Orð eru til alls fyrst:
Efling Atvinnulífs á Suðurnesjum Víkurfréttir 2o. feb.1986
Þau fyrirtæki sem náð hafa hvað mestum ítökum á síbreytilegum heimsmarkaði viðskiptanna eru svokallaðir "auðhringir". Hvað ætli valdi því að þessir "hringir" sýni margir hverjir síaukinn hagnað ár eftir ár og eru þar ekki neinar smáupphæðir í líkingu við hin ísl. fjárlög, heldur er þar allt stjarnfræðilegt. Ýmsir góðir hálsar hafa fært okkur meðsystkinum sínum heim sanninn um að hringirnir hafi flestir hverjir óhreint mjöl í sínum sekkjum. Er þar nærtækast að nefna "Aljúsviss" sem hann Hjörleifur fletti ofan af í skammri ráðherratíð sinni, en ekki verður farið nánar út í þá sálma. Það sem helst skilur á milli þessara samsteypa og ísl smáfyrirtækja er fjölbreytnin. Sambandsfyrirtækin öll- kaupfélög, skipafélög, verkstæði, kaffivinnsla ofl ofl eru mini útgáfa auðhringja, mörg fyrirtæki undir einni yfirstjórn.
En hví skyldi ég vera að gauka að auðhringjum í grein um atvinnumál á Suðurnesjum, nema vegna þess að enn situr hjá mér ungkarlinn hálf-atvinnulausi, sá sem lék stórt hlutverk í síðustu grein undir svipuðum formerkjum.

