há stytta sem stendur á grafhvelfingu Teresu Feldevert og hennar fjölskyldu.

 Undir henni hvíla þegar jarðneskar leifar Eddie Dolezeal, sonur hennar, eiginmaður hennar  Nicholas Feldevert og Teresa sjálf.

Styttan sjálf þykir sjálf vera nokkuð óvenjulegur minnisvarði og sýnir engil sem horfir niður með dapurlegum svip og köldum einkennilegum augum með einskonar lafandi augnlokum sem mörgu fólki þykja all ógnvænleg













8.9.2006

Draugagangur í Indiana


Bloomington

Stepp-grafreitirnir

Af öllum draugagangi í Indiana-fylki, hljóta Stepp-grafreitirnir að hafa hann mestan og frægastan.

Staðsettir í Morgan-Monroe ríkisskógunum er staðurinn afar einangraður, sem gerir ferð þangað afar draugalega, jafnvel í dagsbjörtu.


 


6.9.2006

Draugagangur í Illinois

        

    Chicago


 

Grafreitirnir í Piparsveinslundi

(Bachelors Grove)

Þessir vanhelguðu grafreitir, þar sem fyrst var grafið 1864, fékk heitið af öllum þeim ókvæntu köllum sem bjuggu einu sinni í nágrenninu og hafa fengið það orð að þeir séu andsetnastir allra slíkra á Chicago-borgarsvæðinu. 

Svo virðist sem staðurinn hafi verið notaður sem geymslustaður fyrir fórnarlömb gangsteranna á þriðja áratug 20. aldar, og er þér verður litið yfir svæðið geriru þér grein fyrir því hve slæmt viðhald grafanna virkilega er.






 


 


 


 


 


 


 


 


 


 


 


 


5.9.2006

Draugagangur í Idaho

Idaho-borg


 

Kirkjugarðurinn á Boot-hæð


 

Idaho-borg er vel varðveittur gullgrafarabær frá tímum villta vestursins með athyglisverða, en ofbeldisfulla fortíð.

 Löggæsla var mikil á svæðinu og voru bæjarbúar snöggir að hengja meinta lagabrjóta án dóms og laga.






 


4.9.2006

Draugagangur í Georgia

ÓlafurÞórEiríksson:

Draugagangur í Georgia



 

Draugkennd fyrirbæri í Chickamauga ná yfir allan "tónstiga" þess yfirnáttúrulega, þám. ljóskúlur, gáttir til annarra vídda, draugafígúrur, glóandi augu,  and vortexes, ghostly figures, glowing eyes, sveitalegir runnar án nokkurrar greinilegrar ástæðu, afbrigðileg hljóð, byssuskot (engar veiðar eru leyfðar nokkursstaðar nærri þessu stóra svæði),  svo og einstaka raddir án sýnilegra líkama.

 Margir þeirra sem sækja heim staðinn hafa skýrt frá tilfinningu óöryggis og að fylgst sé með viðkomandi.




 


3.9.2006

Draugagangur í Florida

              Cassadaga


 


 

Cassadaga-búðir andans

(

Spiritual Camp)

Cassadaga eru oft kallaðar "Elstu andans búðir Suðursins og er því trúað að þær séu gátt í aðrar víddir - þar sem andans plan og hið jarðneska séu nánari en annars staðar - mjög svipað og á öðrum þekktum stað Sedona í Arizona.  

Þetta er örsmár, gamaldags og aðlaðandi bær með litlum, snotrum húsum með útlit húsa frá 3. áratug 20. aldar, flest með litlum görðum með jurtum og blómum vaxandi í forgrunni.






 


 


 


 


1.9.2006

Draugagangur í höfuðborginni


Washington DC



Hvíta húsið er án efa frægast andsetinna húsa í Amríku.

  En er nokkuð að marka sögusagnirnar?

 Öll höfum við heyrt sögurnar sem tengjast Abe Lincoln fyrrum forseta, en djúpt í skjalasöfnum Hvíta hússins er vafalaust að finna mörg fleiri athyglisverð gögn og heimildir.


1.9.2006

Draugagangur í Delaware

 Dover

 

Ríkisstjórabústaðurinn -  "Woodburn"

Langfrægastur andsetinna staða í Delaware er bústaður ríkisstjóra,  og heitir Woodburn. 

Húsið var byggt á árinu 1790 og gegndi hlutverki áningarstaðar þræla sem grófu sér göng til frelsis frá kjallaranum til nálægs fljóts St. Jones. 

Draugar hafa sést hér á sveimi í hundruði ára, ma. eldri kall nokkurn sem gæti jafnvel hafa verið upphaflegur eigandi hússins



1.9.2006

Draugagangur í Connecticut

Easton


 

Union-grafreitirnir eru einna þekktastir og mest rannsakaðir andsetinna grafreitna, ekki aðeins í Connecticut, heldur og í öllum BNA.

Frægð þessi er tilkomin einkum vegna fjölda vitnisburða meintra sjónarvotta á hvítu konunni "The White Lady," sem er sýn á konu í hvítum náttkjól með hatt sem birtist óvænt æa veginum í næsta nágrenni við grafreitina.

Mörg vitnanna eru talin vera afar traustvekjandi, þám. lögregla og brunamenn sem hafa skýrt frá því að hafa "ekið yfir" konuna, en ekki orðið varir við neinar skemmdir á bílunum.







31.8.2006

Draugagangur í Arkansas

            

Eureka Springs

                                            

(-lindir)

Crescent hótelið
byggt seint á 19. öld getur eignað sér langan lista af yfirnáttúrulegum fyrirbærum. 

Það er víðfrægt vegna sinnar yfirnáttúrulegu virkni og hefur verið fjallað um það í sjónvarpsþættinum "Unsolved Mysteries (óleystar ráðgátur)" vegna hinna mörgu frásagna af afbrigðilegum reynsluheimi innan veggja þess.

  Margir vilja meina að virknin sé tilkomin vegna hins tæra og orkumikla lindarvatns sem flæðir undir bygginguna.

Crescent-byggingin hefur haft marga eigendur gegnum tíðina síðastliðna öld eða svo, notað sem hótel fyrstu árin, þá kvennaháskóli og seinna sem heilsuhæli og sjúkrahús rekið af Norman Baker,  náunga  sem hafði enga læknisfræðilega menntun.
 
Eftir að hann hafði verið fangelsaður vegna sviksemi sinnar varð húsið mannlaust og ónotað þar til 1946, þegar það var gert upp og breytt aftur í hótel.




 


22.8.2006

Draugagangur í Colorado

             Central City (miðborg)

Masonic kirkjugarður



 

er samkvæmt bestu heimildum andsetinn af konu sem er klædd svörtum silkikjól.

 Til hennar hefur sést þar sem hún er að koma fyrir bláklukkublómum á gröf hins unga John Edward Cameron, sem varð bráðkvaddur 1. nóv. 1887 vegna hjartalömunar.

 Þessi forkunnarfríða kona í svörtu birtist tvisvar á ári - 5. apríl og 1. nóv. - og setur blóm á leiði Camerons.

Bæjarbúar sem hafa vitað af henni þarna frá upphafi, gerðu sér enga grein fyrir því hver hún væri og um 1899 var hún þekkt í sveitinni sem "vofan".








 


21.8.2006

Draugagangur í Kalíforníu

             Long Beach

 

(langa strönd)

 

Ferð mín til Queen Mary var ekki aðeins skemmtileg heldur einnig sögulega fróðleg.

Ég vissi ekki hvers var að vænta er ég kom á staðinn, ég hafði einungis heyrt sögur um það hversu magnað skip þetta væri.







 





















14.8.2006

Draugagangur í Alabama

Sloss ofnarnir í

Birmingham


 

Sloss ofnarnir eru án nokkurs vafa frægasta og andsetnasta draugabæli í miðju Alabama-fylkis.

Ólyginn sagði mér að um margra ára skeið hefði harðskeyttur og grimmur verkstjóri rekið undirmenn sína miskunnarlaust áfram á næturvaktinni við hörmulegar vinnuaðstæður þar sem hitinn var oft í kringum 50 gráður á Celsius.





 


14.8.2006

Reimleikar í Bandaríkjunum

 


Reimleikar í Bandaríkjunum


 

Rétt eins og þú gætir gert þér í hugarlund er það heljarinnar mikið verk að safna heimildum í flokka um drauga og reimleika í öllum fylkjum BNA.

Með tilliti til þess hve veröldin okkar er gömul og hve oft harmleikir gerast og hve oft fólk deyr á hverjum einasta degi, raunverulega á hverju götuhorni, hvenær sem er dagsins, er í raun ekki skrýtið að heimurinn sé vaðandi í afturgöngum.



 


11.8.2006

Sönn draugasaga!

Að neðan er óritskoðuð sönn frásögn af heimsókn til  Bachelor's Grove (Piparsveinslundur) send Netsögu í tölvupósti af  Ryan Monty.  Kærar þakkir Ryan - þetta er frábært framlag sem hjálpar okkur í öllum þessum draugagangi!

Hæ,

Nýlega endurnýjaðist áhugi minn fyrir dulspeki er ég átti spjall við vin minn um einkennilega reynslu hans í heimsókn hans til Brasilíu.

 Þannig að mig langar að deila með þér ómótmælanlegri dulrænni reynslu minni og  ótrúlegar myndir með.


Reynsla mín átti sér stað í kirkjugarði Piparsveinslundar þar sem ég á heima nærri  Chicago í júlí 2001. 

Ég hafði reyndar verið afar vantrúaður allt þar til ég varð fyrir þessari reynslu.

Nú er ég viss um að Piparsveinslundur er afar sérstakur staður en ég veit ekki hvaða hlutverki hann hefur að gegna, hvernig eða hvers vegna.

Þannig að hér kemur sagan:










 




















1.8.2006

Andsetið trjáhús!

 

                            

               Andsetið trjáhús!



 

Ég var í heimsókn hjá frændum mínum í Kaliforníu.

Garðurinn þeirra er afar stór og þar er ma. körfuboltavöllur.

Þar var og fullkomið trjáhús, tengt rafmagni vegna sjónvarpsins og leikjatölvunnar (playstation).
Við Danny frændi vorum í körfubolta seinni partinn og tekið var að skyggja, enda sólin lágt á lofti.

Á sama tíma var Mike bróðir hans í tölvuleik uppi í trénu.

Eftir nokkurn tíma bárust okkur öskur Mikes til eyrna um gluggann,


 


28.7.2006

DRAUGALJÓSMYNDIR

 

 

DRAUGALJÓSMYNDIR 
 

spooklight1.jpg (45210 bytes)

14.7.2006

LEYNDARDÓMUR ÚTSKURÐARins

   

 

 

 

 

Ofan við eldstæðið í Gamla-Eikarherberginu í Carbrook hangir útskurðarmynd.

 

Það sýnir útlínur miðaldaprests með fót ofan á útlínum nakinnar konu;

konu sem hefur hala á sér.

 

Viðurkennda skýringin er sú að þarna sé um að ræða nunnu sem látið hafi undan freistingum holdsins en myndinni fylgja einkunnarorðin:

 

 

 


 


14.7.2006

SEX RIDDARALIÐAR

                    

 

 

 

 

Í nokkurri fjarlægð frá gamla Carbrook-setrinu á dimmum ísköldum morgni gat að líta dauft ljós sem flökti hlýlega í litlum glugga á smáhýsi sem stóð í dimmum skuggum inni á milli eikartrjánna.

 

Daufan viðarreyk lagði upp af strompi þess á gróflegu stráþakinu.

 

Reykurinn bærðist varla, svo mikið var lognið í morgunloftinu og aðeins örlítill vindblær hreyfði við þokuslæðunni sem lá eins og teppi yfir öllum almenningi og skein dauft í dofnandi tunglsljósinu.


 


14.7.2006

Hrekkjavaka DAWSONS



-Draugasaga-

 

        

 

 

 

 

Það var á árinu 1920, skömmu eftir Fyrri heimsstyrjöld, er herragarðinum fyrrverandi Carbrook hafði verið breytt í almenningsbjórdrykkjuhúsnæði að eigendum þótti vanta sérstakan veitingamann.

 

Þeir ákváðu að á meðan þeir finndu réttan mann í starfið, skyldi einn fulltrúa þeirra líta til með rekstrinum.

 

Sá sem þeir sendu var Charles Edward Dawson, en þar sem hann gekk ekki undir öðru nafni en Dawson, og ég vil ekki vera að hafa áhrif á hið liðna, mun ég gera hið sama:

 


 


14.7.2006

Sannar draugasögur

         

          

 

Gegnum tíðina höfum við fengið sendar hundruð frásagna af yfirnáttúrulegri reynslu lesenda okkar.

Þær eru allar athyglisverðar og þess vegna höfum við ákveðið að helga þeim einni síðu.

Hafir þú í fórum þínum frábæra sögu af draugum þætti okkur vænt um fá hana lesið.

 

Frá Önnu 02/13/06 - efni draugagangur

 

                 ANDSETNA HERBERGIÐ

 

Þetta var vissulega einkennilegt mál, stórt hús við Goodwins-götu. í bænum Kings Lynn, sem er þekkt á meðal íbúa sem holhönd Englands en þannig lítur það út á kortinu.

 

Það var heimili miðilsins Shirley Pearce