Tónlist á netsaga.is
Tónlistin á netsaga.is er eftir Svein S. Ólafsson sem vakið hefur mikla athygli fyrir snjallar lagasmíðar sínar og eru þær af öllu tagi, en hafa þó þann eiginleika að ekki er hætta á því að maður fái leið á þeim!
Smellið hér til að hlusta!
23.1.2008
Hinn ráðgefandi Dr. Loki
Hinn ráðgefandi Dr. Loki Kominn er til starfa á Netsögu.is ungur 'altmuligman', Dr. Loki Fáfnis sem mun framvegis leysa flestan þann vanda sem lesendur fá honum til úrlausnar, hvort sem það er á sviði kynlífs, tiltektar á heimilum, viðhalds, undirbúnings málningar á íbúð eða hvers þess annars sem lesendur óska sér. Í fyrsta þætti tekur hann fyrir vandamál karls sem getur ekki verið trúr eiginkonu sinni til margra ára. Dr. Loki kom að máli við hann í kaffistofu Alþjóðahússins eftir að hafa margoft séð til hans þar sem hann fór á fjörurnar við kvenfólk af ýmsu þjóðerni. Oftar en ekki yfirgaf hann kaffistofuna með nýja konu upp á arminn. Karlinn kom í tíma til Dr. Loka: Ég fæ bara ekki nóg af konum. Ég verð að horfa á hverja konu sem gengur hjá. Ég glápi á klám, daðra, held sambandinu vakandi með gömlum vinkonum, safna nýjum, leita nýrra kvenna á Netinu. Ég fæ fleiri en 30 ímeila frá konum daglega. Eftir að hafa tælt þær á Netinu, vilja þær ólmar hitta mig og sofa iðulega hjá mér á fyrsta deiti. Síðan nota ég minnsta annmarka gegn þeim til þess að geta hætt með þeim. Þær eru eyðilagðar. Þeim þykir ég hafa notað þær kynferðislega, og þær hafa rétt fyrir sér. Það merkilega er að ég er kvæntur karl. Eiginkona mín er frábær, falleg, með góða greind og kynlíf okkar er fínt. Ég er 41 árs. Við höfum verið saman í 25 ár. Ég, hinsvegar er stöðugt með nýjum konum. Ég get bara ekki hætt að fleka aðrar konur og ríða þeim síðan. Og mig langar alls ekki að breyta háttum mínum, vegna þess að ég nýt ástandsins í topp og hefur aldrei liðið betur. Þetta hefur áhrif á vinnuna mína, en aðeins vegna þess mikla tíma sem fer í þetta. Venjulega eyði ég 3 stundum í að skrifa konum. Síðan hringi ég í þær sem næstar eru í röðinni. Þá ímeila ég þeim aftur í aðrar 3 stundir eftir að konan mín er gengin til náða. Að lokum eyði ég nokkrum stundum í leitina að nýjum konum. Ég hef ekki töluna á öllum þeim konum sem ég hef riðið. Mér finnst þetta ekki vera fíkn vegna þess að mér líkar þetta svo vel og það gleður mig að hitta þær, fleka þær, ríða þeim og já, jafnvel að segja þeim upp. Í þessari viku mun ég slá eigið met og ríða 13 konum. Þær eru allar fagrar, greindar og lánsamar og þær trúa því allar að við munum eiga frábært líf saman til æviloka. Þær grunar ekki að ég sé að sofa hjá mörgum öðrum, svo ekki sé minnst á að ég er kvæntur. Ég veit að að það er ekki fallega gert að særa þær tilfinningalega. Ég get bara ekki hætt. Fyrir mér er þetta alltílagi á meðan við erum öll fullorðið fólk. Í mínum augum er það ekki bara kynlífið, heldur einnig flekunin og hinir vitrænu leikir og ánægjan sem ég fæ út úr þessu. Að geta tælt konu uns hana langar að njóta kynlífs með mér er afar örvandi fyrir mig. Það er eins og ég hafi skorað sigurmark á lokamínútum leiks. Ég er orðinn svo fær í iðju minni að mér nægir einn póstur eða símtal til að slíta sambandi. Þú ert bara ekki sú sem ég hef verið að leita að, viltu gera svo vel að hætta að skrifa mér. Ég heyri aldrei framar frá þeim. Mér finnst þetta hátterni mitt svo auðvelt að stundum verð ég óttasleginn. Hluti af leiknum er einnig það hve vel mér gengur að blekkja konuna mína. Færa hana hingað, fara út með konunni, sofa hjá vinkonu, finna nýja vinkonu, finna henni tíma á þriðjudegi. Getur þú Loki sagt mér hvað er um að vera í lífi mínu? Sv.: Ég held að þú sér kynlífsfíkill og félagslega brenglaður. Það sem þú lýsir er kynlífsfíkn. Alveg eins og aðrir fíklar tekst þér ávallt að telja sjálfum þér trú um að þú sért að gera rétt, að allt sé þetta hluti af leiknum, sbr er þú líktir þessu við að skora sigurmarkið. Líkami þinn framleiðir dópamín í miklum mæli (dopamine sendir heilanum taugaboð sem auka sigurvímuna). Dópamín er hluti af kynlífi sem og td spilafíkn. Það sem mér þykir afar truflandi er það að þú skulir alls ekki finna til neinnar sektar, iðrunar eða hluttekningar vegna annarra sem snerta þitt líf. Þú veist innra með sjálfum þér að hegðun þín er ekki til eftirbreytni, vegna þess að þú áttar þig á því að þú ert að halda framhjá maka þínum jafnframt sem þú særir tilfinningar kvennanna sem þú ert að plata. Engu að síður virðist þú aðeins skilja þetta allt úr fjarlægð. Mér virðist þú ekki gefa tilfinningum rúm í lífi þínu. Þig skortir hæfileika til að gera þig ábyrgan fyrir óheiðarleika þínum og særandi hátterni. Þú átt auðvelt með að réttlæta það er þú særir og misnotar aðra, hvort sem þeir eru ókunnugir eða úr þinni eigin fjölskyldu. Reyndar virðist þú bara láta þér vel líka. Þar af leiðandi tel ég þig ekki geta lifað með öðrum, þar sem þig skortir umhyggjusemi og tillitssemi fyrir öðrum. Mig grunar að þú brjótir oft viðteknar samskiptareglur eða særir aðra án þess að gera þér grein fyrir afleiðingunum. Þú gætir verið að setja hjónaband þitt í rúst sem og atvinnu þína. Þér mun fylgja slóð eyðileggingar. Vegna sjálfs þín og allra þeirra sem tengjast þínu lífi mæli ég með því að þú leitir þér hjálpar. Ef þú ekki breytir þínum háttum munt þú líklega smitast af einhverri óværu, komast í kast við lögin eða gera einhvern svo reiðan að þér verður gert mein. Viljir þú lifa eðlilegu lífi - þar sem þú lætur ekki stjórnast af kynlífsfíkninni - skaltu fara í viðeigandi meðferð, annað hvort í einkatíma eða með hópi. Til þín lesandi minn: Fólk eins og þessi gaur virðist oft vera aðlaðandi og geislandi. Eins og þú færð séð, á þessi gaur ekki í vandræðum með að ginna fólk og skaða fjölda þess. Ef þú átt eftir að rekast á svona fólk mæli ég með því að þú forðir þér hið bráðasta. 
Um allan heim er fólk leitandi ráðgjafar vegna hinna ólíkustu vandamála sem virðast kannski vera óvinnandi vígi þar til þau eru leyst. Oft virðist lausnin vera svo einföld, svona eftirá að fólk hefði allt eins getað fattað málið eða unnið verkið sjálft.
Sp.:
NETSAGA.IS
Nýjast á
There is also an English version
Meðeigandi óskast!

Ef þú hefur hugmyndir um það hvernig breyta megi Netsögu úr veftímariti sem gefur engar tekjur í annað sem á eftir að afla mikilla tekna og hafir einnig bolmagn til að koma fyrirhuguðum breytingum í verk, legg ég til að þú hafir óðara samband við mig undirritaðan
Allar hugmyndir verða teknar til greina.
Ólafur Þór Eiríksson
netsaga@netsaga.is
S: 696 7271

Fylgist með í Sakamálum Smásagna:
Nú hefur ábyrgðarkarlinn byrjað að skrifa nýja spennusögu sem hefur vinnuheitið
"MANNLEGT skrýmsli á Íslandi".

Viljir þú ræða við ábyrgðarmann Netsögu.is á MSN: olafureiriksson5@msn.com
Netsaga er opin fyrir auglýsinguna þína.
Hafðu samband um netsaga@netsaga.is
Ef þú færð þér tengil á Netsögu getur þú auglýst
í hreyfimynd alla þína starfsemi og tilboð
hvers dags fyrir sig!


ábyrgðar sökum aldurs.
ISSN 1670-777X
Upplestur á www.hexia.net í boði Landsbankans og Hexia.net